Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Andrei sendur aftur til Rússlands í sumar: „Mjög miklar líkur á að ég verði handtekinn við komuna“

Andrei sendur aftur til Rússlands í sumar: „Mjög miklar líkur á að ég verði handtekinn við komuna“
Andrei Mens­henin Mynd: Facebook-skjáskot

Rúss­neski blaða­mað­ur­inn og akti­vist­inn Andrei Mens­henin hefur verið á Íslandi síðan 2016 við nám. Nú virð­ist sem hann neyð­ist til að fara aftur til Rúss­lands í sumar en þar gæti löng fang­els­is­vist beðið hans.

Andrei sér­hæfir sig í skrifum um flug­vélar en í Rúss­landi var hann á tíma með sinn eig­inn sjón­varps­þátt um mál tengdum flug­vélum. Árið 2016 kom hann svo til Íslands og hóf nám í alþjóða­sam­skiptum við Háskóla Íslands. Þá tók hann eitt ár í íslensku og svo reyndi hann fyrir sér í BA-námi í íslenskri tungu en seg­ist hafa verið of upp­tek­inn til að geta lært almenni­lega og því kláraði hann ekki námið. Náms­dval­ar­leyfið rennur út í sumar en hann átt­aði sig á því að rúss­neska vega­bréf hans rennur út á árinu en það er ómissandi í umsókn­ar­ferl­inu fyrir nýtt dval­ar­leyfi. Sendiráð Rússa í Reykja­vík sagði Andrei að það í mars gæti tekið þrjá mán­uði að fá nýtt vega­bréf og því er þetta ansi tæpt. Vegna mót­mæla hans gegn yfir­völdum í Kreml, á hann það á hættu að vera fang­els­aður við kom­una til Rúss­lands.

Stofnaði sinn eiginn miðil

Mannlíf ræddi við Andrei í síma í dag og spurði hann út í málið. „Ég kom til Íslands árið 2016 en ég hef unnið sem blaða­maður síðan 2009 en síð­asta starfið sem ég hafði áður en ég kom hingað var sjón­varps­þáttur um flug sem ég stýrði í Rúss­landi. Árið 2014 réð­ust Rússar fyrst á Úkraínu og tóku Krím­skaga með valdi. Það var þá sem ég ákvað að fara frá land­inum mínu þar sem mig grun­aði í hvað stefndi. Síðan ég kom hingað hefur ástandið í Rúss­landi ein­ungis versnað. Varðandi klíp­una sem ég er í núna, þá var ein­fald­ast fyrir mig að fá dval­ar­leyfi á grund­velli náms. Fyrsta ætlun mín þegar ég kom hingað var að fá vinnu sem blaða­maður en eng­inn fjöl­mið­ill á Íslandi sýndi því áhuga að ráða sér­fræð­ing í flug­málum sem blaða­mann hjá sér, hvað þá ein­hvern sem tal­aði ekki íslensku full­kom­lega. Þannig að ég stofn­aði minn eig­inn miðil, flug­blogg.is og er vel þekkt innan flug­geirans á Íslandi. En nú stend ég and­spænis mjög miklum erf­ið­leikum. Til þess að sækja um fram­leng­ingu á dval­ar­leyf­inu þarf ég fullt af skjölum og fyrst og fremst, vega­bréf. Vega­bréfið mitt rennur nefni­lega út í nóv­em­ber á þessu ári. Fyrst ætl­aði ég að skreppa til Rúss­lands og end­ur­nýja vega­bréfið en svo skall stríðið á. Pútin for­seti skrif­aði undir ný lög en í þeim segir að hver sá Rússi sem gagn­rýnir inn­rás­ina og jafn­vel kallar þetta stríð, gæti átt yfir höfði sér fang­els­is­dóm.“

Sendiherrann ógnandi

Aðspurður út í mót­mæli sem hann hefur tekið þátt í segir hann að nýleg mót­mæli við sendi­ráð Rússa hafi ekki verið hans fyrstu mót­mæli á Íslandi. „Árið 2017 mót­mælti ég og góður vinur minn frá háskól­anum, fyrir framan sendi­ráð Rússa en þá hafði skýrsla sem Alexei Navalny hafði gert eftir að hafa rann­sakað spill­ingu Dmitry Medvedev for­sæt­is­ráð­herra. Skýrslan olli mik­illi hneikslan í Rúss­landi og þetta var ástæðan fyrir því að við mót­mæltum. Þar sem við stóðum með mót­mæla­skilti okkar komu nokkrar mann­eskjur út úr sendi­ráð­inu og hófu að taka af okkur ljós­myndir. Við höfðum staðið þarna í tæpa tvo klukku­tíma, ekki öskr­andi eða neitt, bara héldum á mót­mæla­skiltum. Stuttu seinna kom lög­reglan að og sagði okkur að sendi­ráðið hefði hringt á þá. Eftir að við útskýrðum fyrir þeim hvað við værum að gera þarna, óskaði lög­reglan okkur góðs geng­ist og fóru. Sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, sá sem var á undan þeim sem er núna, kom svo á bíl sínum og keyrði hratt í átt­ina að okkur og stöðv­aði svo bíl­inn nokkrum senti­metrum frá okkur, renndi niður rúð­unni og spurði okkur hvernig það væri að elska landið sitt svona langt í burtu. Svo keyrði hann í burtu.“

Ekkert sérstaklega gefinn fyrir mótmæli

Andrei sagði í sam­tal­inu að hann væri ekk­ert sér­stak­lega gef­inn fyrir mót­mæli, það væri ekki hans starf en hann hafi verið feng­inn í það af öðru fólki.
„Ég er ekk­ert sér­stak­lega hrif­inn af því að mót­mæla, það er ekki mitt starf. Ég fylgist venju­elga með frá hlið­ar­lín­unni, svona í ljósi þess að ég er blaða­maður. En löngu síðar höfðu við mig sam­band Rússar sem búa á Íslandi, sumir með íslenskt vega­bréf en aðrir ekki, og spurðu hvort við ættum ekki að gera eitt­hvað, mót­mæla stjórn­völdum í Rúss­landi. Þannig að úr varð að ég stofn­aði mót­mæla­við­burð á Facebook. Þannig varð ég skipu­leggj­andi mót­mæl­anna. Stærstu mót­mæli Rússa á Íslandi voru árið 2021 þegar Navalny var hand­tek­inn í Rúss­landi. Og svo mót­mælti ég auð­vitað þegar stríðið hófst í Úkraínu, það var ekki einu sinni spurn­ing, ég vissi að ég þyrfti að gera það. En vegna allra þess­ara mót­mæla var ég fljótt spott­aður af sendi­ráð­inu enda voru þau með ljós­myndir af mér og fleira. Ég hef áreið­an­legar heim­ildir fyrir því að ég sé á óop­in­berum svörtum lista sendi­ráðs­ins sem þýðir að ég geti ekki sótt um styrki hjá þeim fyrir við­burðum af hvaða tagi sem er, sem aðrir Rússar á Íslandi geta sótt um.“

Fangelsi bíður sennilega við heimkomuna

Vega­bréfið hans Andrei rennur út eins og áður segir, seinna á árinu en vegna þess að það tekur þrjá mán­uði að end­ur­nýja það í Rúss­landi, verður Andrei að öllum lík­indum sendur aftur til Rúss­lands, þegar dval­ar­leyfi hans rennur út í júní. En hvað heldur Andrei að bíði hans við kom­una til Rúss­lands? Fangelsi jafn­vel? „Ég held að það séu mjög miklar líkur á að ég verði hand­tek­inn við kom­una til Rúss­lands, út af þessum nýju lögum sem ég sagði þér frá áðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ