Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fimm tegundir sjálfsdýrkenda

Fimm tegundir sjálfsdýrkenda

Sjálfs­dýrk­endur, eða nars­issista, er víða að finna í sam­fé­lag­inu. Hug­tak­inu hefur verið fleygt tölu­vert fram í auk­inni umræðu um ofbeldi á und­an­förnum miss­erum, en stað­reyndin er sú að mikið þarf til að ein­stak­lingur grein­ist með svo­kall­aða sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­röskun (e. narcissistic per­sona­lity dis­order), sem til­heyrir flokki per­sónu­leik­arask­ana. Það er þó vel hægt að vera svo­kall­aður sjálfs­dýrk­andi og bera mörg ein­kenni sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­rösk­unar, þrátt fyrir að ná ekki alla leið í klíníska skil­grein­ingu.

Með öðrum orðum: Allir með sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­röskun eru sjálfs­dýrk­endur, en ekki eru allir sjálfs­dýrk­endur með sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­röskun.

Óbeinar reykingar geðsjúkdómanna

Þetta gæti virst dálítið flókið, en sam­kvæmt skil­grein­ingum Dr. Ramani Dur­va­sula, banda­rísks sál­fræð­ings með mikla þekk­ingu á per­sónu­leika­rösk­unum, veltur grein­ing sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­rösk­unar ein­göngu á því hvort ein­kennin valdi sjálfs­dýrk­and­anum ama og van­líðan í dag­legu lífi. Slíkt þarf að vera til staðar svo við­kom­andi leiti sér aðstoðar og geti að end­ingu fengið grein­ingu á per­sónu­leika­röskun. Auk þess þarf við­kom­andi að vera með að minnsta kosti fimm af níu ein­kennum sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­rösk­unar til staðar. Hins vegar eru ótal sjálfs­dýrk­endur sem upp­lifa ekki slíka van­líðan og telja sig ekki eiga við nein vanda­mál að stríða.

„Ef þau upp­lifa ekki að ein­kennin séu að valda þeim vanda í dag­legu lífi þá munu þau ekki segj­ast eiga við vanda­mál að stríða. Þannig að, ef þau gang­ast ekki við þeim hluta af ein­kenn­unum, þá geta þau samt sann­ar­lega verið svo­kall­aðir sjálfs­dýrk­endur, sem er í raun klínísk skil­grein­ing á því að vera fáviti. Við getum ekki greint fólk með fávita­skap. Við greinum fólk sem kemur sjálft inn með vanda­mál, eitt­hvað sem því þykir valda ama eða óþæg­indum í þeirra dag­lega lífi,“ segir Dr. Ramani í við­tali hjá Med Circle. Hún lýsir sjálfs­dýrkun, eða nars­iss­isma, sem óbeinum reyk­ingum geð­sjúk­dóma; ástandi sem valdi fólk­inu í kringum sjálfs­dýrk­and­ann miklum skaða í öllum til­fellum.

„Það að vera í kringum sjálfs­dýrk­anda er jafn óheil­brigt og að vera sjálfur sjálfs­dýrk­andi. Ef þú stendur of nálægt verð­urðu veikur,“ segir Dr. Ramani. Hún segir grein­ing­una í raun ekki skipta nokkru máli fyrir fólkið í kringum sjálfs­dýrk­and­ann – ef við­kom­andi upp­lifir ekki vanda­mál og fer ekki í grein­ingu, þá er ástandið engu að síður skað­legt fyrir fólkið í kring.

Stór munur á sjálfsdýrkun og sjálfsöryggi

Dr. Ramani segir kjarn­ann á sjálfs­dýrkun vera lélega sjálfs­mynd og óör­yggi. Hún útskýrir mun­inn á heil­brigðu sjálfs­ör­yggi og sjálfs­dýrkun:

„Sjálfs­ör­yggi er heil­brigt. Fólk sem er sjálfsör­uggt þarf ekki að básúna afrekum sínum af hús­þökum eða á öllum sam­fé­lags­miðlum. Fólk sem er sjálfsör­uggt þarf ekki að tala yfir annað fólk og afrek þeirra. Fólk sem er sjálfsör­uggt þarf ekki á því að halda að afrek þeirra séu ávallt í for­grunni. Fólk sem er sjálfsör­uggt býr yfir þannig öryggi gagn­vart sjálfu sér og afrekum sínum, að það getur sleppt því að tala um þau.“

Dr. Ramani segir alla sjálf­dýrk­endur eiga ákveðin ein­kenni sam­merkt. Ein­kennin eru eft­ir­far­andi:

  • Skortur á sam­kennd.
  • Mik­il­mennsku­brjál­æði – er með upp­hafna hug­mynd um sjálfan sig.
  • Telur sig eiga meiri rétt en aðrir.
  • Yfir­borðs­kennd.
  • Mikil þörf fyrir aðdáun og hrós.
  • Hroki.
  • Til­hneig­ing til reiði og skapofsa.
  • Ráðskast með aðra og nýtir sér fólk til að fá sínu fram­gengt.

Algengt er að finna ofan­greind ein­kenni í öllum sjálfs­dýrk­endum, en hvert ein­kenni kemur þó fram í mis­miklum mæli.

Fimm tegundir sjálfsdýrkenda

Samkvæmt sam­an­tekt og grein­ingum Dr. Ramani eru fimm algeng­ustu teg­undir sjálfs­dýrk­enda, eða nars­issista, eft­ir­far­andi:

Eitraði sjálfsdýrkandinn

Þetta er talin alvar­leg­asta teg­und sjálfs­dýrk­anda, sem hefur hvað skað­leg­ustu áhrifin á annað fólk. Um er að ræða fólk sem jaðrar við að vera með and­fé­lags­lega per­sónu­leika­röskun (e. psychopathy). Þetta fólk not­færir sér og ráðskast með aðra sjálfu sér til fram­dráttar, það lýgur og svíkur, og kunna að not­færa sér kerfið til eigin hags­bóta. Þetta fólk getur oft náð tölu­verðum árangri í starfi og verið hátt sett innan fyr­ir­tækja eða í stjórn­málum. Það sem greinir þessa ein­stak­linga frá fólki með and­fé­lags­lega per­sónu­leika­röskun er að þeir geta stundum fundið til iðr­unar. Það mun þó ekki koma í veg fyrir að það geri þá fjand­sam­legu hluti sem það gerir, svo lengi sem það þjónar þeirri eigin hags­munum. Þessir ein­stak­lingar geta verið mjög ill­kvittnir, en þegar þú kynn­ist þeim fyrst eiga þeir það sam­merkt að vera afskap­lega heill­andi.

Mikilmennsku-sjálfsdýrkandinn

Þessum ein­stak­lingum finnst þeir ein­stakir og að þeir eigi skilið sér­með­ferð. Þeir grobba sig gjarnan af afrekum sínum og vilja ávallt sýn­ast stærri og betri en aðrir. Þeir þurfa á aðdáun ann­arra að halda og vilja flagga öllu sem þeir eiga og gera – eignum, við­ur­kenn­ingum, vel­gengni og öðru. Þeir eru upp­teknir af stöðu­táknum. Þetta geta verið miklar orkusugur og þeim finnst allt sem þeir hafa að segja mik­il­vægt og að allir ættu að leggja við hlustir. Þetta segir Dr. Ramani að sé gott dæmi um hinn „klass­íska“ sjálfs­dýrk­anda.

Duldi eða viðkvæmi sjálfsdýrkandinn

Dr. Ramani segir þessa teg­und hugs­an­lega þá dul­ar­fyllstu. „Ef heim­ur­inn gæti bara séð hversu frá­bær ég í raun er, þá væri ég einn af þeim stóru, en eng­inn skilur mig,“ er eitt­hvað sem hún segir gott dæmi um þanka­gang þess­ara ein­stak­linga. Sjálfs­vor­kunn þeirra er mikil og þeim finnst þeir gjarnan á undan sinni sam­tíð. Hún segir þessa ein­stak­linga oft eyða miklu púðri í háleit plön og hug­myndir sem síðan verða aldrei að veru­leika. Þeir geta oft virst þung­lyndir, eru afar við­kvæmir og upp­lifa það sterkt að heim­ur­inn og fólkið í kring skilji þá ekki. Þeir eiga mjög erfitt með að taka gagn­rýni. Samkennd getur reynst þeim erfið og þeim finnst þeir eiga skilið sér­með­ferð, vegna þess hve sér­stakir þeir séu. Yfir­leitt er fyrsta ein­kennið sem þú tekur eftir í fari sjálfs­dýrk­anda af þessu tagi lágt sjálfs­traust. Þeim finnst heim­ur­inn ganga fram­hjá sér og upp­lifa að hann skuldi þeim eitt­hvað. Þeir virð­ast daprir og fólk reynir oft að hjálpa þeim og hugsa um þá, en velta síðan fyrir sér hvers vegna þeir séu svona van­þakk­látir.

Samfélagslegi sjálfsdýrkandinn

Þessi ein­stak­lingur fer gjarnan í hina ýmsu björg­un­ar­leið­angra, starfar sem sjálf­boða­liði og leggur ýmsum mann­úð­ar­mál­efnum lið, en það hefur með hans eigin mark­mið og ímynd að gera frekar en raun­veru­legan vilja til að hjálpa öðrum. Hann elskar að fara á fjár­öfl­un­ar­við­burði og í veislur – það er lík­lega hægt að finna ófáa svona ein­stak­linga sem hafa gefið háar fjár­hæðir til ein­hvers mál­efnis og fengið bygg­ingu nefnda eftir sér, svo dæmi sé tekið. Þetta er ekki ein­stak­lingur sem gefur til góð­gerð­ar­mála í kyrr­þey. Hann þarf á ótal skóflustungum, mynda­tökum og borða­klipp­ingum að halda. End­ur­gjöf, við­ur­kenn­ing og athygli skiptir hann öllu máli. Það geta verið miklar and­stæður fólgnar í því hvernig hann kemur fram út á við og hvernig hann síðan kemur fram við sína nán­ustu og hegðun hans innan veggja heim­il­is­ins. Hann getur virst dýr­lingur út á við en komið afar illa fram við fólkið í sínum nán­asta hring.

Meinlausi sjálfsdýrkandinn

Þessi sjálfs­dýrk­andi getur verið dálítið grun­laus. Hann er yfir­borðs­kenndur og ver­ald­legir hlutir skipta hann afar miklu máli. Ímyndin út á við er í fyrsta sæti, sem og stöðu­tákn, sem minnir stundum á þanka­gang sumra ung­linga. Það er eins og þessir aðilar staðni dálítið í þroska. Það sem greinir þá frá mörgum hinna teg­und­anna er að þeir eru ekki endi­lega svo ill­kvittnir í eðli sínu – það er raun­veru­lega hægt að segja þeim að þeir hafi sagt eitt­hvað ónær­gætið eða dóna­legt og þeir verða stein­hissa, því það var ekki eig­in­legt mark­mið þeirra. Hins vegar munu þeir gleyma því strax og við­hafa svip­aða hegðun og ummæli strax næsta dag – þeir geta bara ekki skilið hvers vegna fólk tekur orð þeirra nærri sér. Þetta eru ein­stak­lingar sem getur verið dálítið skemmti­legt að hafa innan handar í sam­kvæmum og slíku, svo lengi sem þú hleypir þeim ekki alltof nálægt þér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu