Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íslenska konan sem Ezra réðist á opnar sig: „Allt í einu er hán ofan á mér, að kyrkja mig“

Íslenska konan sem Ezra réðist á opnar sig: „Allt í einu er hán ofan á mér, að kyrkja mig“
Ezra Miller. Mynd/skjá­skot Instagram

Banda­ríski leik­ar­inn Ezra Miller, sem er hvað þekkt­astur fyrir hlut­verk sitt í kvik­mynda­ser­í­unni Fantastic Beasts and Where to Find Them og sem ofur­hetjan Flash í kvik­myndum DC-teikni­mynda­ser­íu­heims­ins, kom til Íslands í fyrstu bylgju Covid-19 far­ald­urs­ins og varð reglu­legur gestur á börum mið­bæj­ar­ins. Ezra réð­ist á konu á Prikinu í apríl árið 2020, sem nú hefur opnað sig um málið í við­tali við Variety.

Ezra Miller skil­greinir sig sem kynsegin og notar for­nafnið „hán“, sem verður notað í frétt­inni.

„Það var alltaf eitt­hvað með Ezra,“ segir Carlos Reynir í sam­tali við Variety, en hann var bar­þjónn á Prikinu á þeim tíma sem Ezra stund­aði bar­inn. Hann segir tvö til­felli hafa komið upp þar sem hann þurfti að hafa afskipti af Ezra. Fyrra skiptið hafi verið rifr­ildi milli Ezra og ann­ars manns, sem hafi byrjað sak­leys­is­lega en endað þannig að Ezra tók mann­inn háls­taki og sló hann. Carlos seg­ist hafa gengið á milli þeirra og leyst slags­málin upp, og að Ezra hafi síðar beðið mann­inn afsök­unar. Hinn mað­ur­inn hafi ákveðið að hrista atvikið af sér og afskrifa það sem brand­ara. Ezra hafi því fengið að koma á bar­inn áfram.

„Við afskrif­uðum þetta bara sem tvo drukkna vini sem lentu í slags­málum,“ segir Carlos. „Þetta er Ísland. Það ger­ist tvisvar hverja helgi.“

Tók konu hálstaki

Seinna atvikið var ekki hægt að afskrifa svo glatt. Það var þegar Ezra réð­ist á unga konu á Prikinu, tók hana háls­taki og ýtti í jörð­ina. Myndband af árásinni fór í dreif­ingu í apríl árið 2020 og vakti heims­at­hygli.

Variety ræddi við kon­una eftir að atvikið átti sér stað, en hún hefur nú gefið miðl­inum leyfi til þess að birta svör sín. Hún kaus að koma fram undir nafn­leynd.

Mynd­bandið sýnir að Ezra gengur á kon­una, sem brosir, veifar hand­leggj­unum og gengur að háni. „Viltu slást? Er það það sem þú vilt?“ spyr hún. Ezra grípur um háls hennar og hún tekur and­köf. Samkvæmt Variety greip ein­stak­ling­ur­inn sem tók upp mynd­bandið þá inn í aðstæð­urnar.

Samkvæmt heim­ildum Varitey hafði konan átt í sam­ræðum við Ezra á barnum fyrir atvikið. Hún seg­ist sjálf hafa spurt hán út í sár á fótum hans, sem voru sýni­leg þar sem hán klædd­ist sand­ölum. Hán á þá að hafa sagt að um bar­dagaör væri að ræða, eftir slags­mál. Eftir að hafa rætt hvernig hán fékk sárin hafi hún gengið á brott en snúið sér við og sagt í gríni: „En bara svo að þú vitir það, þá gæti ég unnið þig í slag“. Ezra á þá að hafa svarað: „Viltu slást í alvöru?“ og konan hafi þá sagt háni að hitta sig á reyk­inga­svæð­inu eftir tvær mín­útur.

Hún segir Ezra loks hafa gengið á hana fyrir utan stað­inn. „Ég hélt að þetta væri bara fífla­gangur – en svo var ekki.“

Hún seg­ist hafa sagt háni að hitta sig á reyk­inga­svæð­inu í gríni og Ezra hafi virst taka því sem slíku, þar sem hán hélt kyrru fyrir inni á staðnum. Vinur kon­unnar hafi hins vegar farið til Ezra og sagst hafa heyrt að leik­ar­inn vildi ekki slást. „Vinur minn hefði ekki þurft að segja það,“ segir hún. „Þetta var auð­vitað bara grín – en Ezra tók því bók­staf­lega, varð mjög reitt og kom hlaup­andi út.“ Það var þá sem einn af vinum kon­unnar byrj­aði að taka sam­skiptin upp á sím­ann sinn.

„Allt í einu er hán ofan á mér, að kyrkja mig, öskr­andi hvort ég vilji slást. Vinur minn sér að þetta er greini­lega ekki fífla­gangur og greini­lega alvar­legt, svo hann hættir að taka upp og ýtir háni af mér á meðan Ezra er enn að reyna að slást við mig. Tveir karl­kyns vinir mínir héldu í Ezra á meðan hán öskr­aði: „Þetta er það sem þú vildir! Þetta er það sem þú vildir!“

Konan segir Ezra hafa hrækt nokkrum sinnum í and­lit vinar síns – eitt­hvað sem þótti hættu­legt á þessum tíma í heims­far­aldri án bólu­efna. Hún segir að bar­þjónn, Carlos Reynir, hafi hlaupið út til þeirra til þess að leysa upp slags­málin.

Þurfti að loka staðnum

„Ezra grípur um háls­inn á mér þegar ég er að reyna að koma háni út bak­dyra­megin og seg­ist ekki ætla að fara,“ segir Carlos Reynir. Hann segir Ezra hafa haldið því fram að vinir kon­unnar hafi ýtt háni. „Sem þeir gerðu ekki,“ segir hann.

„Hán hrækti í and­litið á mér nokkrum sinnum, en mér tókst að ýta háni út og loka og læsa hurð­inni.“

Carlos seg­ist hafa þurft að læsa inn­gangi bars­ins, þar sem Ezra hafi hlaupið hring­inn og byrjað að berja á hurð­ina og öskra að háni skuli hleypt inn. Á end­anum hafi tveir vinir leik­ar­ans komið háni inn í bíl og keyrt á brott.

„Ég held að þetta atvik hafi verið það sem eyði­lagði orð­spor Ezra á Íslandi. Hán hætti að koma á aðra bari fljót­lega eftir þetta,“ segir Carlos.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ