Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Matthew McConaughey er miður sín vegna skotárásarinnar: „Þetta er faraldur sem við getum stjórnað“

Matthew McConaughey er miður sín vegna skotárásarinnar: „Þetta er faraldur sem við getum stjórnað“
Matthew McConaughey Mynd: Nathan Congleton

Texas­bú­inn og stór­leik­ar­inn Matthew McConaughey er miður sín eftir skotárás­ina sem gerð var í grunn­skóla í heimabæ hans Uvalde í Texas í gær þar sem 19 börn og þrír full­orðnir lét­ust.

Matthew skrif­aði til­finn­inga­ríka færslu á Instagram-reikn­ing sinn í nótt að íslenskum tíma, þar sem hann biðlar til landa sinna um að hjálp­ast að við að laga sam­fé­lagið.

„Eins og þið vitið öll, varð enn ein fjölda­skotárásin gerð í dag, í þetta skiptið í heimabæ mínum, Uvalde í Texas. Enn og aftur höfum við á hrylli­legan hátt, sannað að við erum að mis­takast að nota rétt­indin sem frelsi okkar gefur okkur, á ábyrgan hátt. Hið sanna ákall til aðgerða er sú að allir Amer­ík­anar horfi vel og lengi í speg­il­inn og spyrji okkur sjálf hvað sé okkar sanna gildi? Hvernig lögum við vanda­málið? Hvaða litlu per­sónu­legu fórnir getum við tekið í dag, til að varð­veita heil­brigð­ari og örugg­ari þjóð, ríki og hverfi morg­un­dags­ins? Við getum ekki and­varpað enn einu sinni, komið með afsak­anir og sætt okkur við að svona skotárásir sé eðli­legt ástand.“

Matthew hélt áfram og sagði það mjög mik­il­vægt fyrir þjóð­ina að finna sam­eig­in­legan grund­völl til að takast á við vand­ann.

„Sem Amer­ík­anar, Texas­búar, mæður og feður, er kom­inn tími fyrir okkur að end­ur­meta og end­ur­semja um það hvað við viljum og hvað við þurfum. Við verðum að end­ur­skipu­leggja gildi okkar og finna sam­eig­in­legan grund­völl ofar þessum hrotta­lega amer­íska veru­leika sem því miður er orðið að máli barn­anna okkar.“

Sagði leik­ar­inn vin­sæli að þetta sé far­aldur sem amer­ík­anar geti stjórnað.

„Þetta er far­aldur sem við getum stjórnað og það er alveg sama hvoru megin við stöndum í mál­unum, við vitum öll að við getum gert betur. Við verðum að gera betur. Aðgerða er þörf til að koma í veg fyrir að nokk­urt for­eldri þurfi að upp­lifa það sem for­eldrar í Uvalde og aðrir á undan þeim hafa þurft að þola.“

Að lokum beindi hann orðum sínum að aðstand­endum þeirra er létu lífið í skotárásinni.

„Og til þeirra sem keyrðu ást­vinum sínum í skól­ann í dag án þess að vita að þetta væri kveðju­stund: engin orð geta náð utan um né heilað tap ykkar en ef bænir geta fært ykkur huggun munum við halda þeim gang­andi.“

Ljósmynd: Nathan Congleton

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar