Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ómar Már var á leið í land þegar snjóflóðið féll: Hryllingurinn eftir snjóflóðið sker enn í hjartað

Ómar Már var á leið í land þegar snjóflóðið féll: Hryllingurinn eftir snjóflóðið sker enn í hjartað
Ómar Már Jónsson Mynd: Iris Dogg Einarsdottir

„Við vorum á leið­inni í land á Bessa ÍS 410 og vorum að gera við trollið sem hafði rifnað og það var svo mikið aftaka­veður að maður fékk hellur fyrir eyrun á dekk­inu. Það er eft­ir­minni­legt hvað veðrið var vont. Þegar við nálg­uð­umst höfn­ina taldi skip­stjór­inn að það væri of vont í sjó­inn og of blint til að leggj­ast að höfn­inni. Síðan komu skila­boð úr brúnni að það hafi fallið snjó­flóð á miðja Súðavík. Það fyrsta sem ég hugs­aði með mér var að for­eldrar mínir bjuggu í miðri Súðavík og systir mín með sína fjöl­skyldu þar rétt hjá,“ segir Ómar Már Jónsson, odd­viti Mið­flokks­ins til borg­ar­stjórnar, í við­tali við Mannlíf, þegar hann rifjar upp þegar snjó­flóðið féll á Súðavík árið 1995.

„Haf­steinn Númason var einnig um borð og húsið hans og fjöl­skyldu var líka á því svæði. Maður var í óvissu í tölu­verðan tíma um hversu alvar­legt þetta var og engin leið að vita hversu mörg hús hefðu orðið fyrir flóð­inu. Það eina sem við gátum gert var að reyna að lýsa með ljós­köst­urum á svæðið sem við töldum að snjó­flóðið hefði fallið á því leit­ar­fólk var komið til Súða­víkur til að leita og aðstoða þá sem náðu að koma sér sjálfir úr flóð­inu.“

Snjó­flóðið féll á miðja Súðavík 16. jan­úar árið 1995 kl. 06.25. Það var stað­fest með því að klukka sem var í póst­hús­inu sem flóðið féll einnig á hafði stöðvast þá.

Stór hluti úr byggð­inni var bara far­inn.

Ómar Már Jónsson var á þessum tíma II stýri­maður á Bessanum og segir hann að þeir Haf­steinn hafi viljað kom­ast í land til að huga að sínum nán­ustu. „Við sigldum síðan innar í fjörð­inn og vorum þar ferjaðir með tuðru yfir í minna skip sem gat komið okkur að höfn­inni. Er á höfn­ina var komið var blind­hríð en báðir leit­uð­umst við að horfa upp í byggð­ina til að athuga með hús okkar nán­ustu, hvort þau hefðu orðið fyrir flóð­inu. Ég var að athuga hvort ég sæi í sort­anum hús for­eldra minna og hús systur minnar og Haf­steinn var að skima eftir sínu húsi. Það var algjör­lega blint þegar við komum á höfn­ina og maður sá ekki langt en stuttu eftir að við lögðum af stað í átt að frysti­hús­inu datt allt í einu allt í dúna­logn og þá sáum við hversu alvar­legt þetta var. Stór hluti úr byggð­inni var bara far­inn. Maður sá útlínur flóðs­ins og skemmd­irnar og bara það hörmu­lega atvik sem þarna hafði orðið. Við fórum strax upp í frysti­húsið. Fagra­nesið hafði komið rétt áður með lækna, hjúkr­un­ar­lið, leit­ar­fólk og leit­ar­hunda og var verið að flytja inn í fryst­húsið fólk sem var verið að finna.“

Faðir vor, þú sem ert á himnum.

Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,

verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.

Lést eins og hálfs árs

Ómar Már hitti mág sinn sem var lít­il­lega slas­aður en systir Ómars hafði verið flutt um borð í Fagra­nesið sem átti að sigla til Ísa­fjarðar. Tvær dætur þeirra voru ófundnar.

„Ég fór um borð í Fagra­nesið og var dálít­inn tíma hjá systur minni en hún var í miklu áfalli af að vita ekki um afdrif barn­anna þeirra tveggja. Síðan fór ég aftur upp eftir og hjálp­aði til eins og ég gat. Ég fór svo með Fagra­nes­inu síðar til Ísa­fjarðar en þá var farið með þá sem voru slas­aðir ásamt hópi af Súð­vík­ingum sem vildu kom­ast frá staðnum. Þetta var svaka­leg­asta sjó­ferð sem ég hef nokkurn tím­ann farið í,“ segir Ómar Már en allir voru eðli­lega í miklu áfalli.

Önnur þeirra var ósködduð. Hin látin.

Hann seg­ist hafa búið á Ísafirði á þessum tíma. Sá síð­asti sem fannst á lífi var 12 ára gam­all drengur sem fannst um sól­ar­hring eftir að flóðið féll. Syst­ur­dætur hans fund­ust báðar. Önnur þeirra var ósködduð. Hin látin. Sú var tæp­lega eins og hálfs árs.

Þegar allir voru fundir og veður orðið betra hófst hreins­un­ar­starf.

„Þá var ég í því í nokkra daga að grafa í rústum húsa systur minnar og fjöl­skyldu hennar og svo hjá for­eldrum fyrr­ver­andi mágs míns. Þarna skipti miklu máli að finna sem mest af per­sónu­legum eigum – myndir, mynda­bands­upp­tökur og fleira; per­sónu­lega munum sem skiptu miklu máli: Myndir og bara ein­föld­ustu hlutir sem höfðu verið í eigu fjöl­skyldn­anna.“

Gef oss í dag vort dag­legt brauð.

Fyrirgef oss vorar skuldir,

svo sem vér og fyr­ir­gefum

vorum skuldu­nautum.

Svöðusár

Áfallið var svo mikið að Ómar Már seg­ist hafa sett á sjálf­stýr­ingu. „Allar til­finn­ingar og allt þetta mann­lega var eig­in­lega pínu­lítið sett á „hold“. Maður fór inn í þessa atburða­rás og reyndi að gera sitt besta og gera mikið af því og reyna að hjálpa, styðja við og gera lífið létt­bær­ara fyrir alla. Ég veit ekki einu sinni hversu lengi ég var á þess­ari sjálf­stýr­ingu. Það voru ein­hverjar vikur. Ég man að með okkur var áfalla­sér­fræð­ingur sem var nýfar­inn að veita áfalla­hjálp sem var til­tölu­lega nýtt á þessum tíma og hann tók okkur inn á milli í sam­töl og spurði meðal ann­ars hvernig okkur liði. Ég hafði enga líðan. Maður var ekki í stöðu til þess að tjá sig um það hvernig manni leið. Það var hægt að nýta mann til þess að hjálpa og þannig keyrði maður sig áfram. Svo get ég sagt þér að í þrjú til fjögur ár var ég að fá eitt­hvað sem gæti kall­ast eðli­leg við­brögð við jafn­miklu áfalli; þar sem maður grét yfir því sem hafði gerst.“

Þögn.

„Þar sem maður í raun­inni var bara pínu­lít­ill í sér og mér fannst ég vera van­mátt­ugur gagn­vart nátt­úru­öfl­unum og því sem hafði gerst.“

Það þarf að lifa með þessu og það gengur mis­jafn­lega hjá fólki að gera það.

Ómar Már þekkti nán­ast alla sem bjuggu í Súðavík. „Þetta voru vinir manns, kunn­ingjar og sam­ferða­fólk í líf­inu. Þetta er eitt­hvað sem eng­inn hristir af sér. Þetta er ekki eitt­hvað sem grær. Það þarf að lifa með þessu og það gengur mis­jafn­lega hjá fólki að gera það. Þetta er hluti af manni og maður aðskilur hann aldrei frá sér. Það sem ég tók út úr þessu er að virða hvern dag og verða betri útgáfa af sjálfum mér, að vera hæf­ari til að taksat á við verk­efni og styðja við aðra, sína nán­ustu, börnin og að und­ir­búa þau sem best undir lífið til að þau séu sem hæfust til að takast á við þau verk­efni sem þau eru í eða eiga eftir að taka sér fyrir hendur.“

Hann er trú­aður og hann bað til Guðs á þessum erf­iðu tímum.

„Ég fann hvað ég var van­mátt­ugur og hvað ég er í raun­inni lít­ill og þá sótti ég styrk í eitt­hvað sem er mér æðra. Eitthvað stærra. Eitthvað meira.“

Þögn.

„Það veitti mér styrk á þessum tíma.“

Bað hann ákveð­innar bænar?

„Það var í sjálfu sér heima­til­búin bæn og Fað­ir­vorið. Ég bað fyrir þeim sem áttu um sárt að binda.“

Svöðusárið var djúpt í miðjum bænum.

„Ég var á sjónum eftir þetta og það var alltaf stingur í hjart­anu þegar við vorum að koma í land en þá sá maður byggð­ina frá sjó og sá skarðið sem hafði verið hoggið í bæinn. Það var alltaf sárt. Það sat í manni í langan tíma á eftir. Þá kom þetta flash back. Þetta rifj­að­ist upp. Og raun­veru­leik­inn blasti við manni í þessu stóra svöðusári í miðri Súðavík þar sem vant­aði svo mikið af húsum.“

Og eigi leið þú oss í freistni,

heldur frelsa oss frá illu.

Því að þitt er ríkið, mátt­ur­inn og dýrðin

að eilífu

Amen.

SAMSUNG TECHWIN DIGIMAX-230

Krossinn stóri

Árið 2002, sjö árum eftir snjó­flóðið, var aug­lýst eftir sveit­ar­stjóra í Súðavík.

„Ég fann hjá mér svo mikla köllun að geta tekið þátt í að byggja upp aftur. Að búa til meiri til­trú á sam­fé­lagið. Að heila sam­fé­lagið ef svo má að orði kom­ast.“

Ómar Már Jónsson var ráð­inn sveit­ar­stjóri árið 2002.

„Eitt af fyrstu verk­efn­unum var að láta búa til minn­ing­ar­reit um þá sem höfðu farist í snjó­flóð­inu. Ég fékk Pétur Jónsson lands­lags­arki­tekt til að vinna það með mér og það var eitt erf­ið­asta verk­efni sem ég hef farið í á minni lífs­leið vegna þess að ég var í per­sónu­legum sam­skiptum við alla þá sem höfðu misst og voru margir ósáttir við hvað hafði gerst dag­inn fyrir flóðið og einnig hvernig staðið var að hreinsun í þorp­inu eftir flóð.“

Úr varð minn­ing­ar­reitur með stórum kross með nöfnum þeirra sem fór­ust.

Hvað með önnur eft­ir­minni­leg verk­efni á 12 ára sveit­ar­stjórn­ar­ferl­inum? Ómar Már seg­ist hafa lagt áher­lsu á að auka til­trú Súð­vík­inga á fram­tíð­ina.

„Það er í raun­inni marg­þætt. Það voru atvinnu­málin í fyrsta lagi; að tryggja að það væri atvinna handa öllum. Að tryggja að byggðin næði að blómstra og að íbúum fjölg­aði sem og tæki­færum sem gekk út á að aðlaga sam­fé­lagið og inn­viði þess að ferða­þjón­ustu sem var byrjuð að banka upp á hjá okkur árið 2002. Svo var það að fegra byggð­ina og gera hana eins góða og kostur var fyrir alla hópa sam­fé­lags­ins hvort sem það var fólk sem vildi flytja til Súða­víkur, fyr­ir­tæki sem myndu vilja flytja sig til Súða­víkur eða ferða­menn sem myndu vilja sækja okkur heim um stund­ar­sakir.“

Fyrsta sveit­ar­fé­lagið á land­inu sem gerði leik­skól­ann gjald­frjálsan.

Ómar Már lagði áherslu á að fara svo­lítið ótroðnar slóðir og segir hann að Súðavík hafi verið fyrsta sveit­ar­fé­lagið á land­inu sem gerði leik­skól­ann gjald­frjálsan.

„Síðan bjuggum við til atvinnu­mála­styrki til að höfða til fyr­ir­tækja sem myndu vilja stað­setja sig í Súðavík.“

Það skorti atvinnu­húsæði í bænum og gekkst Súða­vík­ur­hreppur við því að byggja tvö stór atvinnu­hús­næði fyrir rekstur fyr­ir­tækja og úr varð Iðn­garðar sem er atvinnu­hús­næði fyrir bæði skrif­stofur og iðn­að­ar­rými fyrir marg­vís­lega starf­semi. „Þá byggðu verk­takar þriðja atvinnu­hús­næðið undir sína starf­semi.“

Á meðal ann­arra verk­efni sem Ómar Már kom að fyrir hönd sveit­ar­fé­lags­ins má nefna stofnun Mel­rakka­set­urs Íslands sem hann er mjög stoltur af.

Skortur á fyrirhyggju

Ómar Már hafði rekið eigið fyr­ir­tæki í Reykja­vík áður en hann gerð­ist sveit­ar­stjóri og eftir að hann kvaddi Súðavík árið 2014 hefur hann stofnað fleiri fyr­ir­tæki í Reykja­vík. Nú vill stýri­mað­ur­inn fyrr­ver­andi róa á önnur mið og það í höf­uð­borg­inni. Hann er odd­viti Mið­flokks­ins til borg­ar­stjórnar.

„Ég var í fjórða sæti í Reykja­vík suður fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar en það hafði verið sótt að mér að gefa kost á mér ofar­lega á lista en ég var upp­tek­inn í öðrum verk­efnum og hefði ekki þann tíma og fókus til að gera það vel og taldi þá betra að vera í fjórða sæti og vinna með í bak­land­inu. Ég er þannig karakter að þegar ég tek eitt­hvað að mér þá fer ég alla leið; ég geri það af heil­indum og mér er umhugað um að fara alla leið með því mark­miði að ná árangri í því sem ég tek mér fyrir hendur.“

Vand­ræða­gang­ur­inn í öllum þessum mála­flokkum sé fyrst og fremst skortur á fyr­ir­hyggju.

Hver eru áherslu­málin?

„Við höfum nýlega hleypt af stokk­unum heima­síðu, xmreykja­vik.is, þar sem sjá má allar áherslur okkar í öllum mála­flokkum en stærstu málin fyrir þessar kosn­ingar teljum við vera fjár­mál borg­ar­innar sem eru komin í algert óefni, hús­næð­is­vand­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem er í algjöru óefni og sam­göngu­málin. Það má segja að óefnin eða vand­ræða­gang­ur­inn í öllum þessum mála­flokkum sé fyrst og fremst skortur á fyr­ir­hyggju. Því ætlum við að breyta. Setja íbúa í borg­inni í fyrsta sæti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ