Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sveitarfélög hunsuðu nefnd um vistheimili fólks með fatlanir: „Það vantar miklu betra eftirlit“

Sveitarfélög hunsuðu nefnd um vistheimili fólks með fatlanir: „Það vantar miklu betra eftirlit“
Vist­heim­ilið Arn­ar­holt. Mynd/skjá­skot RÚV

Í gær skil­aði starfs­hópur skýrslu þar sem með­ferð á fólki með fötlun og geð­ræn vanda­mál var skoðuð. Starfs­hóp­ur­inn segir nærri helm­ing sveit­ar­fé­laga lands­ins hafa hunsað ítrekuð erindi hans. RÚV greindi fyrst frá.

Samkvæmt frétt RÚV svör­uðu 31 af 69 sveit­ar­fé­lögum ekki erindi starfs­hóps­ins, þrátt fyrir ítrek­anir hans. Meðal þeirra eru bæði fjórðu og fimmtu fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­lög lands­ins.

Rannsaka tímabilið frá 1970

Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður af for­sæt­is­ráð­herra í þeim til­gangi að ann­ast rann­sókn á aðbún­aði og með­ferð full­orð­ins fatl­aðs fólks með þroska­hömlun og full­orð­inna með geð­rænan vanda. Skýrslan sem nú hefur verið birt felur í sér und­ir­bún­ing rann­sókn­ar­innar. Nefndin leggur til að rann­sóknin fari fram sam­kvæmt fyr­ir­mælum laga um rann­sókn­ar­nefndir. Meðal þess sem lagt er til, er að rann­sókn­ar­tíma­bilið verði ann­ars vegar frá 1970 til 2011 og hins vegar frá 2011 og til dags­ins í dag. Til­greint er að nauð­syn­legt sé að fatlað fólk með þroska­hömlun og fólk með geð­rænan vanda sé á meðal nefnd­ar­manna.

Svaraleysi Landlæknis og sveitarfélaga

Það vekur furðu að svo mörg sveit­ar­fé­lög hafi ekki svarað erindum nefnd­ar­innar. Fleiri létu hjá líða að svara, þar á meðal opin­ber emb­ætti; til að mynda emb­ætti land­læknis. Embætti land­læknis ann­ast eft­ir­lit með aðbún­aði og með­ferð fatl­aðs fólks með þroska­hömlun og fólks með geð­rænan vanda á heil­brigð­is­stofn­unum. Sveit­ar­fé­lögin gegna sömu­leiðis slíku eft­ir­lits­hlut­verki.

Fjölmenn sveitarfélög hunsuðu nefndina

Á Vest­ur­landi huns­uðu sjö sveit­ar­fé­lög erindi nefnd­ar­innar. Þau sveit­ar­fé­lög voru Snæ­fells­bær, Grund­ar­fjarð­ar­bær, Helga­fells­sveit, Eyja- og Mikla­holts­hreppur, Stykk­is­hólms­bær, Borg­ar­byggð og Hval­fjarð­ar­sveit.

Á Vest­fjörðum voru það Bol­ung­ar­vík­ur­kaup­staður og Súða­vík­ur­hreppur sem létu hjá líða að svara.

Á Norð­ur­landi Vestra bár­ust ekki svör frá einu ein­asta sveit­ar­fé­lagi. Sveit­ar­fé­lög þess lands­hluta eru Húnaþing vestra, Húna­vatns­hreppur, Sveit­ar­fé­lagið Skaga­fjörður, Akra­hreppur, Blöndu­ós­bær, Skaga­byggð og sveit­ar­fé­lagið Skaga­strönd.

Á Norð­ur­landi eystra voru það níu sveit­ar­fé­lög sem virtu nefnd­ina ekki svara. Athygli vekur að meðal þeirra er Akur­eyr­ar­bær, sem er fimmta fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Hin voru Hörg­ár­sveit, Sval­barðs­strand­ar­hreppur, Grýtu­bakka­hreppur, Þing­eyj­ar­sveit, Skútu­staða­hreppur, Tjör­nes­hreppur, Sval­barðs­hreppur og Langa­nes­byggð.

Best frammistaða hjá Austur- og Suðurlandi

Öll sveit­ar­fé­lög á Austur- og Suð­ur­landi svör­uðu erindum nefnd­ar­innar. Þar á móti svar­aði ekk­ert sveit­ar­fé­lag á Suð­ur­nesjum. Þau eru Reykja­nes­bær, sem er fjórða fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins, Suð­ur­nesja­bær, Grinda­vík­ur­bær og Sveit­ar­fé­lagið Vogar.

Öll sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins svör­uðu fyrir utan tvö; Sel­tjarn­ar­nes­bær og Kjós­ar­hreppur.

Furðar sig á sinnuleysi

Árni Múli Jónasson, fram­kvæmda­stjóri Þroska­hjálpar.

Í sam­tali við RÚV seg­ist Árni Múli Jónasson, fram­kvæmda­stjóri Þroska­hjálpar, furða sig á sinnu­leysi sveit­ar­fé­lag­anna sem létu hjá líða að svara erindum nefnd­ar­innar. Hann segir þó að fljótt á litið lít­ist honum vel á til­lögur nefnd­ar­innar fyrir fram­kvæmd rann­sókn­ar­innar. Hann seg­ist þó hafa viljað að rann­sóknin næði lengra aftur en til árs­ins 1970.

„Þetta eru sögur sem verður að segja, bæði til þess að fólk fái rétt­læti og að það sé við­ur­kennt að það var komið fram við það með gjör­sam­lega óásætt­an­legum hætti og svo hitt að við lærum af þessu. Það vantar miklu betra eft­ir­lit með þessu ber­skjald­aða fólki sem er tekið út úr sam­fé­lag­inu og sett á stofn­anir og komið fyrir ein­hvers staðar,“ segir Árni og bætir við að þetta þýði að fólk sé sett inn í aðstæður þar sem mikil hætta sé á að það njóti ekki lág­marks­rétt­inda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ