Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leigumarkaðurinn: „Leigendur á Íslandi búa við hvað verstu kjör í Evrópu…“

Leigumarkaðurinn: „Leigendur á Íslandi búa við hvað verstu kjör í Evrópu…“

„Leig­endur á Íslandi búa við hvað verstu kjör í Evrópu…“ segir Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður sam­taka leig­enda á Íslandi, í við­tali hjá Heimi Karls­syni og Lilju Katrínu Gunn­ars­dóttur, í Bítinu í morgun.

Óstöð­ug­leiki og sífelldar hækk­anir ein­kenna íslenskan leigu­markað, en mark­að­ur­inn telur um 35 til 40 þús­und heim­ili. Samtökin berj­ast fyrir bættum kjörum og að ríki og sveita­fé­lög sinni skyldum sínum.

„Ástæða þess að fast­eigna­verð er að hækka svona mikið er út af því að leigu­mark­að­ur­inn er að skila mik­illi ávöxtun,“ segir Guð­mundur og bendir á að flestir kaup­endur á íbúð­ar­hús­næði séu fjár­festar.

Í meiri­hluta­sátt­mála Sam­fylk­ing­ar­innar, Fram­sóknar, Pírata og Við­reisnar, sem kynntur var í gær, er hvergi minnst á kjör eða úrlausnir fyrir íslenska leigj­endur.

Skýrt í lögum

„Skyldur sveita­fé­lag­anna er að útvega hús­næði á við­ráð­an­legu verði, það stendur í lög­unum, þarna hafa þau bara svik­ist um sitt hlut­verk og skapað þessar aðstæður á leigu­mark­aði,“ segir Guð­mundur.

Í 45. grein í 12. Kafla um hús­næð­is­mál í lögum um félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga, segir:

Sveit­ar­stjórnir skulu, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja fram­boð af leigu­hús­næði, félags­legu kaup­leigu­hús­næði og/eða félags­legum eignar­í­búðum handa þeim fjöl­skyldum og ein­stak­lingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir hús­næði sökum lágra launa, þungrar fram­færslu­byrðar eða ann­arra félags­legra aðstæðna.

„Við verðum að átta okkur á því að á almennum íbúða­mark­aði, leigu­mark­aði í Reykja­vík, er engin óhagn­að­ar­drifin íbúð – ekki ein!“ segir Guð­mundur og bætir við að þau sam­tök sem kalla sig óhagn­að­ar­drifin stand­ist ekki skoðun.

„Í Danmörku er hug­takið óhagn­að­ar­drifið skil­greint þannig að bara er tekið mið af upp­runa­legum  bygg­ing­ar­kostn­aði […] Félags­bú­staðir sem skila millj­örðum í hagnað gætu lækkað húsa­leig­una hjá sér um 25% ef þeir myndu raun­veru­lega vera óhagn­að­ar­drifnir.“

 Vonbrigði til vinstri

Á fundi Samtaka leigj­enda á Íslandi með öllum sveit­ar­stjórn­ar­flokk­unum rétt fyrir kosn­ingar kom í ljós að Píratar og Viðreisn voru hvað mest til hægri hvað varð­aði hús­næð­is­málin. „Þessi tveir flokkar settu sig alfarið upp á móti því að verja leig­endur fyrir sjálftöku á leigu­mark­aði, með því að setja ein­hverjar tak­mark­anir á hversu mikið leigan mætti hækka,“ sagði Guð­mundur. „Flokk­arnir vildu meina að mark­að­ur­inn eigi og muni leysa vand­ann.“

Þá vill Guð­mundur meina að hækk­anir á leigu­verði sé bein afleið­ing van­rækslu fyrrum meiri­hluta.

Fundað með forsætisráðherra

Krafa leigj­enda er hávær en svörin engin frá meiri­hlut­anum. Samtökin ganga til fundar klukkan 13 með for­sæt­is­ráð­herra, Katrínu Jak­obs­dóttur, sem árið 2019 skrif­aði undir þá kröfu í lífs­kjara­samn­ing­unum að komið yrði á leigu­bremsu sem tekur á árlegum hækk­unum.

„Bremsan þýðir að ekki mega hækka leigu umfram eitt­hvað ákveðið hlut­fall á hverju ári,“ útskýrir Guð­mundur. „Fram­boðs­skort­ur­inn er heima­til­bú­inn og með­vit­aðar aðstæður sem búnar eru til af sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu…“

„35 til 40 þús­und leig­endur borða erfitt í morg­un­mat. […] Nú er komið að leig­endum – eigum inni bæði sann­girni og leið­rétt­ingu.“ segir Guð­mundur í lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ