Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segja barnamálaráðherra hafa vitað af ofbeldinu: „Faðir neitaði að leyfa henni að ná í eigur sínar“

Segja barnamálaráðherra hafa vitað af ofbeldinu: „Faðir neitaði að leyfa henni að ná í eigur sínar“

Í gær birtu sam­tökin Líf án ofbeldis færslu, þar sem farið er yfir atburða­rás í tengslum við mál, þar sem barn var fjar­lægt af lög­reglu og full­trúa sýslu­manns á Barna­spít­al­anum í síð­ustu viku. Barnið er sagt hafa verið í lyfja­gjöf á spít­al­anum, þegar það var fjar­lægt í þeim til­gangi að fram­fylgja dóms­úr­skurði um lög­heim­ili barns­ins hjá föður. Barninu var að sögn komið fyrir hjá honum. Móðir barns­ins og eldri bróðir þess hafa sakað föð­ur­inn um ofbeldi, meðal ann­ars í við­tölum í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur, sjá hér: Helga Sif og Gabrí­ela Bryn­dís og Pat­rek­ur.

Í færsl­unni segja sam­tökin að sitj­andi barna­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason, hafi verið nágranni fjöl­skyld­unnar og vitað af meintu ofbeldi, áður en móð­irin yfir­gaf föð­ur­inn með börnin með­ferðis.

„Þegar móðir barns­ins sem tekið var með valdi á Barna­spít­al­anum, Helga Sif, yfir­gaf föður barns­ins, hafði hún ein­gungis með­ferðis lítið af fötum fyrir sig og börnin. Faðir neit­aði að leyfa henni að ná í eigur sínar nema hún kæmi ein og hann væri á staðnum,“ segir í færsl­unni.

„Móðir og börn fengu því ekki eigur sínar mán­uðum saman, en nágranni þeirra, Ásmundur Einar Daðason, sitj­andi barna­mála­ráð­herra, sem bjó í næsta húsi og vissi af ofbeld­inu, hringdi í frænku Helgu Sifjar til að láta hana vita að fað­ir­inn væri með flutn­inga­bíl hjá hús­inu að flytja eigur þeirra á annan stað.“

Ásmundur Einar Daðason

Segja móður hafa sótt eigur með lögreglufylgd

Samtökin segja mennta- og barna­mála­ráðu­neytið hafa haft vit­neskju um málið áður en ráð­ist var í aðgerð­irnar á Land­spít­ala. Ekki hafi þó feng­ist við­brögð frá ráðu­neyt­inu vegna þeirra.

„Bjark­ar­hlíð aðstoð­aði Helgu Sif að sækja eigur þeirra, og óskaði eftir lög­reglu­fylgd í Borg­ar­nesi. Lög­reglan í Borg­ar­nesi, sem faðir hefur sterk tengsl við vegna sam­eig­in­legs áhuga á vopnum, hafn­aði beiðn­inni um aðstoð, svo úr varð að lög­reglan í Reykja­vík keyrði alla leið í Borg­ar­nes og fór inn á heim­ilið ásamt Helgu Sif og starfs­fólki Bjark­ar­hlíðar. Flestar eigur þeirra voru þá horfnar, en mað­ur­inn átti erfitt með að láta Helgu Sif í friði og þurfti lög­regla ítrekað að færa hann frá. Álagið var svo mikið að hún þurfti tvisvar að fara inn á kló­sett og kasta upp meðan á þessu stóð.“

Færsl­unni fylgir mynd sem sögð er af hús­gögnum stjúp­sonar manns­ins, sem er sami drengur og hefur sakað mann­inn um ofbeldi, bæði gegn sér og móður sinni. Faðirinn er sagður hafa sett hús­gögnin út á stétt.

„Búið var að rústa þeim. Einnig fylgdi með kassi með fötum barn­anna í bland við gler­brot.“

Sagði allra skilyrða gætt í aðgerðunum

Þegar athygli hafði verið vakin á flutn­ingum barns­ins á Barna­spít­ala á sam­fé­lags­miðlum og málið komið í fréttir, sagði Sigríður Krist­ins­dóttir, sýslu­maður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í sam­tali við Frétta­blaðið að verið væri að fram­fylgja úrskurði dóm­stóla og að allra skil­yrða væri gætt.

„Við erum með verk­lags­regl­ur um það hvern­ig skal far­ið þeg­ar svon­a mál koma á okk­ar borð og það er hald­in fund­ur með barn­a­vernd­ar­nefnd og lög­regl­u og svo far­ið á stað­inn og ekk­ert gert sem ekki sam­ræm­ist því sem á að gera þarn­a,“ sagði Sig­ríður.

Í færslu Líf án ofbeldis vegna máls­ins í síð­ustu viku sagði meðal ann­ars:

„Með aðgerð­inni ætla yfir­völd að knýja fram úrskurð um lög­heim­ili barns hjá föður gegn vilja barns­ins. Rök­studdur grunur er um langvar­andi and­legt og lík­am­legt ofbeldi föð­ur­ins gagn­vart börn­unum og móður þeirra. Fram­kvæmd aðfarar í and­stöðu við vilja barns­ins er án und­an­tekn­ingar til þess fallin að skapa gríð­ar­legt til­finn­inga­legt álag fyrir barnið sem er lang­veikt og hefur ávallt reitt sig alfarið á umönnun móður sinnar. Mikil hætta er á að barnið hljóti óbæt­an­legan skaða af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ