Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Erla Sigríður harmar fréttaflutning síðustu daga: „Hvers konar ofbeldisfull hegðun er aldrei liðin“

Erla Sigríður harmar fréttaflutning síðustu daga: „Hvers konar ofbeldisfull hegðun er aldrei liðin“

Rúv greindi frá því í dag að nem­andi Flens­borg­ar­skóla sem varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás er fimm sam­nem­endur réð­ust á hann fyrir utan Hagkaup, segi að skóla­yf­ir­völdi bregð­ist ekk­ert við mál­inu og að hann treysti sér ekki til að mæta í skól­ann. Nem­enda­fé­lag Flens­borg­ar­skóla segja skóla­stjórn­endur ekki bregð­ast við ein­elti og alvar­legum lík­ams­árásum nem­enda í skól­anum á hendur sam­nem­enda. Skóla­meist­ari Flens­borgar, Erla Sigríður Ragn­ars­dóttir, segir í yfir­lýs­ingu rétt í þessu að skól­inn líði ekk­ert ofbeldi og að frétta­flutn­ingur af mál­inu sé rangur.

Samkvæmt frétt Rúv sendi stjórn nem­enda­fé­lags Flens­borgar ráðu­neyt­inu erindi eftir að ljóst var að Erla Sigríður Ragn­ars­dóttir, settur skóla­meist­ari skól­ans, hefði hlotið skipun í emb­ættið, og mót­mæltu skip­un­inni. Sagði stjórn nem­enda­fé­lags­ins ekki tekið á ofbeldis- og ein­elt­is­málum í skól­anum. Margir nem­endur mættu ekki í skól­ann í gær í mót­mæla­skyni. Töldu nem­endur sem Rúv ræddi við að um 70-80 nem­endur hefðu ekki mætt. Þá fund­uðu nokkrir for­eldrar um ástandið og hyggj­ast boða fleiri for­eldra til fundar. Rúv ræddi við Unni Elínu Sig­ur­steins­dóttur sem sögð er vera í stjórn nem­enda­fé­lags­ins í frétt­inni. „Ofbeldi er bara leyft að við­gang­ast innan skól­ans og að ekk­ert sé gert í mál­inu fyrr en þau eru opin­beruð.

Þá ræðir Rúv einnig við annan drengj­anna sem lenti í lík­ams­árásinni en hann seg­ist enga hjálpa hafa fengið frá skóla­yf­ir­völdum.

Erla Sigríður Ragn­ars­dóttir, skóla­meist­ari Flens­borgar sendi frá sér yfir­lýs­ingu rétt í þessu á heima­síðu skól­ans. Athygli vekur að sam­kvæmt yfir­lýs­ing­unni er frétt Rúv alröng, segir hún meðal ann­ars að ályktun nem­enda skól­ans varð­andi þetta mál og önnur innan skól­ans og fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum að und­an­förnu, hafi aldrei borist yfir­völdum skól­ans. Stað­festir odd­viti nem­enda­fé­lags­ins að hún komi ekki frá núver­andi stjórn.

Hér er yfir­lýs­ingin í heild sinni:

Flens­borg­ar­skól­inn í Hafn­ar­firði líður ekki ofbeldi af neinu tagi

Vegna umfjöll­unar í fjöl­miðlum um mál­efni nem­enda skól­ans og ályktun þess efnis er rétt að eft­ir­far­andi komi fram.

Ályktun sú sem fjöl­miðlar hafa fjallað um und­an­farna daga og varðar mál­efni nem­enda hefur hvorki borist skóla­meist­ara né stjórn skól­ans og því er erfitt að bregð­ast við efni hennar. Oddviti nem­enda­fé­lags­ins hefur stað­fest að hún komi ekki frá núver­andi stjórn. 

Skóla­meist­ara er óheim­ilt að tjá sig um við­kvæm mál ein­stakra nem­enda. Stjórn skól­ans fylgir aðgerða­á­ætlun um ofbeld­is­mál og mikil áhersla er lögð á fag­leg vinnu­brögð. Í slíkum til­vikum eru mál unnin í sam­vinnu við fag­fólk bæði innan og utan skól­ans. Úrlausn mála af þessum toga er við­kvæmt ferli. Þau snerta gjarnan marga nem­endur, eru flókin við­fangs og verða ekki leyst á vett­vangi fjöl­miðla.

Brugðist hefur verið við af festu vegna þess ofbeld­is­máls sem nú er til umfjöll­unar í fjöl­miðlum meðal ann­ars með brott­vís­unum úr skóla til lengri og skemmri tíma og var það gert strax í kjöl­far atviks­ins. Öllum hlut­að­eig­andi aðilum, nem­endum og fjöl­skyldum þeirra, hefur verið gerð grein fyrir því að hvers konar ofbeld­is­full hegðun er aldrei liðin, hvorki innan skól­ans né utan og þeim boð­inn stuðn­ingur, hvort sem það er í tengslum við námið eða líðan.

Vinna við úrlausn þessa máls sem um ræðir hófst strax um leið og skóla­yf­ir­völd fengu stað­festar upp­lýs­ingar um máls­at­vik enda var atvikið utan veggja Flens­borg­ar­skóla. Atburð­ur­inn átti sér stað í Garðabæ, lög­regla var kölluð til og vinnur að rann­sókn máls­ins. Stjórn­endur Flens­borg­ar­skól­ans hafa ekki fengið upp­lýs­ingar frá lög­reglu um hvernig rann­sókn máls­ins miðar en málið er einnig til rann­sóknar hjá Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar. Ítreka ber að skóla­yf­ir­völd hafa brugð­ist við mál­inu að fullu leyti í sam­ræmi við þann ramma sem þeim er snið­inn.

Hvað varðar félags­líf nem­enda þá hafa nem­endur í Flens­borg­ar­skól­anum þurft að sætta sig við sömu tak­mark­anir og nem­endur ann­arra skóla. Hvorki nem­endum né skóla­stjórn­endum hefur þótt það auð­velt. Þegar sam­komu­tak­mörk­unum var aflétt í febr­úar var róið að því öllum árum að haldin yrði árs­há­tíð nem­enda og að leik­sýn­ing leik­fé­lags­ins nú í apríl yrði að veru­leika. Það var mikið gleði­efni að hvort tveggja skyldi takast.  

Varðandi umræðu um óánægju innan Morfís liðs Flens­borg­ar­skóla þá ber að taka fram að for­eldrar ósk­uðu eftir því að skóla­stjórn­endur tækju til baka heim­ild Morfís liðs­ins til þess að æfa eft­ir­lits­laust á nótt­unni í skóla­bygg­ing­unni. Stjórn skól­ans taldi rétt á sínum tíma að bregð­ast við þessum óskum for­eldra.

Skólinn harmar frétta­flutn­ing af mál­efnum nem­enda skól­ans síð­ustu daga og þá nei­kvæðu mynd sem dregin hefur verið upp af skóla­starf­inu almennt. Stjórn skól­ans ber virð­ingu fyrir skoð­unum nem­enda og leggur áherslu á að auka sam­tal á milli nem­enda og skóla­yf­ir­valda, tryggja sátt og öfl­ugt skóla­starf. 

Fyrir hönd Flens­borg­ar­skól­ans,
Erla Sigríður Ragn­ars­dóttir, skóla­meist­ari

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina