Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólafur Sveinsson, 75 ára, gekk Jakobsveginn og íhugaði: „Ég drakk mjög illa og fór illa með fólk“

Ólafur Sveinsson, 75 ára, gekk Jakobsveginn og íhugaði: „Ég drakk mjög illa og fór illa með fólk“
Ólafur Sveins­son

Ólafur Sveins­son. 75 ára. Nýkominn frá Spáni þar sem hann kláraði að ganga Jak­obs­veg­inn en í fyrra­haust gekk hann rúm­lega helm­ing leið­ar­innar. Hann er vanur göngu­maður. Hefur gengið á fjöll í mörg ár. En lífs­gangan er svo­lítið þyrnum stráð. Þung­lyndi. Alkó­hól­ismi; en Ólafur hætti að drekka fyrir 31 ári. Fall um nokkra metra og níu brotin rif­bein á ísklif­ur­nám­skeiði. Ólafur heldur áfram að ganga. Í lífs­göng­unni og á fjöll.

Ólafur Sveins­son, sem er 75 ára, er til­tölu­lega nýkom­inn heim frá Spáni þar sem hann gekk um 330 kíló­metra og lauk þar með göngu sinni um Jak­obs­veg­inn en fyrri hlut­ann gekk hann í fyrra­haust en þá gekk hann um 400 kíló­metra. Jak­obs­vegur, eða Vegur heilags Jakobs, er ein þekktasta píla­gríma­leið í Evrópu.

„Ég var búinn að hafa það á bak við eyrað mjög lengi að ganga Jak­obs­veg­inn. Svo var ég að tala við vin í fyrra­sumar sem sagð­ist ætla að segja mér leynd­ar­mál; hann ætl­aði að ganga Jak­obs­veg­inn. Þá sagð­ist ég ætla að gera það líka en að ég vissi ekki hvenær ég myndi gera það. Ég ætl­aði að fara eitt­hvert í sept­em­ber eða októ­ber; það var þegar hægt var að fara eitt­hvert út af Covid og var ég að spek­úlera í að fara á sól­ar­strönd eða í golf. Ég ákvað hins vegar að ganga Jak­obs­veg­inn og pant­aði flug og fór út 10 dögum síðar. Áður fór ég þó í bóka­safn og fékk mér bækur um Jak­obs­veg­inn.“

Þetta byrj­aði með látum.

Ólafur flaug svo til Englands og hóf ferð­ina á því að týna vega­bréf­inu sínu en hann komst að því þegar hann var kom­inn á flug­völl­inn úti. „Ég var settur í lítið afdrep.“ Vega­bréfið fannst í bið­her­berg­inu í Leifs­stöð þar sem far­þegar vél­ar­innar höfðu verið áður en hleypt var út í vél og var sent ljós­rit af því og fékk Ólafur bráða­birgða­vega­bréf hjá sendi­ráði Íslands í London. „Þetta byrj­aði með látum.“

St. Jean Pied Port.

Síðan flaug hann til Frakk­lands og hóf göng­una í litlu þorpi, Saint-Jean-Pied-de-Port eða Somport, sem er Frakk­lands­megin við Pýrenea­fjöllin.

„Svo labb­aði ég af stað dag­inn eftir. Þetta var 25 kíló­metra leið og það var hávað­arok og ég tók mynd­band af fólki sem var að fjúka; það var þó hlýtt. Þetta var þess vegna dálítið erfið ganga en ég kláraði hana. Ég fann að ég var í vondum skóm og þá byrj­aði það ves­enið.“

Ólafur segir að sér hafi þótt vera merki­legt að sjá allt þetta fólk sem var að gera það sama og hann var að gera. „Ég þurfti að fá mér svefn­pláss en ég var búinn að hafa dálitlar áhyggjur af því hvernig þessi svefn­pláss væru af því að ég var búinn að heyra ein­hverjar sögur um að þetta væri mis­jafnt; skítugt og illa gengið um. Þarna var svefn­pláss fyrir 160 manns og var þetta hjá munkum og það var allt svo tand­ur­hreint. Ég fékk sæng­ur­föt og það var allt svo hreint og fínt.“

Aftur týndist vegabréf

Það rigndi mikið morg­un­inn eftir. Hauga­rign­ing.

„Ég fór á öðrum degi að ná sam­bandi við fólk. Svo þurfti maður að fá sér veit­ingar; ég fór inn í búð og keypti mér vín­ber og sóda­vatn og hélt svo áfram. Fyrsti legg­ur­inn var um 20 kíló­metrar og ég ákvað að fara á þar næsta stað. Ég gekk í róleg­heit­unum og allt gekk vel. Mér fannst allt vera mjög fal­legt og það var hætt að rigna.

Ég fann að ég fór í örlítið fár.

Svo kom ég á hostel og þurfti að sýna vega­bréfið; þeir skrá allt niður. Ég var mjög skipu­lagður; vega­bréfið átti að vera á vissum stað og ég byrj­aði að leita en fann það ekki – þetta bráða­birgða­vega­bréf. Ég fór í gegnum allt. Ég fann að ég fór í örlítið fár. Ég var spurður hvar ég hefði stoppað á leið­inni og ég mundi ekk­ert eftir því. Maðurinn á hostel­inu fór líka í gegnum allt í bak­pok­anum og svo allt í einu var lög­reglan komin inn á gólf til þess að taka skýrslu. Það var vitað mál að ég þyrfti að verða mér úti um nýtt vega­bréf þannig að ég hringdi í ræð­is­mann­inn í Barcelona sem benti mér á að hringja í ræð­is­mann­inn í Bilbao; hann gæti hjálpað um vega­bréf. Ég varð að vera með vega­bréf ef ég ætl­aði að halda ferð­inni áfram. Ég hringdi í vin­konu dóttur minnar sem býr ásamt fjöl­skyldu sinni í San Sebast­ian og hún sagð­ist ætla að sækja mig til Pamplona sem var 17 kíló­metra ganga. Ég gekk til Pamplona og beið eftir vin­konu dóttur minnar. Þá hringdi lög­reglan í mig og sagð­ist vera með vega­bréfið mitt. Og þá mundi ég hvar ég hafði tapað því. Ég hafði farið dálítið blautur inn í búð og var að ná í grímuna til að setja á mig en ég geymdi hana á sama stað og vega­bréfið sem hefur dottið á gólfið þegar ég náði í hana.“

Og Ólafur fór á lög­reglu­stöð og náði í vega­bréfið sitt.

Hann var á þessum tíma far­inn að finna fyrir verkjum í fót­unum. Kominn með sár. Hann fór heim til vin­konu dóttur sinnar og var hjá þeim í einn og hálfan dag þannig að hann gat hvílst. „Svo var mér skutlað til Pamploma og ég hélt göng­unni áfram.“

Morg­un­sól.

Einn í þögninni

Og hann gekk og gekk.

Hver áfang­inn af öðrum næstu daga.

„Það sem mér fannst vera mjög merki­legt fyrstu þrjá til fjóra dag­ana var að vera einn á göngu og vera einn með sjálfum mér.“

Þögn.

Mér fannst þetta róa hug­ann.

„Það var svona „hvað er ég að hugsa?“ Hvað var ég að hugsa?“. Það var mjög merki­legt að upp­lifa þetta; ég er búinn að vera að ganga mikið í gegnum árin og oft verið einn en þetta var öðru­vísi. Ég var á Jak­obs­veg­inum. Það voru kirkjur alls staðar. Litlar kirkjur og stórar kirkjur. Ég fór í flestar kirkj­urnar sem ég sá. Ég er ekki mjög trú­aður maður en mér fannst mjög gaman að fara í þessar kirkjur; sér­stak­lega litlu kirkj­urnar. Setjast þar niður og vera einn í þögn­inni. Mér fannst það skemmti­leg­ast. Ég var með það mark­mið að fara í allar kirkjur sem ég gat kom­ist inn í. Mér fannst bara gott að vera inni í þeim. Stoppa og hvíla mig. Mér fannst þetta róa hug­ann.“

Í kirkju frá 17. öld.

Ólafur talar aftur um snyrti­lega nátt­staði. „Ég var mest hissa á hvað nátt­stað­irnir voru allir fínir. Við vorum kannski átta í her­bergi og það var allt svo hreint. Þetta er stærð­ar­innar bis­ness þarna á Spáni orð­inn og þeir eru að vanda sig. Þarna var ég svo að hitta fólk og tala við fólk og það fannst mér vera skemmti­legt; hitta mis­mun­andi fólk.

Ég spurði af hverju það væri að ganga. Ég var dálítið for­vit­inn. Og það spurði mig líka. Ég spurði einn sem var að koma frá Frakk­landi og búinn að ganga um 1800 kíló­metra hvað hann ætl­aði að fá út úr þessu. Þá horfði hann á mig og sagði: „Ég veit það ekki. Ég veit það kannski þegar ég kem á leið­ar­enda.“ Hann var búinn að ganga í marga daga og mér fannst þetta dálítið flott en hann hafði lagt af stað heiman frá sér. Vinur hans var með honum og hann var frá Belgíu. Og hann sagði það sama. Þessir tveir karlar voru voða skemmti­legir. Ég borð­aði með þeim og Frakkinn söng og sagði sögur.

Svo var það konan sem kom frá Svíþjóð. Hún var stíf. Mjög stíf. Ég umgekkst hana í þrjá daga og það var áhuga­vert að sjá hvernig hún breytt­ist. Hún sagði mér hvers vegna hún væri að ganga Jak­obs­veg­inn. Hún var að skilja við mann­inn sinn og ætl­aði að ganga Jak­obs­veg­inn og hugsa málið og svo ætl­uðu þau að hitt­ast í Santiago og sjá hvort þau gætu unnið sig út úr þessu. Það var svo gaman að sjá þessa konu; allar varn­irnar voru farnar á tveimur til þremur dögum.“

En ég fékk tár í augun.

Af hverju var Ólafur sjálfur að ganga Jak­obs­veg­inn?

„Ég hef nú dálítið velt því fyrir mér af hverju ég var að ganga Jak­obs­veg­inn. Ég var dálítið sam­mála mann­inum sem sagði að hann vissi það ekki ennþá en að það kæmi í ljós þegar hann kæmi á leið­ar­enda. Mér fannst ég vilja ganga Jak­obs­veg­inn fyrir mig. Ég myndi ekki vilja ganga með nokkrum öðrum heldur en bara mér. Og hugs­unin hjá mér var að ég fengi að kynn­ast mér aðeins betur; hvernig ég væri einn með sjálfum mér, einn í ókunn­ugu landi og með ókunn­ugu fólki. Þetta var ekk­ert trú­ar­legt. En það er samt svo skrítið; það er kross á einum stað þar sem píla­grímar stansa til að hug­leiða og losa sig við stein eða eitt­hvað tákn­rænt fyrir þá. Ég var með stein í vas­anum sem ég nudd­aði á göngu minni og tók hann við hugs­unum, áhyggjum og gleði frá mér. Ég los­aði mig við stein­inn þegar ́ég kom að þessum krossi. Ég er ekki grát­gjarn maður en ég fékk tár í augun. Ég finn það bara þegar ég tala um þetta. Það var mjög merki­leg stund fyrir mig þegar ég los­aði mig við stein­inn. Ég var þarna einn og það kom yfir mig mikil ró og mér fannst þetta vera mjög merki­legt. Ég lét stein­inn falla og það var til­finn­inga­legt. Mér fannst þetta vera mjög áhrifa­mikil stund.“

Steini skilað við kross.

Þögn.

„Og ég var kannski að ganga svona til þess að finna mig.“ Og fann Ólafur sig á Jak­obs­veg­inum?

„Já, ég upp­lifði það. Ég hef aðra sýn á mig en áður. Ég á mjög róstu­samt líf,“ segir hann og kímir. „Ég hef gert mikið í líf­inu mínu og mér fannst vera ágætt að hugsa um það án þess að vera að dæma mig en að taka ábyrgð á því sem ég hef verið að gera. Svo hef ég gert fullt af góðum hlutum. Ég gekk þessa leið kannski til að kynn­ast mér.“

Krefjandi

Ólafi var farið að vera illt í tánum. Fótunum. „Ég var búinn að fara í apó­tek og búinn að fá þar eitt­hvað til að setja á tærnar; ein­hverja hólka. Og ég var búinn að plástra mig alveg. Það var bara plástur út í gegn með tærnar. Síðasta dag­inn sem ég gekk ætl­aði ég að ganga um 30 kíló­metra. Ég fór á veit­inga­stað þegar ég var búinn að ganga um átta kíló­metra til að fá mér te og brauð og fór úr skónum sem er ágætt þegar maður stoppar. Ég ætl­aði ekki að kom­ast í skóna aftur áður en ég hélt af stað. Ég var með park­odín með mér og át park­odín reglu­lega á meðan ég gekk sem voru rúm­lega 20 kíló­metrar. Ég hugs­aði með mér að ég yrði að láta lækni skoða þetta. Ég tók leigu­bíl og fór í þorp þar sem ég vissi að væri læknir og skar hann í tærnar og saum­aði svo. Hann sagði að þetta liti illa út og að ég mætti ekki ganga næstu þrjá til fimm dag­ana. Ég ákvað þá að fresta þessu og fara heim. Ég var kom­inn með verk í fót­inn.“

Læknir í Carrion.

Ólafur hafði gengið tæpa 400 kíló­metra á 13 dögum. Til að klára Jak­obs­veg­inn átti hann eftir að ganga rúm­lega 300 kíló­metra. Og það gerði hann í vor. 11 dagar. 325 kíló­metrar. Með­al­vega­lengdin um 30 kíló­metrar á dag.

„Ég fann það á seinni helm­ingnum að mér leið ágæt­lega með að ganga um 30 kíló­metra á dag. Ég lenti reyndar í því að labba 38 kíló­metra síð­asta dag­inn.“

Galisía.

Hvernig var ferðin í vor? Hvað upp­lifði Ólafur?

„Ég upp­lifði fyrst og fremst það að ég vissi hvað ég var að gera. Og ég var miklu örugg­ari með mig. Ég hitti svo mikið af skemmti­legu fólki; ég gekk aldrei með því nema kannski stuttan spöl. En fyrst og fremst var fólkið sem ég hitti skemmti­legt og gott. Og það fannst mér standa upp úr.“

Svo nálg­að­ist Ólafur „markið“ í þess­ari göngu. Santiago de Compostela. „Ég var búinn að hugsa með mér hvernig þetta yrði þegar ég kæmi þangað. Það var til­finn­inga­ríkt. Allt í einu var ég kom­inn á enda­stað og stóð allt í einu fyrir framan þessa stóru og miklu dóm­kirkju innan um fullt af fólki. Það var önnur stund sem ég varð til­finn­inga­næmur. Ég fann alveg að það komu tár. Mér fannst þetta vera mjög merki­leg stund.“

Jú, Jak­obs­veg­ur­inn var að baki. Tæplega 800 kíló­metrar í tveimur lotum. Hækkunin? Um 13 kíló­metrar sam­an­lagt.

Ég er bara allt í lagi.

Hvað hefur það gefið Ólafi að hafa gengið Jak­obs­veg­inn?

„Það var mjög krefj­andi að vera einn með sjálfum sér. Að geta þolað mig í göngu í tæpan mánuð í allt. Að vera með mér og vera sáttur við mig; það sem ég fékk mest út úr þessu er að ég er bara ágætur. Ég er bara allt í lagi. Mér finnst það vera mik­ils virði að vera bara allt í lagi. Það sem ég fékk mest út úr þessu er að ég er sáttur með mig.

Þessi ganga hefur að ein­hverju leyti breytt mér. Ég upp­lifi það.“

Í Santiago de Compostela.

Þunglyndið

Ólafur tal­aði um róstu­samt líf. Stundum erfitt. Það má líka þessu við göngu. Fjall­göngu. Blíð­viðri og veð­urofsa.

Hann var ung­lingur þegar hann fór að finna fyrir þung­lynd­is­ein­kennum.

„Allt í einu var ég undir sæng, lok­aði mig af og vildi ekki tala við neinn og skildi ekki af hverju þetta var svona. Svo rjátl­að­ist þetta af og ég fór að koma mér af stað en svo kom þetta aftur. Ég vissi aldrei af hverju. Þetta var svona í mörg ár.

Svo upp­götv­aði ég það að ég gat drukkið mig í gegnum þetta. Það var ágætt; ég gat farið á ein­hvern stað og setið einn úti í horni og drukkið mig í gegnum þetta. Ég vissi að þetta var ekki eðli­legt. Eitt af ein­kennum mínum var að ég vildi ekki tala við fólk og svar­aði ekki sím­anum.“

Það kom að því að Ólafi var bent á að fara til geð­læknis sem sagði að hann þyrfti að hreyfa sig og vera innan um fólk. Það gerði Ólafur og það kom að því að hann átt­aði sig á því að

þetta væri sjúk­dómur. Þung­lyndi. „Geð­lækn­ir­inn sagði að ég ætti að hætta að gera þetta að leynd­ar­máli og ég hef bara talað um þetta síðan þá.“

Ég lag­ast ekki á einum degi.

Göngur hjálpa mikið en það er löngu búið að sanna að göngur eru góðar fyrir lík­ama og sál.

„Þegar ég er í svona kasti og er í miklu svart­nætti þá hefur það hjálpað mér að fara í skóna mína og fara út. Og svo bara geng ég. Og ég veit að göngur hafa áhrif á alls konar starf­semi í lík­am­anum. Ég er þá bara að ganga til þess að fá efni inn í lík­amann; bara til að heil­inn í mér róist og ég finn það alveg þegar ég er að kom­ast upp úr þessu hvað hreyf­ingin gerir mér gott. Ég lag­ast ekki á einum degi. Mér finnst oft vera erf­ið­ast að fara í skóna og fara út. Þess vegna er ég svo hepp­inn að ég er stundum með Kasper, vin minn, með mér og þá hjálpar hann mér,“ segir Ólafur en Kaspser er labrador­hundur dóttur hans og tengda­sonar. „Göngur hafa líka áhrif á hjart­slátt­inn, svefn­inn og matar­æðið. Þær hafa áhrif á allt.“

Ólafur segir að þegar hann finnur fyrir þung­lynd­is­ein­kennum og er í þessu svart­nætti þá hafi hann litla trú á að hann geti gert þetta; geti farið út að ganga. „Maður liggur bara undir sæng­inni og það er ekk­ert fram undan. Það er ekk­ert að ger­ast. Maður horfir á sjón­varpið og vill ekki hitta fólk. Og vill ekki svara í sím­ann. Og fyrsta hugs­unin er ekki að fara út og hreyfa sig. Ég er hins vegar búinn að vera svo lengi með þennan sjúk­dóm að ég er búinn að læra inn á hann og það er tvennt sem ég þarf að gera. Það er ann­ars vegar að segja öllum þeim sem eru nálægt mér að nú líði mér illa og hins vegar að koma sér út. Þá kemur þetta dópamín í lík­amann.

Það er við­ur­kennt af öllum að hreyf­ing er það sem skiptir höf­uð­máli. Aðalmáli.“

Laukurinn og brennivínið

Bakkus. Ólafur sagð­ist hafa upp­götvað að hann gæti drukkið sig í gegnum þung­lynd­is­ein­kenni. Þessa van­líðan.

„Ég drakk í 27 ár. Ég var stjórn­samur. Árás­ar­gjarn. Ég drakk mjög illa og fór illa með fólk. Ég gat verið vondur við fólk undir áhrifum. Þegar maður er virkur alkó­hólisti þá hefur það áhrif á líf manns þó maður sé ekki að drekka.“

Svo kom að því að hann fór í með­ferð.

Þess vegna gat ég hætt að drekka.

„Það var sagt að ég væri með sjúk­dóm. Ég er með ofnæmi fyrir lauk og ef ég borða lauk þá verð ég veikur; þá fer ég ann­að­hvort í kóma eða æli. Mér líður ekki vel. Og það hefur ekk­ert vaf­ist fyrir mér að borða ekki lauk. Og ég gat tengt það saman við að ég verð veikur þegar ég drekk áfengi. Og ég gat gert mér grein fyrir að ég væri veikur. Þess vegna gat ég hætt að drekka. Það að hætta að drekka hjálp­aði mér að halda lífi mínu áfram.“

Ólafur hefur ekki drukkið í 31 ár.

„Það gjör­breytti lífi mínu að hætta að drekka brenni­vín. Og það breytti líka lífi svo margra ann­arra. Þeirra sem eru í kringum mig. Það hefur hjálpað mörgum að lifa kannski betra lífi.“

Níu brotin rifbein

Lífs­gangan hefur verið svo­lítið þyrnum stráð en Ólafur hefur bók­staf­lega gengið á fjöll í mörg ár. Hann seg­ist þó ekki hafa byrjað að ganga af neinu viti fyrr en árið 2012. Ári áður

hafði hann gengið upp á Hvanna­dals­hnjúk. Hann fór svo nokkrum árum síðar að vinna sem leið­sögu­maður hjá Ferða­fé­lagi Íslands og hætti því í fyrra.

Ólafur gerði til­raun til að fara upp á Mont Blanc. „Ég náði ekki nema upp í um 4400 metra, fékk hæð­ar­veiki.“ Og hann hefur gengið upp í grunn­búðir Everest.

Ég má bara þakka fyrir að hafa ekki drepið mig.

Hann átti sér draum. Stóran draum. Að ganga upp á Everest. Fara alla leið. Þess vegna fór hann fyrir örfáum árum síðan á ísklif­ur­nám­skeið. Hann var í línu á jökli og datt niður um fjóra til fimm metra og brotn­uðu níu rif­bein.

„Ég má bara þakka fyrir að hafa ekki drepið mig. Ég datt beint á bakið.“

Það tók um hálft ár að jafna sig og fann Ólafur fyrir þung­lynd­is­ein­kennum á þeim tíma. Lagðist undir sæng. Teppi.

„Ég var með góðan stuðn­ing af fjöl­skyld­unni; stelp­urnar mínar pössuðu svaka­lega vel upp á mig. Það tók tíma að kom­ast í gegnum þetta and­lega. “

Og Ólafur komst í gegnum þetta. Og hann heldur áfram að ganga.

„Ég mun halda áfram að gera eitt­hvað. Ég á bara eftir að finna út hvað það er. Og hvernig ég geri það. Það verður kannski að ganga Esjuna 30 sinnum í mán­uði. Það má segja að ég sé dellu­kall; ég hef gaman af að setja mér mark­mið svo sem að ganga á Helga­fellið alla daga í nóv­em­ber.“ Og það gerði hann. „Hreyfa mig að minnsta kosti 30 mín­útur á hverjum degi. Ég hef gengið 3.000 kíló­metra á einu ári. Það er gott og gaman að hafa mark­mið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi