Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Pólitískar flóttakonur frá Hvíta-Rússlandi senn sendar úr landi – Veikar og óttast framhaldið

Pólitískar flóttakonur frá Hvíta-Rússlandi senn sendar úr landi – Veikar og óttast framhaldið

Hví­trúss­nesku vin­kon­urnar Alina Kaliuzhnaya og Daria Novit­skaya eru hér á landi sem póli­tískir flótta­menn. Eftir ofsóknir yfir­valda í Hvíta-Rúss­landi, sáu þær ekki aðra leið en að flýja heima­landið – og komu til Íslands. Útlend­inga­stofnun hefur tví­vegis hafnað beiðni þeirra, en mál þeirra verður tekið fyrir í þriðja skiptið á næst­unni. Tapi þær enn á ný, verða þær sendar til Póllands en þar dvöldu þær í tvær nætur áður en þær flugu til Íslands. Fjallað hefur verið um þær á öðrum miðlum, en Mannlíf ákvað að taka við­tal við þær í ljósi þess að nú hefur und­ir­skrifta­söfnun til stuðn­ings vin­kon­unum verið ýtt úr vör.

Daria og Alina

Sögur vin­kvenn­anna eru ótrú­legar og í raun svo fjarri íslenskum veru­leika að erfitt er að ímynda sér hvernig þeim líður eftir allt sem á undan hefur gengið.

Saga Alinu

Alina, 24 ára, er dóttir eins þekktasta póli­tíska flótta­manns Hvíta-Rúss­lands, Dmitrys Petrushkevich sem kom upp um dauða­sveitir Alex­and­ers Lukashenko for­seta og, að eigin sögn, síð­asta ein­ræð­is­herra í Evrópu. Þurfti Dmitry í kjöl­farið að flýja landið. Þá var Alina aðeins þriggja ára gömul.

Æska Alinu ein­kennd­ist af spít­ala­vist og veik­indum, en hún er greind með Crohns-sjúk­dóm­inn, sem er sjálfsof­næm­is­sjúk­dómur sem herjar helst á melt­ingu fólks en veikir einnig ónæm­is­kerfið, svo Alina er við­kvæm fyrir hvers kyns sýk­ingu. Einnig er hún greind með hið sjald­gæfa og alvar­lega Marfan-heil­kenni. Af þeim sökum þarf hún stöðuga lyfja­gjöf og lækn­is­hjálp en Marfan-heil­kenni getur verið lífs­hættu­legur sjúk­dómur, en hann leggst á hjarta- og æða­kerfið, augun og stoð­kerfið, sem útskýrir hvers vegna Alina fór strax sem barn að missa hluta af sjón­ar­innar.

Alina bauð sig fram í eft­ir­lits­störf árið 2020, þegar efnt var til fyrstu lýð­ræð­is­legu for­seta­kosn­ing­anna í Hvíta-Rúss­landi frá falli Soví­et­ríkj­anna. Þar varð hún vitni að stór­felldu kosn­inga­svindli en ekk­ert var hlustað á hana þegar hún til­kynnti yfir­stjórn­inni frá brot­unum. Ákvað hún þá að mót­mæla úrslit­unum, en Lukashenko hlaut yfir 80% atkvæða. Var Alina hand­tekin í mót­mæl­unum ásamt vinum hennar sem einnig höfðu mót­mælt. Fyrstu þrjá dag­ana var hún látin dúsa í hinni alræmdu fanga­geymslu í Minsk, Okrest­ina sem þekkt er fyrir hrylli­lega með­ferð á föngum, meðal ann­ars nauðg­anir, bar­smíðar og pynt­ingar. Þar hefur fólk meðal ann­ars þurft að hír­ast 15 saman í fimm manna klefa þar sem ekk­ert kló­sett var að finna, í nokkra daga. Slapp hún við lík­am­legt ofbeldi, en var beitt and­legu ofbeldi þar. Eftir þriggja daga vist þar var hún færð í  fang­elsi, um 300 kíló­metra fjar­lægð frá Minsk. Þar sat hún inni í 12 daga til við­bótar, þar sem hún sætti and­legum pynt­ingum. „Þeir tóku vel eftir mér í fang­els­inu því ég var alltaf að minna þá á að ég hefði þessa sjúk­dóma og fékk þá þannig af því að berja mig. Þannig að þeir not­uðu aðrar aðferðir. Þeir beittu mig and­legu ofbeldi, þeir lok­uðu mig inni í pínu­litlu her­bergi án papp­írs eða dag­blaða í 15 daga,“ segir Alina og seg­ist ekki hafa getað fylgst með tím­anum af þeim sökum. Þá var ómögu­legt fyrir Dariu að senda henni lyfin sem hún þurfti, því hún fékk engar upp­lýs­ingar um stað­setn­ingu hennar. Daria fór um allt land í leit að rétta fang­els­inu, svo Alina gæti fengið augn­dropana sem hún þurfti nauð­syn­lega. Þá varð Alina veik mest­allan tím­ann á meðan hún dvaldi í fang­els­inu, en fékk enga lækn­is­að­stoð. „Ég gat ekk­ert borðað þarna, því vegna heilsu­vand­ans get ég ekki borðað hvaða mat sem er. Þannig að ég bara svalt,“ segir Alina og bætir við að hún þurfi að fylgja ströngu matar­æði vegna heils­unnar.

Félag­arnir Alex­ander Lukashenko og Vladimír Pútín horfast í augu.

Aðspurð seg­ist Alina auð­vitað vera í áfalli eftir dvöl­ina í fang­els­inu. „Á þessum þremur dögum sem ég var í fanga­geymsl­unni, missti ég þrjú kíló, sem er mikið fyrir mig. Dvölin hafði einnig alvar­leg áhrif á æxl­un­ar­færin. Andleg heilsa mín sökk algjör­lega niður fyrir gólf­fjal­irnar. Ég gat ekki farið til sál­fræð­ings eftir þetta því ég var hrædd um að sál­fræð­ing­ur­inn myndi kjafta í yfir­völd. Það sem hjálp­aði mér mikið var starf mitt á leik­skól­anum, en fáeinum vikum eftir að mér var sleppt, lést afi minn. Hann hafði unnið mest­alla ævi sína sem lög­maður lög­regl­unnar og var sem slíkur verð­laun­aður af yfir­völdum. Hann vissi af fanga­geymsl­unni hræði­legu í mörg ár. Þegar hann frétti að Alina hefði farið í gegnum þennan stað hætti hann að tala við nokkurn mann og nokkrum vikum síðar lést hann. Þannig að þetta var bara hræði­legt.“

En af hverju ákvað Alina að flýja frá heima­land­inu og af hverju til Íslands? Alina svarar því til, að fljót­lega eftir að henni var sleppt úr fang­elsi var henni sagt upp starfi sem leik­skóla­kenn­ari og þegar hún sótti um á öðrum vinnu­stöðum rakst hún alltaf á vegg, hún hafði verið hand­tekin og eng­inn mögu­leiki fyrir hana að fá vinnu. Hún ákvað þá að flýja land og vissi að Ísland væri eitt örugg­asta land í heimi og gæti boðið henni upp á bestu mögu­legu hjálp hvað varðar heilsu hennar.

Saga Dariu

„Saga mín er svo­lítið öðru­vísi. Mamma mín var hand­tekin árið 2008 og dæmd í tveggja ára fang­elsi. Í þá daga var ekki hægt að hand­taka og ákæra fólk fyrir að mót­mæla, heldur þurfti að búa til ein­hverjar upp­lognar sakir. Hún var fundin sek um að til­heyra glæpa­sam­tökum sem inni­héldu aðeins eina mann­eskju – hana. Einnig var hún dæmd fyrir man­sal,“ sagði Daria og sagði svo frá sinni hand­töku.

Ákæran á hendur móður Dariu
Ákæran á hendur móður Dariu
Þýðing á ákæru á hendur móður Dariu
Þýðing á ákæru á hendur móður Dariu

Hún fór ásamt Alinu á nán­ast öll mót­mæli árið 2020, fyrir og eftir að upp komst um kosn­inga­svindl Lukashen­kos, en áður höfðu allir helstu stjórn­ar­and­stæð­ing­arnir verið fang­els­aðir. Til að byrja með voru þetta heil­mikil mót­mæli í mið­borg Minsk, en svo kom óeirða­lög­reglan og dreifði hóp­unum þannig að fólk var farið að mót­mæla í hverju hverfi fyrir sig, í smærri hópum. Daria seg­ist hafa verið með í fórum sínum inn­an­lands­vega­bréf, sem allir verða að ganga með á sér, en þar koma allar þínar per­sónu­legu upp­lýs­ingar fram; hvar þú býrð, hvað þú hefur átt marga eig­in­menn, hvað þú átt mörg börn og fleira. „Þegar ég var í einni af mót­mæla­göng­unum var ég hand­tekin og lög­reglan kíkti í inn­an­lands­vega­bréfið og sá að ég átti son. Það var óskráð regla hjá lög­regl­unni að ef sá hand­tekni á börn, er farið aðeins mýkri höndum um hann.“ Af þeim sökum slapp hún við fang­els­is­vist.

Hún ætl­aði að taka son sinn með til Íslands, en hann er með slæman astma og sjálf er Daria með erf­iðan lungna­sjúk­dóm. „Á Íslandi var ég ekki send til lungna­sér­fræð­ings vegna sjúk­dóms míns, þótt ég hafi beðið um það í níu mán­uði. Ég er ekki að kvarta, mér líður alveg ágæt­lega núna, en ef ég fæ ekki að hitta íslenskan lækni, get ég bara sýnt sjúk­dóms­grein­ingu og gögn frá Hvíta-Rúss­landi.“ Þar koma fram þær upp­lýs­ingar að hún þurfi að forð­ast sól­ar­ljós eins og hún getur vegna sjúk­dóms­ins sark­líki (e. sarcoidosis) sem hún greind með. „Ég hugs­aði þetta þannig að ég þyrfti fyrst að koma ein hingað og þegar ég væri farin að vinna og koma mér fyrir, myndi ég fá nægan pen­ing til að fljúga syni mínum hingað. En svo fatt­aði ég, eftir að ég kom hingað, að ég hef ekki einu sinni efni á að hitta alla sér­fræði­lækn­ana sem ég þarf að hitta. Þannig að ég get ekki tekið þá áhættu að fá son minn hingað því ég hef ekki efni á astma­lyfjum handa honum, ekki á meðan ég er flótta­maður.“

Ekki öruggar í Póllandi

En af hverju geta vin­kon­urnar ekki hugsað sér að búa í Póllandi?

Daria segir það ekki mögu­legt fyrir þær, þetta snú­ist ekki um þeirra vilja. Til að mynda þjá­ist hún af sjúk­dómnum sark­líki (e. sarcoidosis) sem er, sam­kvæmt bæk­lingi Land­spít­al­ans, sjúk­dómur af óþekktum orsökum sem getur lýst sér á afar marg­vís­legan hátt. Um er að ræða bólgu sem getur komið fram í nán­ast öllum líf­færum lík­am­ans. Algeng­ast er að sjúk­dóm­ur­inn komi fram í lungum, liðum, augum, eitlum eða á húð. Sarklíki getur einnig lagst á lifur, heila og hjarta, en það er mun sjald­gæfara. Sjúk­dóm­ur­inn getur haft þau áhrif að sól­ar­ljós er hættu­legt fyrir þá sem þjást af honum, en of mikið af D-vítamínum hefur slæm áhrif á sjúk­ling­inn. Hægt er að lesa meira um sjúk­dóm­inn hér. Eins og gefur að skilja er sólin tals­vert oftar og lengur á lofti í Póllandi og öðrum löndum Austur-Evrópu en á Íslandi. Einnig er önnur ástæða fyrir því að Daria finnst hún ekki örugg í Póllandi; lög­reglu­mað­ur­inn sem hand­tók móður Dariu býr í Póllandi og hefur alla tíð verið stuðn­ings­maður Lukashen­kos, en aðeins nýlega hefur hann skipt um skoðun og er nú með­limur í félagi brott­fluttra lög­reglu­manna sem eru á móti for­set­anum og félagið hefur aðsetur í Póllandi. Daria treystir honum þó ekki, þar sem hann hefur bara nýlega skipt um skoðun.

Lækna­skýrsla frá sér­fræð­ingi í Hvíta-Rúss­landi
Þýðing á lækna­skýrsl­unni
Þýðing á lækna­skýrsl­unni
Lækna­skýrsla frá sér­fræð­ingi í Hvíta-Rúss­landi
Þýðing á lækna­skýrslu frá Hvíta-Rúss­landi

Þá hefur einnig komið fram að Alina treysti heil­brigð­is­kerf­inu hér á landi betur en því pólska, en einnig ótt­ast hún um öryggi sitt þar í landi. Ástæðan fyrir því er sú að þegar þær vin­konur komu við í Póllandi tveimur dögum áður en þær komu til Íslands, gistu þær hjá vini föður Alinu sem er þar sem póli­tískur flótta­maður. Hann var þess full­viss að fylgst væri með honum af leyni­þjón­ustu Hvíta-Rúss­lands og að búið væri að end­ur­vekja dauða­sveit­ina alræmdu.

Einnig segja þær að Pólland sé nú þegar með allt of marga flótta­menn og að þær vin­konur þurfi báðar sér­stakar með­ferðir vegna sjúk­dóma sinna og þær fengju þær ekki í Póllandi, sér­stak­lega ekki í því ástandi sem nú ríkir.

Síðasti séns

Og hvað segir Útlend­inga­stofnun varð­andi heilsu þeirra?

„Útlend­inga­stofnun hefur algjör­lega hundsað þær stað­reyndir að þær eigi við heilsu­vanda­mál að stríða. Stofn­unin hefur beitt þeim rökum að það sé mjög erfitt fyrir Alinu að fá þá aðstoð sem hún þarf frá læknum hér á landi vegna stöðu hennar sem flótta­maður,“ segir Alina og bætir við: „Lög­fræð­ingur minn hefur biðlað til Útlend­inga­stofn­unar um að taka ekki loka­á­kvörðun um mitt mál fyrr en hún hafi fengið lækn­is­vott­orð frá íslenskum lækni, en þau hafa bara hundsað þá beiðni. Nú hefur stofn­unin neitað okkur í annað skiptið um hæli, en það gerð­ist aðeins viku áður en ég átti að hitta augn­lækni.“ Afar dýrt er fyrir þær að sækja um hæli í þriðja skipti, en þá þurfa þær að borga sjálfar fyrir lög­fræð­inga, en Rauði kross­inn ákvað að borga fyrir þær í ljósi sér­stakra aðstæðna þeirra.

Þann 24. og 25. maí mæta vin­kon­urnar til fundar í Útlend­inga­stofnun þar sem þeim verður til­kynnt svar stofn­un­ar­innar við þriðju og síð­ustu beiðni þeirra um hæli á Íslandi.

Hafin er und­ir­skrifta­söfnun til stuðn­ings Alinu og Dariu, til að krefj­ast þess að þær fái að búa hér á landi. Hægt er að skrifa undir hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina