Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Indverskum sýnanda á Icefish 2022 bannað að koma: „Ekki að hjálpa til við að skapa betra traust“

Indverskum sýnanda á Icefish 2022 bannað að koma: „Ekki að hjálpa til við að skapa betra traust“

Útlend­inga­stofnun hefur hafnað erlendum sýn­anda á sjáv­ar­ú­vegs­sýn­ing­unni Icefish 2022 um vega­bréfs­á­ritun.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur starfs­mönnum í Ind­versku fyr­ir­tæki verið meinað um vega­bréfs­á­ritun. Unnið hefur verið að und­ir­bún­ingi Icefish frá 2017 og verður hún haldin dag­anna 8. til 10. júní næst­kom­andi. Ind­verska fyr­ir­tækið er með bók­aðan bás á sýn­ing­unni, hefur greitt fyrir þátt­tök­una og er búið að kaupa flug­miða fyrir fjóra starfs­menn til að setja upp og vera á básnum, sem og bóka hótel fyrir mann­skap­inn.

Fyr­ir­tækið byrj­aði vega­bréfs­á­rit­un­ar­ferlið hjá Útlend­inga­stofnun í febr­úar 2022 og ætl­aði sér að fljúga í dag, 5. júní til Íslands og setja upp sinn bás. Þann 3. júní fá þeir til­kynn­ingu frá Útlend­inga­stofnun um að umsókn­inni þeirra hafi verið hafnað, tveimur dögum fyrir flugið. Eina ástæðan sem gefin er upp hjá Útlend­inga­stofnun er að það leiki vafi á um rétt­mæti umsókn­ar­innar. Það er þrátt fyrir að Útlend­inga­stofnun óskaði eftir og fékk stað­fest­ingu þess efnis að fyr­ir­tækið væri skráð á Icefish 2022, búið að greiða fyrir þátt­töku sína og hefði verið við­skipta­vinur Icefish 2022 frá árinu 2018.

Icefish sýn­ingin er alþjóð­leg sýn­ing sem hefur verið haldin hér á landi frá árinu 1984. Á sýn­ing­unni verða um 200 fyr­ir­tæki og er um 40% af þeim erlendir sýnendur sem koma víðs­vegar að utan Íslands til stunda við­skipti.

Samkvæmt Ómari Má Jónssyni hjá Icefish er þetta í fyrsta skipti sem slíkt ger­ist í sögu sýn­ing­ar­innar að sýn­anda er hafnað inn í landið til að taka þátt í að skapa og efla sín við­skipta­tengsl á íslenskri grundu.

„Þetta er baga­legt þar sem mikil vinna hefur farið í að byggja upp sýn­ing­una með sýnendum og þetta er ekki að hjálpa til við að skapa betra traust og trú­verð­ug­leika til að eiga við­skipti á Íslandi við íslensk fyr­ir­tæki,“ sagði Ómar í sam­tali við Mannlíf.

Bætti hann því við að vekja þurfi athygli á stöð­unni og „hvort við séum í raun farin að þrengja að eðli­legum við­skipta­sam­böndum milli landa vegna Schengen-sam­starfs­ins, eða hvort Útlend­inga­stofnun sé að fara fram úr sér að túlka Schengen sam­starfið.“

Ekki náð­ist í Útlend­inga­stofnun í dag vegna helg­ar­lok­unar.

Hér má sjá höfnun Útlend­inga­stofn­unar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ