Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sirrý biðlar til stjórnmálafólks: „Hversu mikið er hægt að leggja á eina konu?“

Sirrý biðlar til stjórnmálafólks: „Hversu mikið er hægt að leggja á eina konu?“
Sirrý Arn­ar­dóttir Mynd: sirry.is – skjáskot

Sirrý Arn­ar­dóttir, kenn­ari og fjöl­miðla­kona skrif­aði færslu á Facebook-vegg sínum í dag sem snerti hjarta­strengi les­enda.

Í færsl­unni talar hún um konu ógleym­an­legt við­tal sem hún átti við konu að nafni Steinunn Jak­obs­dóttur fyrir þátt­inn „Fólk með Sirrý“. Þá var Steinunn lífs­glöð ung kona með tvö mynd­ar­leg börn og rækt­aði skemmti­lega hunda. Skömmu síðar fékk hún heila­blóð­fall og við það missti Steinunn nán­ast allt. Í dag, 18 árum síðar, má hún gera sér það gott að lifa af 16 þús­und krónum á mán­uði eftir að reikn­ing­arnir hafa verið greiddir. Skorar Sirrý á stjórn­mála­fólk og fjöl­miðla­fólk í færsl­unni. Sirrý gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­una í heild sinni. Hún er hér að neðan:

,,Reynir að lifa af sextán þús­und krónum á mán­uði“ er fyr­ir­sögn í Frétta­blað­inu um helg­ina. Mér er nóg boðið. Hversu mikið er hægt að taka af fólki?

Ég starf­aði í 30 ár sem fjöl­miðla­kona og sum við­töl lifa meira með mér en önnur. Eitt sinn fór ég í Mos­fells­bæ­inn að taka við­tal fyrir sjón­varps­þátt­inn minn ,,Fólk með Sirrý“ við Steinu, 27 ára lífs­glaða konu, sem rækt­aði svo sér­staka og skemmti­lega hunda. Heim­sóknin var ógleym­an­leg því heima hjá henni var svo mikið líf og fjör. Steinunn Jak­obs­dóttir var fjöl­skyldu­kona með tvö mynd­ar­leg börn sem voru að teikna og lita í stof­unni innan um hunda, ketti, fugla og úti í garði voru lög­reglu­hundar sem voru í þjálfun hjá sam­býl­is­manni Steinu. Hún vann úti og rak líka litla verslun með gælu­dýra­fóður í Mos­fellsbæ. Það var svo skemmti­legt að koma inn á þetta líf­lega heim­ili.

Næsta sem ég frétti af Steinu var að hún fékk heila­blóð­fall 27 ára og missti við það næstum allt. Hún lam­að­ist og notar hjóla­stól, er með heilaskaða og sér illa. Við tók end­ur­hæf­ing í nokkur ár og hún gat ekki alið upp börnin sín eða haldið heim­ili. Hún missti næstum allt. Það biður eng­inn um að fá heila­blóð­fall og verða öryrki til lífs­tíðar. Steina er í þeirri stöðu núna 18 árum eftir áfallið að hún er að missa tæki­færið til sjálf­stæðrar búsetu. Húsa­leigu­bætur hættu að ber­ast um ára­mót (út af ein­hverjum breyt­ingum í kerf­inu) og hún á 16 þús­und krónur eftir þegar reikn­ingar hafa verið greiddir. Matur er mun­að­ar­vara. Og sjúkra­þjálfun er lúxus. Steina hefur sýnt mik­inn dugnað að búa ein í íbúð í Mos­fellsbæ í mörg ár. Það mun kosta sam­fé­lagið miklu meira ef hún missir íbúð­ina. Hvar á hún þá að búa? Og hvað mun það kosta Mos­fellsbæ. ,,Computer says no“ ein­hvers­staðar í kerf­inu. En ég skora á bæj­ar­yf­ir­völd og Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun að finna smugu, opna nýjar leiðir og laga þetta. Kerfi eru búin til af fólki. KOMA SVO. Hversu mikið er hægt að leggja á eina konu? Móðir sem fær heila­blóð­fall og lam­ast 27 ára á ekki að þurfa að biðja um mat og missa heim­ilið sitt á miðjum aldri. Hversu mikið á ein mann­eskja að missa?

Helga Möller og aðrir í stjórn­málum í Mosó er ekki hægt að ganga í málið? Nánar má lesa um málið í Frétta­blaði helg­ar­innar. Fjöl­miðlar ættu líka að taka málið áfram, fylgja því eftir og sjá hver tekur á málum. Heiðar Örn Sig­ur­finns­son Sig­mundur Ernir Rún­ars­son Björk Eiðs­dóttir Linda H. Blöndal Arnar Björns­son Hrafn­hildur Hall­dórs­dóttir

Mér kemur þetta í raun ekki við en sumir við­mæl­endur hafa meiri áhrif á mann en aðrir og Steina á betra sam­fé­lag skilið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ