Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Meirihlutinn í Hafnarfirði kolfallinn: Samfylking og Viðreisn að taka við?

Meirihlutinn í Hafnarfirði kolfallinn: Samfylking og Viðreisn að taka við?
Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar

Samkvæmt kosn­ings­pám sem flokk­arnir í Hafn­ar­firði hafa látið útbúa fyrir sig, en kosið verður á laug­ar­dag, verða miklar breyt­ingar í Hafn­ar­firði þar sem Sjálf­stæð­is­menn hafa farið með völdin síðan 2014.

Nýjustu spárnar eru mjög svip­aðar, og ákveðið mynstur er að sjá; Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hríð­fellur í fylgi og fá sam­kvæmt þeim spám sem Mannlíf hefur undir höndum, þrjá kjörna bæj­ar­full­trúa og missa þar með tvo.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með einn bæj­ar­full­trúa, og hefur flokk­ur­inn und­an­farið komið nokkuð vel út, og mæld­ist nýverið með tvo menn inni. En nú er breyt­ing á því, og nýj­ustu tölur segja Fram­sókn­ar­flokk­inn ná einum manni, en að ekki megi muna miklu að hann náist ekki inn. Talað er um að frammi­staða og tvö­feldni Ágústar Bjarna Garð­ars­sonar sé nú að koma í bakið á flokk hans: Ágúst Bjarni var mjög óvænt kjör­inn á þing í haust og sagð­ist ekki ætla að sinna bæði þing­mennsku og starfi bæj­ar­full­trúa og nefnd­ar­manns; Ágúst Bjarni stóð ekki við sín orð – sagði ósatt – og kláraði kjör­tíma­bilið í Hafn­ar­firði sam­hliða þing­störfum sínum og þáði greiðslur frá bæði ríki og sveit. Við þetta þarf odd­viti flokks­ins í dag, Valdimar Víðisson, að glíma við á loka­sprett­inum, sem gæti orðið erf­iður; jafn­vel bara það að halda sínum manni inni í dag er ekki mjög lík­legt.

Viðreisn hefur þótt standa sig vel á kjör­tíma­bil­inu þar sem Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti; hann er ákveð­inn og metn­að­ar­gjarn og svo gæti farið að Viðreisn næði inn öðrum manni, og væru þar með lík­lega í lyk­il­stöðu í samn­ings­um­leit­unum eftir kosn­ingar. Í dag fengi Viðreisn tvo menn kjörna.

Líf­fræð­ing­ur­inn Haraldur R Ingvason skipar efsta sætið á lista Pírata í Hafn­ar­firði, og hefur þótt standa sig vel; Píratar mæl­ast sam­kvæmt þeim nýju könn­unum sem Mannlíf hefur undir höndum með einn mann inni, líf­fræð­ing­inn Harald.

Og þá að stóru tíð­ind­unum, fyrir utan fylg­is­hrun Sjálf­stæð­is­flokks­ins, risa­sigur Sam­fylk­ing­ar­innar virð­ist blasa við. Eftir að Guð­mundur Árni Stef­áns­son sneri heim og bar sigur úr býtum í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í vetur, hefur fylgi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum auk­ist jafnt og þétt, og nú mælist Sam­fylk­ingin með fimm kjörna full­trúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð