Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kristján þurfti að vaka yfir vini sínum: „Ég horfði upp á besta vin minn ofskammta“

Kristján þurfti að vaka yfir vini sínum: „Ég horfði upp á besta vin minn ofskammta“
Kristján Ernir. Mynd/skjá­skot. Vísir

„Ég horfði upp á besta vin minn ofskammta, hann var að nota vímu­efni í æð þegar við vorum að gista heima hjá mér í 10. bekk. Hann grát­bað mig um að hringja ekki á sjúkra­bíl,“ segir Kristján Ernir Björg­vins­son sem var gestur Elvu Bjarkar Ágústs­dóttur sál­fræð­ings í nýjasta þætti hlað­varps­ins Poppsál­ar­innar. Kristján þurfti að vaka yfir vini sínum í von um að hann hefði þetta af. Hræðslan við jað­ar­setn­ingu og við refs­ingu hafi verið slík að þeir leit­uðu ekki eftir aðstoð.

Kristján segir í þætt­inum að hann hafi byrj­aði í neyslu aðeins þrettán ára gam­all. Hann hafi kol­fallið strax fyrir áfengi en hafi svo leitað í önnur efni sem væru auð­veld­ara að fela neyslu á en áfengi. Eftir að hafa sokkið djúpt er hann nú búinn að vera edrú í fimm ár og situr í starfs­hópi heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta.

Kristján ræðir um reynslu sína af þeirri refsi­stefnu sem nú er við lýði þegar kemur að vímu­efnum, en auk þess um áföll, skaða­minnk­un­ar­sjón­ar­mið og neyslu­skammta. Nýverið fékk Elva Björk til sín í Poppsál­ina Halldóru Mogensen, þing­mann Pírata, þar sem þær ræddu einmitt um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta.

Að mati Krist­jáns er það hrein­lega spurn­ing um líf eða dauða að fara mann­úð­legri leiðir en refsi­stefnu þegar kemur að vímu­efnum.

Veikasta fólkið er að selja

Kristján Ernir seg­ist fljótt hafa orðið háður vímu­efnum, bæði and­lega og lík­am­lega, og fjár­magn­aði neysl­una með sölu. „Það er veikasta fólkið okkar sem er að selja,“ segir hann og þessu fylgi líka aðrir glæpir.

Upphafið að end­inum hjá honum var þegar hann byrj­aði að mis­nota svokölluð ben­sólyf, róandi lyf­seð­ils­skyld lyf.

Hann segist alltaf hafa verið í sífelldum feluleik með neysluna af ótta við að verða jaðarsettur, og segist til dæmis alltaf hafa verið „tilbúinn með hreint piss“ ef það ætti að prófa hann fyrir vímuefnum.

Auðveldara að redda kókaíni en bjór

Í þætt­inum seg­ist hann vera kvíða­sjúk­lingur með ADHD og að áfengi hafi slökkt á kvíð­anum hjá honum. Hann próf­aði kanna­bis og amfetamín en þau efni gerðu ekki það sama fyrir hann og áfengið. Hann átt­aði sig á því að það gengi ekki upp að koma heim til mömmu sinnar fullur aðeins þrettán ára gam­all þannig að hann fór að leita ann­arra leiða til að deyfa kvíð­ann. „Kannski þarf ég að finna mér önnur efni sem er létt­ara að fela,“ hugs­aði hann með sér.

„Það er miklu erf­ið­ara að redda sér áfengi heldur en ólög­legum fíkni­efnum á Íslandi,“ segir hann og á þá sér­stak­lega við fyrir ung­menni sem geta ekki farið í Vín­búð­ina. Hann hafi aðeins fjórtán, fimmtán ára gam­all lent í því að geta ómögu­lega reddað sér bjór en ekk­ert mál hafi verið að verða sér úti um kókaín, jafn­vel um miðja nótt.

Léttir að vera „böstaður“

Vegna refsi­stefnu í vímu­efna­málum hér á landi veigri fólk sér oft við að leita sér aðstoðar, jafn­vel þegar mikið liggur við.

Og eftir ára­langt leik­rit og enda­lausan felu­leik segir hann að það hafi í raun verið kær­komið þegar leik­ritið gekk ekki lengur upp: „Það var léttur að vera böstaður í fyrsta skipti,“ segir hann.

Hér má hlusta á þátt­inn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ