Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ísland miðstöð snjallvæðingar í Evrópu: „Í anda þess sem ég hef lengi talað fyrir“

Ísland miðstöð snjallvæðingar í Evrópu: „Í anda þess sem ég hef lengi talað fyrir“
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, ráð­herra háskóla, iðn­aðar og nýsköp­unar.

Ísland verður í hópi þeirra Evr­ópu­landa sem munu hýsa mið­stöðvar snjall­væð­ingar. Þetta varð ljóst þegar umsókn Mið­stöðvar snjall­væð­ingar, studd af stjórn­völdum, fékk jákvæða nið­ur­stöðu frá val­nefnd Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ísland hefur fengið 300 millj­óna króna styrk frá Evr­ópu­sam­band­inu til þess að vinna að upp­setn­ingu þess­arar mið­stöðvar.

Mið­stöðin mun leggja lóð sín á vog­ar­skál­arnar við að byggja upp lif­andi umhverfi nýsköp­unar á sviði snjall­væð­ingar með teng­ingum við Evrópu í gegnum systur EDIH mið­stöðvar um ger­valla Evrópu.

Miðstöð snjall­væð­ingar í sam­starfi við Rannís mun sömu­leiðis vekja athygli á tæki­færum til sóknar í Digital Europe Program Evr­ópu­sam­bands­ins, sem mun verja 7,5 millj­örðum Evra til snjall­væð­ing­ar­verk­efna og því eftir miklu að slægj­ast fyrir íslensk fyr­ir­tæki á þessu sviði.

Vettvangur til stuðnings við nýsköpun

Ísland hefur verið hluti af áætlun Evr­ópu­sam­bands­ins um staf­ræna Evrópu (DIGITAL Europe), sem varir frá 2021 til 2027.

Hluti af áætl­un­inni er að stofna Evrópska mið­stöð staf­rænnar nýsköp­unar (e. European Digital Innovation Hub: EDIH) hér á landi. Mið­stöðin verður sett á lagg­irnar í haust af Auðnu tækni­torgi í sam­starfi við Háskóla Íslands, Háskól­ann í Reykja­vík, Rannís, Origo, Syndís ásamt fleiri sam­starfs­að­ilum og kölluð „Miðstöð snjall­væð­ingar“.

„Með stofnun set­urs um staf­ræna nýsköpun á Íslandi og stuðn­ingi Evr­ópu­sam­bands­ins við það sem hluta af staf­rænni veg­ferð Evrópu, er tekið mik­il­vægt skref í staf­rænni þróun sam­fé­lags­ins og skap­aður vett­vangur til stuðn­ings við nýsköpun á því sviði. Með meiri staf­væð­ingu spörum við fjár­muni og gerum kerfið okkar skil­virkara og betra, þetta er í anda þess sem ég hef lengi talað fyrir. Aukið sam­starf stjórn­valda, sveit­ar­fé­laga, háskóla og atvinnu­lífs­ins í átt að auk­inni snjall­væð­ingu kemur því sam­fé­lag­inu öllu til góðs,“ sagði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, ráð­herra háskóla, iðn­aðar og nýsköp­unar í sam­tali við Háskóla Ísland.

Tilkoma Mið­stöðvar snjall­væð­ingar á Íslandi skapar tæki­færi til sam­þætt­ingar, sam­ræm­ingar og þekk­ing­ar­dreif­ingar á grunn­þáttum snjall­væð­ing­ar­innar. Lagt er áhersla á að mið­stöðin muni tengja þarfir við þekk­ingu, færni og reikni­afl inn­an­lands og jafn­framt bjóða upp á prófanaum­hverfi þar sem opin­berir aðilar jafnt sem einka­fyr­ir­tæki geta prófað sig áfram í nýj­ustu tækni án þess að leggja út í miklar fjár­fest­ingar. Samkvæmt verk­efn­inu verður áhersla lögð á að virkja sam­legð­ar­á­hrif og öfl­ugt tengsla­net. Og mikil áhersla verður lögð á að bæta tölvu­ör­yggi á land­inu, m.a. með áherslu á fram­sækin rann­sókn­ar­verk­efni og auka fram­boð mennt­unar á því sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ