Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: Lykilatriði að missa ekki sjónar á því sem við gerum best

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: Lykilatriði að missa ekki sjónar á því sem við gerum best
Bogi Nils Bogason

Icelandair er 85 ára.

„Við fögn­uðum á föstu­dag­inn með starfs­fólki okkar á öllum starfs­stöðvum, bæði hér heima og erlendis, og svo að sjálf­sögðu með við­skipta­vinum okkar. Allir far­þegar sem flugu með félag­inu á afmæl­is­dag­inn fengu 1937 vild­ar­punkta að gjöf,“ segir Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair.

„Við þessi tíma­mót er gaman að rifja upp sög­una á sama tíma og við horfum fram á veg­inn. Við höfum haldið merkjum Íslands á lofti um allan heim í ára­tugi en félagið á rætur sínar að rekja til stofn­unar Flug­fé­lags Akur­eyrar þann 3. júní 1937. Nafni félags­ins var síðar breytt í Flug­fé­lag Íslands sem seinna sam­ein­að­ist öðru mögn­uðu flug­fé­lagi sem var stofnað hér á landi árið 1944, Loft­leiðum. Það voru miklir frum­kvöðlar í far­ar­broddi á fyrstu dögum og árum flugs­ins og það má segja að þessi mikla ástríða fyrir flug­inu, kraftur og frum­kvöðla­andi hafi ein­kennt félagið æ síðan og gerir enn.

Með þessu höfum við lagt mikið af mörkum til íslensks sam­fé­lags og efna­hags.

Svo hófst mikið tíma­bil upp­bygg­ingar þar sem leiða­kerfi okkar milli Evrópu og Norður-Ameríku með Ísland sem heima­höfn var fest í sessi. Það er hjartað í starf­semi okkar og grund­völlur öfl­ugra teng­inga til, frá, um og innan Íslands. Það er jafn­framt for­senda þess að við gátum byggt upp öfl­uga ferða­þjón­ustu hér á landi allan árs­ins hring. Þar vorum við í far­ar­broddi og fjár­festum bæði í innviðum og nýsköpun sem og byggðum upp hágæða hótel um allt land. Með þessu höfum við lagt mikið af mörkum til íslensks sam­fé­lags og efna­hags. Við erum á fleygi­ferð inn í fram­tíð­ina og ætlum svo sann­ar­lega að láta til okkar taka í fram­tíð­ar­þróun flugs­ins næstu 85 árin.“

Fagna allri samkeppni

Sam­keppnin er mikil og starfar Icelandair í miklu sam­keppn­isum­hverfi.

„Hingað til Íslands fljúga um 25 flug­fé­lög yfir sum­ar­tím­ann og um 15 yfir vetr­ar­tím­ann. Þá erum við í sam­keppni við helstu flug­fé­lög á Vest­ur­löndum í flugi yfir Atl­ants­hafið milli Evrópu og Norður-Ameríku. Við fögnum að sjálf­sögðu allri sam­keppni hvort sem hún er inn­lend eða alþjóð­leg. Lyk­il­at­riðið er að missa ekki sjónar á því sem við gerum best og ein­blína á að standa okkur gagn­vart við­skipta­vinum okkar og veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu.“

Heims­far­ald­ur­inn hafið mikil áhrif á mörg fyr­ir­tæki og þar á meðal Icelandair.

Far­þega­fjöld­inn snar­minnk­aði á skömmum tíma.

„Þær sam­komu- og ferða­tak­mark­anir sem settar voru á í flestum löndum heims­ins höfðu auð­vitað mjög mikil áhrif á öll flug­fé­lög. Far­þega­fjöld­inn snar­minnk­aði á skömmum tíma og við héldum ein­ungis út lág­marks­starf­semi til að tryggja teng­ingu lands­ins við umheim­inn. Þess má þó geta að eft­ir­spurn eftir vöru­flutn­ingum var alltaf mikil og við fluttum meðal ann­ars lækn­inga­vörur til Íslands og ann­arra landa. Við höfum gengið í gegnum ýmis­legt á þessum 85 árum sem félagið hefur verið starf­andi, bæði mik­inn upp­gang en einnig nið­ur­sveiflur. Hins vegar hefur það verið þannig í sögu­legu sam­hengi að flugið hefur alltaf náð sér á strik á ný eftir tíma­bundnar nið­ur­sveiflur. Nú erum við í mik­illi sókn og þannig hefur flug­fram­boðið okkar auk­ist jafnt og þétt frá síð­asta sumri. Við fljúgum til 44 áfanga­staða í Evrópu og Norður Ameríku í sumar auk áfanga­staða okkar hér inn­an­lands. Þá höfum við þétt rað­irnar á ný í takt við aukin umsvif og ráðið inn 1.200 starfs­menn á und­an­förnum mán­uðum og erum við þá 3.600 tals­ins. Það hefur verið mjög ánægju­legt að taka aftur á móti sam­starfs­fólki okkar til starfa og einnig nýju fólki sem við hlökkum til að starfa með.“

Aukin sjálfbærni

Hver eru sókn­ar­færi Icelandair – tæki­færi – en líka hindr­anir?

„Við sjáum mikil tæki­færi í leiða­kerfi félags­ins sem er kjarn­inn í starf­semi okkar. Það gerir okkur kleift að bjóða öfl­ugar teng­ingar til, frá, um og innan Íslands. Þá sjáum við einnig mikil tæki­færi í frakt­flutn­ingum en það er einnig mik­il­vægur hluti af starf­semi okkar; til dæmis að flytja ferskan fisk hratt og örugg­lega á fjöl­breytta mark­aði beggja vegna Atl­ants­hafs­ins. Við erum sveigj­an­leg og tökum ákvarð­anir hratt og getum þannig gripið tæki­færi sem gef­ast í því síbreyti­lega umhverfi sem við störfum í. Það er jafn­framt áskorun að starfa í slíku umhverfi þar sem ýmsir utan­að­kom­andi þættir og oft óvið­búnir geta haft áhrif á starf­semi okkar svo sem veð­ur­far, heims­far­aldur eins og við höfum nýlega gengið í gegnum og svo til dæmis hækkun elds­neyt­is­verðs sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þess vegna er sveigj­an­leik­inn svo mik­il­vægur og að vera ávallt á tánum.

Ný tæki­færi fyrir Ísland sem mið­stöð umhverf­is­væns flugs á Norður-Atl­ants­hafi.

Til við­bótar þá tel ég að mikil sókn­ar­færi felist í því að vinna að auk­inni sjálf­bærni í flugi. Við höfum sett okkur metn­að­ar­full mark­mið á þessu sviði og erum þegar að taka mik­il­væg skref í þá átt til dæmis með end­ur­nýjun flot­ans hjá okkur í spar­neytn­ari og þar með umhverf­is­vænni vélar. Þetta er spenn­andi veg­ferð og við trúum því að með orku­skiptum í flugi skap­ist ný tæki­færi fyrir Ísland sem mið­stöð umhverf­is­væns flugs á Norður-Atl­ants­hafi.“

Mikil ferðatíðni

Icelandair flýgur í sumar til 44 áfanga­staða, 30 í Evrópu og 14 í Norður-Ameríku. „Við höfum hafið flug á ný til fjöl­margra áfanga­staða sem voru í dvala í heims­far­aldr­inum en einnig kynnum við til sög­unnar þrjá nýja áfanga­staði, Raleigh-Durham í Norður-Karólínu, Róm og Nice. Við hófum flug til Raleigh-Durham í maí en Róm og Nice bæt­ast við leiða­kerfið í júlí. Þetta eru spenn­andi áfanga­staðir og við­tökur hafa verið mjög góðar. Það er sér­lega mikil spenna í kringum Raleigh-Durham en fyrir eru litlar teng­ingar frá Norður-Karólínu til Evrópu og hefur þessi nýja flug­leið því ein­faldað ferða­lag fjölda íbúa svæð­is­ins bæði til Íslands og áfram til 25 áfanga­staða okkar í Evrópu. Við erum jafn­framt að bjóða upp á mjög mikla ferða­tíðni á helstu áfanga­staði okkar. Þar má nefna allt að fimm flug á dag til Kaup­manna­hafnar, þrjú flug á dag til Boston, New York og Parísar og tvö á dag til London, Óslóar, Stokk­hólms og Amster­dam. Þannig bjóðum við við­skipta­vinum okkar mik­inn sveigj­an­leika í ferða­tíma innan dags­ins til þess­ara vin­sælu áfanga­staða.“

85 ára félagið er að langstærstum hluta í eigu íslenskra aðila eða ríf­lega 80%. „Stærsti erlendi hlut­hafi félags­ins er Bain Capital sem fer með tæp­lega 15% hlut í félag­inu. Innkoma þeirra fyrir ári síðan var mjög mik­il­væg en hún jók fjár­hags­legt bol­magn félags­ins á krefj­andi tímum á flug­mörk­uðum. Þá er mik­ill akkur í því að fá inn erlenda fjár­festa sem hafa mikla þekk­ingu á við­fangs­efn­inu eins og í til­felli Bain Capital sem sér­hæfir sig meðal ann­ars í fjár­fest­ingum í flugi og ferða­þjón­ustu og koma því með mik­il­væga reynslu og þekk­ingu að borð­inu.“

Skotland í uppáhaldi

Bogi Nils hóf störf hjá Icelandair sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála árið 2008 og tók svo við starfi for­stjóra í ágúst 2018. „Það sem ég hef haft að leið­ar­ljósi í gegnum störf mín er að þetta snýst allt um fólk. Án frá­bærs starfs­fólks og við­skipta­vina væri lítið um að vera hjá Icelandair. Áherslur mínar fel­ast því í því að velja rétta teymið með mér og treysta því til góðra verka. Og það sem stendur upp úr er fólkið sem ég hef starfað með. Icelandair-and­inn er ein­stakur og fólk til­búið að leggja mikið á sig til að finna lausnir í öllum málum, fyrst og fremst til að stuðla að ánægju­legu og þægi­legu ferða­lagi fyrir við­skipta­vini okkar.“

Áður en Bogi Nils hóf störf hjá Icelandair starf­aði hann sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá Askar Capital frá árinu 2007 og fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá Icelandic Group frá 2004 til 2006. „Fyrir þann tíma var ég með­eig­andi og end­ur­skoð­andi hjá KPMG frá 1993 til árs­ins 2004. Ég er við­skipta­fræð­ingur að mennt frá Háskóla Ísland og lög­giltur end­ur­skoð­andi.“

Þá nota ég frí­stundir mínar tals­vert í að spila golf.

Hver er upp­á­halds­staður for­stjóra Icelandair erlendis?

„Ég segi alltaf að minn upp­á­halds áfanga­staður sé sá staður sem ég er hverju sinni. Ef ég ætti að nefna til­tek­inn stað þá nota ég frí­stundir mínar tals­vert í að spila golf og er svo hepp­inn að konan mín hefur mjög gaman af því líka. Skotland er í miklu upp­á­haldi hjá okkur enda frá­bær áfanga­staður fyrir kylfinga. Þó veðrið geti verið upp og niður þá er golf­menn­ingin svo skemmti­leg þar og golf­vell­irnir frá­bærir.“

Þá verða vandamálin léttvæg

Bogi Nils seg­ist eiga frá­bæra for­eldra sem hafi verið miklar fyr­ir­myndir og hvatt hann áfram.

Hef alltaf unnið mikið, kannski allt of mikið.

„Ég byrj­aði ungur að vinna í fiski og fleiru á Eski­firði og hef alltaf unnið mikið, kannski allt of mikið, þannig að vinnan hefur mótað mig tals­vert. Í gegnum tíð­ina hef ég kynnst mörgum í gegnum nám, störf og áhuga­mál. Maður reynir að til­einka sér það jákvæða sem maður sér í fari ann­arra og finnst til eft­ir­breytni og líka að forð­ast það nei­kvæða. Ég á jafn­framt frá­bæra fjöl­skyldu og konan mín, Björk Unn­ars­dóttir, er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og hefur lengi starfað við umönnun fólks sem glímir við krabba­mein. Þegar maður hugsar um hvað skjól­stæð­ingar hennar eru að fást við þá verða vanda­málin og verk­efnin sem ég er að fást við í vinn­unni mjög létt­væg. Það er því mjög mik­il­vægt að setja hlut­ina reglu­lega í sam­hengi og reyna að átta sig á hvað skiptir máli í líf­inu.“ Hjónin eiga þrjú börn.

Hvað með áhuga­mál for­stjór­ans? „Ég hef alla tíð haft mik­inn áhuga á íþróttum og lék til dæmis knatt­spyrnu með Austra Eski­firði og hef stundað skíði og golf frá því ég var barn. Þá er ég með fjöl­mörg áhuga­mál fyrir utan íþrótt­irnar en allt snýst þetta um tíma.“

Jú, hann er for­stjóri Icelandair sem flytur fólk á milli landa og heims­álfa. Sér hann heim­inn með öðrum augum en ella þar sem hann er í starfi hjá félagi sem tengir lönd heims­ins?

„Ég sé að minnsta kosti mjög vel hversu mik­il­vægar þær teng­ingar sem við stuðlum að eru fyrir Ísland, bæði hvað varðar far­þega- og frakt­flutn­inga. Það er í raun ótrú­legt hversu sterkt leiða­kerfi Icelandair er haf­andi í huga hversu heima­mark­að­ur­inn er lít­ill. Fjöldi áfanga­staða og tíðni er eins og um millj­óna markað væri að ræða. Svona öfl­ugar teng­ingar eru mjög mikil vítamíns­sprauta fyrir við­skipta­lífið og hag­kerfið í heild sinni svo ekki sé minnst á menn­ing­ar­leg sam­skipti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ