Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dökk mynd af stöðu sauðfjárræktar á Íslandi – Stór hluti bænda líklegur til að bregða búi

Dökk mynd af stöðu sauðfjárræktar á Íslandi – Stór hluti bænda líklegur til að bregða búi
Mynd/skjá­skot. Vík­ur­blaðið

Dregin er upp dökk mynd af stöðu sauð­fjár­ræktar á Íslandi í nýrri sam­an­tekt Byggða­stofn­unar, sem unnin var að beiðni Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, inn­við­a­ráð­herra og ráð­herra byggða­mála. Í sam­an­tek­inni segir að rekstr­ar­af­koma sauð­fjár­búa, fyrir fjár­magnsliði og afskriftir, hafi verið nei­kvæð frá árinu 2018. Ekki væri útlit fyrir að rekstur sauð­fjár­búa batni á næstu árum og að óbreyttum tekjum væru for­sendur sauð­fjár­bú­skapar brotnar.

Byggða­stofnun telur það hafa fjöl­þætt nei­kvæð byggða­leg áhrif hætti fólk sauð­fjár­bú­skap. Það geti haft marg­feld­is­á­hrif á ákveðnum svæðum, þar sem leitir og önnur sam­eig­in­leg verk­efni sauð­fjár­bænda verða þeim sem eftir sitja ofviða. Byggða­stofnun nefnir sem dæmi um við­kvæm svæði Reyk­hóla­hrepp, Dali, Strandir, Húna­vatns­sýslur og norð­aust­ur­horn lands­ins.

Í sam­an­tekt um mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir bendir Byggða­stofnun m.a. á að tekjur í grein­inni þurfi að hækka í takt við kostn­að­ar­hækk­anir. Það verði annað hvort gert með hækkun á skila­verði afurða­stöðva til bænda og þar af leið­andi hækk­andi útsölu­verði sauð­fjár­af­urða eða með auknum opin­berum stuðn­ingi. Einnig verði að skoða leiðir til að lækka fram­leiðslu­kostnað en slíkar aðgerðir skili fremur ávinn­ingi til lengri tíma litið, en verði varla til bjargar við núver­andi aðstæður. Þá komi til greina að aðstoða bændur við að fara út í aðra starf­semi á jörðum sínum eftir aðstæðum á hverjum stað. Loks er bent á að huga þurfi að and­legri vel­ferð bænda og fjöl­skyldna þeirra við þessar aðstæður.

Í sam­an­tekt­inni segir að kyn­slóða­skipti hafi verið fátíð á und­an­förnum fimm árum. Ríflega þriðj­ungur sauð­fjár­bænda með 300 fjár eða meira væri kom­inn yfir sex­tugt og er talið að stór hluti þeirra sé lík­legur til að bregða búi á næstu árum.

Að mati Byggða­stofn­unar stefnir í að rekstr­ar­nið­ur­staða með­al­sauð­fjár­bús­ins, sem hlut­fall af tekjum, verði nei­kvæð um allt að 50% og að rekstr­ar­nið­ur­staða fyrir fjár­magnstekjur og afskriftir verði nei­kvæð um 25%. Miðað við stöðu mála væri því lík­legt að ein­hverjir sauð­fjár­bændur hætti búskap haustið 2022. Þeir sauð­fjár­bændur, sem muni halda áfram geri það í þeirri von að rekstr­ar­að­stæður batni. Gerist það ekki megi búast við því að fjöl­margir sauð­fjár­bændur hætti búskap haustið 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil