Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags SÞ: „Ég vil setja mitt mark á veröldina“

Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags SÞ: „Ég vil setja mitt mark á veröldina“
Vala Karen (t.h.) og Elisa­beth Haslund hjá flótta­manna­stofnun SÞ með heims­mark­miðin í bak­grunni.

„Ég var í nokkur ár hjá UNICEF á Íslandi og var svo heppin að ég fékk að prófa mörg ólík verk­efni. Ég vann bæði í síma- og þjón­ustu­veri og naut þess að tala við alls konar fólk. Svo sá ég um neyð­ar­safn­anir og Sannar gjafir og fékk þá heil­mikla inn­sýn í vef­síðu­vinnu, bak­enda og skýrslu­gjöf. Með Sönnum gjöfum UNICEF fékk ég að vera skap­andi í her­ferð­ar­pæl­ingum fyrir mis­mun­andi til­efni, svo sem afmæli, jól, páska og bollu­dag­inn. Einnig tók ég svo að mér rekstur síma­vers­ins, þar sem þá voru 14 manns, en mér þótti frá­bært að vinna með ungu, efni­legu fólki með áhuga á mann­úð­ar­starfi, en það var virki­lega skemmti­legt og fjöl­breytt,“ segir Vala Karen Við­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Félags Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þau heyrðu af Íslend­ingnum með sér­fræði­þekk­ingu í fjár­öflun í gegnum Genf.

„Maðurinn minn fékk svo óvænta stöðu hjá Marel í Slóvakíu svo að við ákváðum að taka stökkið og flytja. Það var samt erfitt að því leyt­inu til, að ég var virki­lega ánægð í vinn­unni. Það höfðu orðið miklar breyt­ingar hjá lands­nefnd UNICEF í Slóvakíu og þau heyrðu af Íslend­ingnum með sér­fræði­þekk­ingu í fjár­öflun í gegnum Genf og ég fékk fljót­lega hlut­verk í Brat­islava. Það var alls ekki planið upp­haf­lega. Ég var orðin ófrísk á þessum tíma, en vildi alls ekki missa af þessu góða tæki­færi svo ég tók að mér stöðu sem verk­efna­stjóri í fjár­öflun og kynn­ingum. Fjár­öfl­un­ar­um­hverfið er þó allt öðru­vísi á þessum slóðum svo það var tals­verður lær­dómur. Ég vann þar til ég var gengin 34 vikur á leið, en almennt er ekki mælt með að konur vinni lengur en það á með­göngu þar ytra. Við vorum úti í þrjú ár og ég naut þess að búa þar og sér­stak­lega að geta verið heima fyrstu tvö árin með yngstu dótt­ur­ina.

Fjöl­skyldan í Brat­islava 2020.

Á þriðja árinu okkar úti var ég farin að líta pínu í kringum mig svo sem varð­andi hver yrðu mín næstu skref. Mér bauðst svo að ganga inn í fram­kvæmda­nefnd Women Power, en ég heill­að­ist alveg af hug­sjón­inni og vinnu sam­tak­anna og áherslu á að vinna í gras­rót­inni. Hún Anna Elísabet, stofn­andi sam­tak­anna, er algjör kjarna­kona, en hún stofn­aði leik­skóla fyrir börn í þorp­inu Bashay í Tansaníu. Samhliða því hefur hún svo í sam­starfi við konur í þorp­inu hlustað á þarfir þeirra og þannig urðu sam­tökin til, en þau snúa að vald­efl­ingu kvenna og for­senda þess er að þær geti elt drauma sína er að börnin séu með örugga dag­vistun. Stofn­aður var lána­sjóður þar sem konur geta sótt um fram­kvæmda­lán og hefur hann orðið til þess að konur hafa farið í margs konar rekstur meðal ann­ars að rækta svín og korn og opna hár­greiðslu­stofu. Aukin tæki­færi fyrir konur ýta undir jafn­rétti og það skilar sér svo sann­ar­lega til sam­fé­lags­ins. Næst á dag­skrá er að setja á lagg­irnar frum­kvöðla­nám­skeið og þjálfun fyrir konur og svo von­andi kvenna­ferð sem hefur verið á döf­inni í nokkurn tíma. Það er fal­legt sam­vinnu­verk­efni þar sem íslenskar konur í atvinnu­líf­inu fá tæki­færi til þess að deila sér­fræði­þekk­ingu sinni með konum í Tansaníu og öfugt.“

Fræðsla og menntun er lyk­ill­inn út úr fátæk.

Hver er mark­miðið og draum­ur­inn varð­andi þetta?

„Það má segja að það sé bara að opna á sam­talið og brúa bilið milli sam­fé­laga og skapa þannig teng­ingar milli fólks í alþjóða­sam­heng­inu. Fræðsla og menntun er lyk­ill­inn út úr fátækt og ég vil setja mitt mark á ver­öld­ina og skapa pláss fyrir alla. Draum­ur­inn er að einn dag­inn verði lífið á jörð­inni okkar orðið sann­gjarn­ara fyrir alla og sjálf­bær­ara. Að mann­kynið geti lifað í sátt og sam­lyndi við umhverfið og hvert annað,“ segir Vala Karen sem er mann­fræð­ingur að mennt. „Ég end­aði í mann­fræð­inni eftir að hafa prófað bæði lög­fræði og hjúkr­un­ar­fræði, enda sá ég mig alltaf vinna með fólki eða fyrir fólk. Í mann­fræð­inni lærir maður svo ótrú­lega margt, bæði sam­skipti og hegðun manns­ins í tím­ans rás og ólíkum sam­fé­lögum í hnatt­rænu sam­hengi. Mann­fræðin kennir manni að sjá hluti út frá ólíkum sjón­ar­hornum og sér­stak­lega sjón­ar­horni ann­arra. Ég tel að ég muni alla tíð búa að þeim grunni sem mann­fræðin gaf mér.“

Sinna fræðslu

Félag Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi var stofnað árið 1948, stuttu eftir stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna. Fyrsti for­seti þess var Ásgeir Ásgeirs­son svo að það á sér langa sögu, enda gam­alt og rót­gróið félag sem var stofnað af áhuga­sömum aðilum um SÞ og skref Íslands í þátt­töku á alþjóða­vett­vangi. „Mark­miðin hafa eflaust breyst í gegnum tíð­ina, en það má segja að það sé enn rekið af áhuga og ástríðu á alþjóð­legum mál­efnum. Mér finnst gott að líta á félagið sem eins konar brú milli almenn­ings og stjórn­valda í tengslum við stofn­anir SÞ, alþjóða- og þró­un­ar­sam­vinnu Íslands og heims­mark­miðin. Við sinnum fræðslu í skólum, fyrir almenn­ing, fyr­ir­tæki og sam­tök um öll þessi mál­efni sem falla þar undir.“

Ég er opin í sam­skiptum og elska hrein­lega að vinna með fólki.

Vala Karen hefur gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra félags­ins í tæpt ár. „Ég fékk tíma­bundna ráðn­ingu þar sem for­veri minn fór í árs­leyfi. Það hefur verið mik­ill lær­dómur fólg­inn í vinnu minni síð­ast­liðið ár og ég er bæði þakk­lát og stolt af að stjórn félags­ins hafi séð hvað ég hef fram að færa og boðið mér áfram­hald­andi starf. Ég tel að ég hafi mikla orku og kraft til þess að keyra félagið inn í breytta tíma. Ég er opin í sam­skiptum og elska hrein­lega að vinna með fólki og brenn fyrir alþjóða­málum, sem er gott þar sem ég fæ að hitta fólk úr öllum áttum og vinna að mál­efnum sem virki­lega skipta mig máli. Ég hef alltaf haft áhuga á mál­efnum sem snúa að heims­sam­fé­lag­inu, en það var í starfi mínu hjá UNICEF á Íslandi sem ég raun­veru­lega fann fyrst að ég væri á réttum stað.“

Í vinnu­ferð fyrir utan Félag SÞ í Danmörku ásamt nor­rænum sam­starfs­fé­lögum.

Mikil áhrif líkamlega og andlega

Vala Karen er frá Ísafirði og segir hún að það hafi mótað hana mikið að vera frá litlu bæj­ar­fé­lagi; hún nefnir umhverfið í kringum Ísafjörð og nálægð­ina við fjör­una og fjöllin. Hún talar líka um frelsið.

„For­eldrar mínir fluttu þangað áður en ég fædd­ist, en þau eru frá Siglu­firði og Ólafs­firði. Ég ólst því upp langt frá nán­ustu ætt­ingjum og hitti ömmur og afa sjaldan. Ég lærði því snemma að meta þessar fáu stundir og það var gott vega­nesti, sér­stak­lega þegar við fluttum til Slóvakíu. Þó svo að ég hafi ekki í huga að búa aftur úti á landi þá fylgir þessi lífs­reynsla manni alltaf og mér þykir vænt um upp­eldið mitt í sam­fé­lag­inu fyrir vestan og elska að heim­sækja heima­hag­ana, en for­eldrar mínir búa þar enn.“

En að ganga með þau hefur alltaf haft mikil áhrif á mig lík­am­lega og and­lega.

Fram­kvæmda­stjór­inn er gift, þriggja barna móðir. „Eitt af því erf­ið­asta sem ég hef gert var að ganga í gegnum með­göngu. Ég er svo heppin að eiga þrjú börn og að fæða þau var ekk­ert mál, en að ganga með þau hefur alltaf haft mikil áhrif á mig lík­am­lega og and­lega.“

Hvað með áhuga­mál kon­unnar sem alþjóða­málin kalla á?

„Mín helstu áhuga­mál eru ferða­lög, hreyf­ing og að verja tíma með vinum og fjöl­skyldu. Við ferð­umst mikið saman, fjöl­skyldan, og leggjum mikið upp úr því að börnin upp­lifi heim­inn með okkur. Einnig erum við öll miklir fjör­kálfar svo að við elskum að hafa eitt­hvað fyrir stafni og reynum að rækta vina- og fjöl­skyldu­bönd eins mikið og við getum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ