Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigríður Björk harmar atvikin en segir misskilning í umfjöllun: „Erum að leita að hættulegum manni“

Sigríður Björk harmar atvikin en segir misskilning í umfjöllun: „Erum að leita að hættulegum manni“
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir

„Það sem er í þessu til­viki, er að lög­regla er aldrei að velja þann sem eru höfð afskipti af,“ sagði rík­is­lög­reglu­stjóri á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis í morgun. Tilefni fund­ar­ins var umfjöllun um fræðslu og menntun lög­reglu­manna um fjöl­menn­ingu og for­dóma. Fund­ur­inn var hald­inn í kjöl­far atvika í apríl síð­ast­liðnum, þegar lög­regla hafði tví­vegis afskipti af 16 ára svörtum dreng þegar leitað var að stroku­fang­anum Gabríel Duane Boama.

Þurfa að fylgja ábendingum eftir

Þing­maður Pírata, Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir óskaði eftir fund­inum vegna áhyggja sem höfðu verið viðr­aðar í sam­fé­lag­inu um að hér á landi væri kyn­þátta­miðuð lög­gæsla (e. racial profil­ing).

„Við erum að fylgja eftir ábend­ingum frá almenn­ingi,“ sagði Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri, þegar hún sat fyrir svörum í upp­hafi fund­ar­ins. „Þannig að í þessu til­viki á ekki við að það sé kyn­þátta­miðuð lög­gæsla. Þetta er ein­fald­lega þannig að við erum að leita að hættu­legum manni, það koma ábend­ingar og við þurfum að fylgja þeim eftir. Við getum ekki valið úr að fylgja þeim ekki eftir vegna eðlis verk­efn­is­ins.“

Segir misskilnings hafa gætt í umfjöllun

Sigríður Björk tók það fram að hún harmi það mjög að þessi ungi drengur skyldi verða fyrir ítrek­uðu áreiti. Hún segir þó mis­skiln­ings hafa gætt í fjöl­miðlaum­fjöllun um málið. Það hafi vand­lega verið farið yfir öll mynd­bönd af atvik­unum.

„Þetta var ekki þannig að sér­sveit­ar­menn hafi ruðst inn með vopn á lofti. Þeir áttu aldrei sam­skipti við dreng­inn, ræddu aldrei við hann,“ sagði Sigríður Björk og bætti því við að lög­reglu­menn væru þjálfaðir í því að bera kennsl á fólk. Þeir hafi því séð það um leið að dreng­ur­inn var ekki sá sem leitað var að. „Þeir gengu í fyrra til­vik­inu út í enda á stræt­is­vagni, sneru við og fóru út. Þetta er engu að síður mjög „trámat­ískt“ fyrir dreng­inn. Í seinna til­vik­inu gerð­ist nákvæm­lega það sama. Það kemur lög­reglu­maður inn, byrjar að spjalla við móð­ur­ina – það er sam­tal sem er til á upp­töku.“

Lögreglu beri að hlusta á samfélagið

Sigríður Björk sagði að þrátt fyrir að ekki væri um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu að ræða væru mörg atriði í þessu umhugs­un­ar­verð. Hún lagði áherslu á að lög­reglan væri þjón­ustu­stofnun og að sem slík væri mik­il­vægt að hún hlust­aði á sam­fé­lagið sem hún þjónar.

Sigríður Björk velti því upp hvort lög­regla hefði hugs­an­lega átt að setja fram varn­að­ar­orð þegar aug­lýst var eftir Gabríel Duane. Hún sagði emb­ættið hafa rætt við for­eldra drengs­ins sem rang­lega var bent á. Hún segir lög­reglu betur í stakk búna til að meta til­felli af þessum toga eftir atburð­ina. „Það er raun­veru­lega óþol­andi að það skuli vera sak­laust ung­menni sem þarna á í hlut, sem verður fyrir þess­ari „trámat­ísku“ reynslu.“

Sigríður Björk fór yfir þá vinnu sem farið hefur fram innan lög­regl­unnar síð­ustu ár í tengslum við for­dóma, til að mynda bann við ákveðnum merkja­burði lög­reglu­manna, sem og þá vinnu sem er framundan. Hún fór yfir þá fræðslu sem lög­reglu­menn hafa fengið und­an­farið um for­dóma og hat­urs­glæpi, meðal ann­arra atriða.

Sigríður Björk sagði mik­il­vægt að efla innra eft­ir­lit með lög­reglu um allt land. Hún mælti með sam­fé­lags­legu átaki til þess að taka á hvers­dags­legum for­dómum og lagði til að þingið tæki af skarið í slíku átaki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við