Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ströng lög og reglur um sjúkraskrár: Brot geta varðað allt að þriggja ára fangelsi

Ströng lög og reglur um sjúkraskrár: Brot geta varðað allt að þriggja ára fangelsi

Skýr lög og reglur gilda um sjúkra­skrár ein­tak­linga á Íslandi. Til þess að mega fara inn í sjúkra­skrá ein­stak­linga þarf að liggja að baki ríkt og sann­an­legt erindi. Það telst gróft brot á per­sónu­vernd og einka­lífi fólks ef farið er inn í sjúkra­skrá þess án þess að heim­ild sé fyrir hendi.

Hjónin Gunnar og Hlédís lýstu því á dög­unum í við­tali hvernig þau teldu að farið hefði verið inn í sjúkra­skrár þeirra ótal sinnum með ólög­mætum hætti. Þau segja mikið magn upp­flett­inga vera í nafni heil­brigð­is­starfs­manna sem aldrei hafi ann­ast þau. Ef rétt reyn­ist myndi það telj­ast gróft brot á lögum um sjúkra­skrár.

Þurfa að koma að meðferð viðkomandi

Einungis þeir heil­brigð­is­starfs­menn sem sann­ar­lega ann­ast ein­stak­ling á heil­brigð­is­stofnun, eða koma að með­ferð hans með ein­hverjum hætti og þurfa á sjúkra­skrár­upp­lýs­ingum hans að halda vegna þessa, hafa heim­ild til þess að fara inn í sjúkra­skrá við­kom­andi. Þeir heil­brigð­is­starfs­menn þurfa að geta fært á það sönnur að hafa átt erindi inn í sjúkra­skrá þess ein­stak­lings sem um ræðir.

Aðrir starfs­menn eða nemar í starfs­námi í heil­brigð­is­vís­indum, sem und­ir­geng­ist hafa sam­bæri­lega trún­aðar- og þagn­ar­skyldu og heil­brigð­is­starfs­menn sem koma að með­ferð sjúk­lings, geta fengið heim­ild til aðgangs að sjúkra­skrá hans að því marki sem nauð­syn­legt er vegna starfa þeirra aðila í þágu sjúk­lings­ins.

Ef ekki er unnt að sanna rétt­mætt erindi heil­brigð­is­starfs­manns­ins inn í sjúkra­skrána stendur við­kom­andi frammi fyrir því að hafa hugs­an­lega gerst brot­legur gagn­vart sjúk­lingnum.

Það er Land­læknir sem hefur eft­ir­lit með því að ákvæði laga um sjúkra­skrár séu virt. Per­sónu­vernd sér um eft­ir­lit með öryggi og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í sjúkra­skrám.

Alma Möller, land­læknir. Mynd/Land­lækn­is­emb­ættið

Landlæknir tekur slík mál alvarlega

Mannlíf sendi á dög­unum emb­ætti land­læknis nokkrar spurn­ingar í tengslum við lög og reglur um sjúkra­skrár. Meðal ann­ars var spurt hvernig það horfi við emb­ætti land­læknis ef ótal heil­brigð­is­starfs­menn virð­ist hafa farið inn í sjúkra­skrá ein­stak­lings, án þess að eiga þangað erindi og án þess að hafa ann­ast við­kom­andi sjúk­ling eða starfað á þeim deildum þar sem við­kom­andi hafi fengið umönnun.

Í svari Land­læknis segir að slíkt sé með öllu óheim­ilt og að emb­ættið taki öll slík mál sem því ber­ist alvar­lega; rann­saki þau og beiti við­ur­lögum í sam­ræmi við lögin eftir því sem við eigi um alvar­leika þeirra brota sem um ræði.

Ef rann­sókn leiðir í ljós að veru­legar líkur séu á því að upp­flett­ingar í sjúkra­skrá hafi brotið gegn per­sónu­vernd­ar­hags­munum sjúk­lings skal brot kært til lög­reglu.

Brot gegn ákvæðum laga um sjúkra­skrár og þeim reglum sem settar eru í sam­ræmi við þau geta varðað sektum eða fang­elsi allt að þremur árum.

Ef rétt reyn­ist, að ólög­mætar upp­flett­ingar í sjúkra­skrám þeirra hjóna séu með þeim hætti sem þau hafa lýst og sýnt Mannlífi á gögnum, er því um gróft lög­brot gegn þeim að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ