Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bryndís klagar Gunnar Hrafn til Landlæknis: Sökuð um falskar minningar um meint ofbeldi Fjölnis

Bryndís klagar Gunnar Hrafn til Landlæknis: Sökuð um falskar minningar um meint ofbeldi Fjölnis
Bryndís Ásmunds­dóttir Mynd: Thormar V Gunnarsson

Alls hafa tíu mæður sent kvörtun til emb­ættis Land­læknis vegna vinnu­bragða mats­manns í for­sjár­máli: Ein þeirra er Bryndís Ásmunds­dóttir, leik- og söng­kona.  Hún segir í kvörtun sinni að áður­nefndur mats­maður geri henni upp falskar minn­ingar varð­andi ofbeldi af hálfu barns­föður síns, Fjölnis Þor­geirs­sonar:

Fjölnir Þor­geirs­son

„Lýsir föður í raun sak­lausan, með vísan til fram­burðar hans, og þrátt fyrir lög­reglu­skýrslur, fram­burð vitna og vitn­is­burð ann­arrar barns­móður föður um ofbeldi.“

Ofan­talið kemur fram í til­kynn­ingu frá Líf án ofbeldis sem sagt var frá í síð­ustu viku; þar kom fram að tíu mæður hafa sent kvörtun til emb­ættis Land­læknis vegna þess sem þær ófag­leg við­brögð og „hlut­drægni sál­fræð­inga sem taka að sér hlut­verk dóm­kvaddra mats­manna; og sér­fróðra með­dóms­manna í for­sjár­málum.“

Sál­fræð­ing­arnir eru þrír tals­ins: Guðrún Odds­dóttir, Gunnar Hrafn Birg­is­son og Ragna Ólafs­dóttir. Óskað hefur verið eftir við­brögðum frá þeim vegna kvart­an­anna: Engin svör hafa borist frá þre­menn­ing­unum.

Gunnar Hrafn Birg­is­son

Afrit af kvört­un­unum tíu fylgdu til­kynn­ing­unni frá Líf á ofbeldis, sem eru bar­áttu­sam­tök mæðra og upp­kom­inna barna, sem krefj­ast þess að börn séu vernduð gegn ofbeldi í umgengnis- og for­sjár­málum. Kvörtunin, sem greint er frá hér að ofan, frá Bryndísi Ásmunds­dóttur vegna starfa Gunnars Hrafns sem mats­manns í for­sjár­máli – var send til emb­ættis land­læknis 26. ágúst í fyrra.

„Áfeng­is­saga föður er nefnd en í nið­ur­stöðu kafla er hann sagður vera edrú, án þess að neitt sé í mats­gerð sem styðji þá full­yrð­ingu og fær faðir því ólíka með­ferð hjá mats­manni sem á að vera hlut­laus fag­að­ili,“ segir í kvörtun Bryn­dísar, og telur hún mats­mann vera mjög hlut­drægan í mati sínu:

„Þá virð­ist almennt mikið gert úr mínum brestum á meðan lítið er gert úr brestum föður og mats­maður því alls ekki óhlut­drægur í mati sínu. Mats­maður svarar ekki spurn­ingum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki dreng­inn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifr­ildi sé á heim­il­inu; þrátt fyrir að í mál­inu liggi fyrir hljóð­upp­taka þar sem tveir synir föður ræða saman um fram­komu föður við þá.“

Hér að neðan má lesa í heild kvörtun Bryn­dísar vegna starfa Gunnars Hrafns:

Mats­maður er hlut­drægur í mati sínu, en þar sem aðilar fá svip­aða nið­ur­stöðu á prófum eru þær settar fram á mjög ólíkan hátt.

Nið­ur­stöður föður eru settar fram á mun jákvæð­ari hátt en nið­ur­stöður mínar, jafn­vel þó svo að nið­ur­stöður aðila séu þær sömu.

Þá virð­ist almennt mikið gert úr mínum brestum á meðan lítið er gert úr brestum föður og mats­maður því alls ekki óhlut­drægur í mati sínu.

Þá gengur mats­maður það langt að hann sest í raun í dóm­ara­sætið varð­andi ofbeldi föður gagn­vart mér þar sem hann lýsir föður í raun sak­lausan, með vísan til fram­burðar hans og þrátt fyrir lög­reglu­skýrslur, fram­burð vitna og vitn­is­burð ann­arrar barns­móður föður um ofbeldi.

Hann lætur þó ekki þar við sitja heldur gerir mér upp falskar minn­ingar um ofbeldið sem er órök­stutt með öllu og með öllu ófag­leg grein­ing þar sem falskar minn­ingar eru í besta falli umdeilt hug­tak; auk þess sem fram­burður minn um ofbeldi af hálfu barns­föður styðst við fram­burð vitna hjá lög­reglu og fram­burð ann­arrar barns­móður hans.

Ekki eru kann­aðar frá­sagnir ann­arra um ofbeldi og er alfarið skv. fram­burði mínum.litið fram­hjá fram­burði fyrrum barns­móður sem varð fyrir ofbeldi og ekki rætt við son hans sem varð fyrir ofbeldi af hans hálfu

Þá er í mats­gerð áber­andi lítið af mæli­tækjum; ekki eru not­aðir skimun­ar­listar sem mæla þung­lyndis- og kvíða­ein­kenni og heldur ekki mæli­tæki sem meta ein­kenni per­sónu­leik­arask­ana – en mats­maður leyfir sér samt sem áður að greina mig með per­sónu­leika­röskun, en til­greinir ekki hvaða per­sónu­leika­röskun ég er með.

Mats­maður túlkar mikið út frá per­sónu­leika­prófi sem er úrelt og mjög umdeilt og er ekki notað neins staðar nema í for­sjár­málum af sumum mats­mönnum. Það er ekki staðlað á Íslandi og er með mjög slakan innri áreið­an­leika. Einnig er inn­byggð kynja­skekkja á mæli­kvarða sem mælir hvort fólk sé að fegra sig á próf­inu (L-kvarði).

Varðandi neyslu þá gerir mats­maður þá ályktun að ég sé í neyslu lyfja út frá fram­burði barns­föður en lítur fram­hjá því að Barna­vernd taldi enga neyslu eða áfeng­is­neyslu í gangi hjá mér og að geð­læknir minn telji mig ekki eiga í vand­ræðum með lyfja­notkun.

Mats­maður svarar ekki spurn­ingum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki dreng­inn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifr­ildi sé á heim­il­inu, þrátt fyrir að í mál­inu liggi fyrir hljóð­upp­taka þar sem tveir synir föður ræða saman um fram­komu föður við þá; aðeins er rætt við dreng í gegnum föður og á heim­ili hans, en ekki á heim­ili mínu sem er jafn­framt lög­heim­ili drengs­ins.

Þá fékk ég ekki tæki­færi til þess að fara yfir og stað­festa þær upp­lýs­ingar sem fram koma í mats­gerð líkt og stað­hæft er í mat­inu og hafði hann rangt eftir mér í mats­gerð­inni. Þrátt fyrir að hafa leit­ast eftir því sjálf í tölvu­pósti.

Auk þess sem að ein­hverju leyti er rangt haft eftir þeim aðilum sem mats­maður ræddi við vegna mats­ins.

Þá var ekk­ert rætt við skóla barn­ins.

Ekki sótt­ist mats­maður eftir nýj­ustu gögnum frá barna­vernd­ar­nefnd, heldur var aðeins stuðst við gömul gögn þrátt fyrir vit­neskju um að nýleg gögn væri að vænta.

Fram­kvæmd mats­ins var ekki í sam­ræmi við góða starfs­hætti þar sem ekki var tekið til­lit til veik­inda minna og ekki tekið til­lit til þessa álags sem fylgdi því að fara í gegnum svona mat. Þar sem mats­mað­ur­inn var á mínu heim­ili í 9 klst. þar sem ég var látin þreyta próf í fram­haldi af löngu sam­tali við mats­mann, þar sem farið var yfir mjög erf­iða sögu, þar á meðal erf­iða æsku og ofbeldi af hálfu maka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ