Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eftirlitsmyndavélar skiptu sköpum í nauðgunardómi: „Ég sést rása þar sem ég geng með honum burt“

Nýverið var karl­maður dæmdur fyrir nauðgun í Lands­rétti, sem átti sér stað árið 2019. Lands­réttur stað­festi tveggja og hálfs árs fang­els­is­dóm hér­aðs­dóms yfir mann­inum fyrir gróft kyn­ferð­is­brot gegn konu sem gat enga björg sér veitt sökum ölv­unar og svefn­drunga.

Maðurinn heitir Augustin Dufatanye, en er betur þekktur undir nafn­inu Auggie Duffy. Hann gengur enn laus og erfitt hefur reynst fyrir brota­þola hans að fá upp­lýs­ingar er lúta að dómnum og yfir­vof­andi fang­els­is­vist. Hún seg­ist upp­lifa mik­inn ótta við það að geta rek­ist á mann­inn sem braut á henni hvar og hvenær sem er. Samkvæmd heim­ildum Mannlífs hefur Auggie Duffy nú áfrýjað dómnum til Hæsta­réttar.

Þriggja ára barátta

Þegar blaða­maður Mannlífs sest niður með kon­unni sem Auggie Duffy var dæmdur fyrir að brjóta á kyn­ferð­is­lega, er strax ljóst að um er að ræða konu upp­fulla af bar­áttu­vilja, þrátt fyrir þá þrekraun sem hún hefur þurft að ganga í gegnum. Þrekraun sem enn hefur ekki tekið enda. 

Hún seg­ist vilja segja sögu sína til þess að vara sem flestar konur við mann­inum sem um ræðir. 

Síðustu þrjú ár í lífi kon­unnar hafa ein­kennst af bar­áttu í gegnum lög­reglu­rann­sókn og tvö dóm­stig, með allri þeirri óvissu, streitu og álagi sem því fylgir. Hún lýsir því hvernig henni þyki kerfið ekki styðja við þolendur og upp­lýs­inga­leysið sem fylgi því að vera vitni í sínu eigin nauðg­un­ar­máli valdi mik­illi sál­ar­ang­ist og óör­yggi.

Kvöldið sem breytti öllu

Kvöldið sem breytti lífi kon­unnar til fram­búðar var í mars árið 2019. Henni hafði verið boðið í mat og drykk með sam­starfs­fé­laga sínum frá því klukkan 12 um dag­inn. Allan dag­inn bauð sam­starfs­fé­lag­inn upp á drykki og þau skemmtu sér vel. 

Konan fór mjög sjaldan út að skemmta sér, þar sem hún átti tvö ung börn á þessum tíma. Þennan dag átti því að sletta ærlega úr klauf­unum og njóta þess út í ystu æsar. Þegar liðið var á kvöldið var konan orðin mjög ölvuð og hafði flakkað með sam­starfs­manni sínum á milli bara, þar sem þau hittu vini og vanda­menn. 

Þau voru stödd á bar í miðbæ Reykja­víkur þegar hún hitti Auggie Duffy í fyrsta skipti, mann­inn sem átti eftir að vera dæmdur fyrir að brjóta gróf­lega á henni kyn­ferð­is­lega um nótt­ina. 

Augustin Dufatanye, eða Auggie Duffy.

Eftirlitsmyndavélar skiptu sköpum

Upptökur eft­ir­lits­mynda­véla úr miðbæ Reykja­víkur reynd­ust meðal mik­il­vægra gagna sem leiddu til sak­fell­ingar Auggies. Þær sýna að fyrsta skipti sem konan átti sam­skipti við hann hafi verið upp úr klukkan 22 um kvöldið á barnum. Þá var hún aug­ljós­lega orðin mjög drukkin. Hann var ein­sam­all.

Upptökur sýna kon­una ganga um, dansa og tala við fólk á barnum. Hún leggur tösk­una sína á gólfið, nálægt stól þar sem Auggie situr. Það sýnir hve ringluð hún er orðin á þessum tíma­punkti, að hún er nokkrum sek­úndum síðar búin að gleyma því hvað hún gerði við tösk­una. 

„Ég er þarna gang­andi um að leita, þegar hann grípur í mig og sýnir mér tösk­una. Ég tala þá við hann í smá stund, því hann er nátt­úr­lega búinn að aðstoða mig þarna. Samkvæmt bæði upp­tök­unum og bar­þjón­inum á staðnum var ég mjög drukkin, spjallandi við alla og svo­leiðis.“

Á upp­tök­unum sést konan síðan taka tösk­una sína, fara út og yfir göt­una á annan bar.

„Ég fer á þann bar, vegna þess að vinur minn var að vinna þar. Hann sést síðan elta mig þangað. Ég panta mér vín­glas á barnum og svo er hann aug­ljós­lega kom­inn þarna til mín, svo ég panta viskí handa honum. Þetta voru einu drykkirnir sem ég pant­aði yfir allan þennan dag. Fram að þessu hafði sam­starfs­maður minn greitt fyrir allt.“

Reyndi að fá hana burt með sér

Bar­þjónn­inn á seinni barnum lýsti því síðar fyrir kon­unni og dómnum að á þessum tíma­punkti hefði Auggie þegar verið far­inn að reyna að fá hana með sér í burtu frá vinum hennar.

„En ég var mjög ákveðin og sagð­ist ekki ætla að gera neitt slíkt.“

Eftir þetta fór konan aftur á fyrri bar­inn og Auggie síðan ein­hverju síðar. Hún segir að ein­hver tími hafi liðið þar sem hún var á barnum, en að svo í kringum klukkan eitt eftir mið­nætti sjá­ist hún á upp­tök­unum reyna með erf­ið­is­munum að klæða sig í kápuna sína. Hún talar við yfir­mann sinn og sést því næst yfir­gefa bar­inn.

„Ég verð aug­ljós­lega mjög ringluð þarna fyrir utan, held enn þá á drykk og kem síðan aftur inn á bar­inn.“

Hún seg­ist ekki muna neitt af þessum atburðum, heldur sé þetta eitt­hvað sem hún hafi séð á örygg­is­mynda­vél­unum, sem og hlutir sem lög­reglan hafi sagt henni frá.

„Síðan fer ég aftur yfir á seinni bar­inn og það sést hvað ég er ölvuð, ég missi tösk­una mína, hrasa út um allt og svo­leiðis. Síðan fer ég út aftur vegna þess að vinur minn bendir mér á leigu­bíl og segir mér að taka hann.“

Konan nær aug­ljós­lega ekki að koma sér í leigu­bíl­inn. Þá sést hvar Auggie kemur út af fyrri barnum og gengur til hennar. 

„Hann kemur og gefur mér fimmu. Þarna er hann búinn að vinna und­ir­bún­ings­vinn­una með því að kynn­ast mér örlítið, bara nóg til þess að hann sé ekki alveg ókunn­ugur. Þannig að hann sé góði gæinn.“

Auggie segir eitt­hvað við kon­una og eftir það fara þau á þriðja bar­inn, sem konan seg­ist ann­ars aldrei hafa farið á. 

Konan sést koma út af barnum, ráf­andi fram og til baka, talandi við hinn og þennan. Hún sést síðan fara aftur inn á bar­inn en henni er vísað út. 

„Þá kemur hann til mín og segir eitt­hvað við mig. Ég sést rása þar sem ég geng með honum burt. Eftir þetta hverfum við úr sjón­máli. Við vitum í raun ekki nákvæm­lega hvað ger­ist eftir það.“

Greinina, sem inni­heldur við­tal við brota­þola og frá­sagnir ann­arra heim­ild­ar­manna tengdum saka­mann­inum, má í heild sinni lesa í nýjasta tíma­riti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ