Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Britney og Sam gengu í hjónaband: Fyrrverandi eiginmaður Britney handtekinn á staðnum

Britney Spears og fyrrverandi eiginmaður hennar, Sam Asghari.
Britney Spears og fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar, Sam Asghari. Mynd: Britney Spears/Instagram

Tónlistar­konan heims­fræga, Britney Spears, giftist unnusta sínum, Sam Asghari, í gærkvöldi í Kaliforníu. Þetta er þriðja hjónaband Spears en fyrr­verandi eigin­maður hennar var hand­tekinn á staðnum. Þetta kemur fram hjá E online.

Britney varð formlega sjálfráða á ný eftir dóms­úrskurð í nóvember síðastliðnum. Hún hafði þá verið undir forræði lögráða­manns í þrettán ár. Tveimur mánuðum fyrir úrskurðinn bað Sam hana um að giftast sér. Þau höfðu þá verið saman í fimm ár.

Jason Alexander, fyrsti eigin­maður Britney, ákvað að gerast boðflenna í brúðkaupi hennar. Hann mætti á heimili hennar í óleyfi og var hand­tekinn af lögreglu nokkrum klukku­stundum áður en afhöfnin fór fram. Jason sagðist í beinu streymi á Instagram ætla að gerast boðflenna í brúðkaupinu. Þá sagði hann einnig að hann væri fyrsti eigin­maður Britney og hún hans fyrsta og eina eiginkona. Þegar lögregla handtók hann á vettvangi kom í ljós að hann var eftir­lýstur í Napa-sýslu í Kaliforníu.

Britney og Jason voru æskuvinir og gengu í hjónaband árið 2004. Hjóna­bandið var þó heldur skammlíft, en það var ógilt eftir aðeins 55 klukku­stundir.

Britney og Sam hafa verið saman í tæp sex ár. Meðal gesta í brúðkaupi þeirra í gær voru Madonna, Paris Hilton, Drew Barrymore og Selena Gomez. Heimildir herma að gestirnir hafi dansað fram á rauðanótt, þar sem Britney sjálf tók söng­dúetta með Paris Hilton og Selenu Gomez. Meðal gesta var einnig Donatella Versace, en hún hannaði brúðar­kjól Britney.

Mynd/skjá­skot E-online

Britney er sögð hafa stigið trylltan dans með þeim Madonnu og Selenu Gomez í brúðkaups­veislunni, þar sem Britney og Madonna hafi endur­skapað heims­fræga koss sinn frá VMA verðlauna­hátíð MTV forðum daga.

Heimildar­maður sagði E! News að Britney hafi verið tauga­óstyrk og í uppnámi áður en athöfnin hófst. Hún hafi þó að endingu ekki leyft neikvæðum atburði dagsins að eyði­leggja fyrir sér og athöfnin hafi verið falleg og hún notið dagsins til fullnustu. „Hún var tilfinningarík í athöfninni og Sam þerraði tár hennar á ástríkan hátt. Það var mjög hjartnæmt,“ sagði heimildar­maðurinn einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt