Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Meirihlutinn vildi ekki sjá litasjónvarpið: „Ég er nú að vísu blindur og læt mér á sama standa“

Meirihlutinn vildi ekki sjá litasjónvarpið: „Ég er nú að vísu blindur og læt mér á sama standa“
Lita­sjón­varp? Mynd: Lubbi

Árið 1974 var lita­sjón­varpið mikið í deigl­unni hér á landi en sitt sýnd­ist hverjum um þá hug­mynd að leyfa það hér á landi. Frægt er orðið að Fram­sókn­ar­þing­mað­ur­inn Páll Pét­urs­son var á móti lita­sjón­varp­inu. En hann var ekki einn um það á land­inu.

Þann 26 ágúst árið 1974 birti Vísir nið­ur­stöður úr skoð­ana­könnun sinni þar sem spurt var Teljið þér tíma­bœrt að setja upp lita­sjón­varp á Íslandi?

Nið­ur­stöð­urnar eru nokkuð óvæntar fyrir nútíma­mann­inn en GP á Vísi sagði svo frá:

„Látum ekki Fœreyjar verða á undan!“

„Ég held að fólk hafi nóg með þessar átta þús­undir, sem það borgar fyrir svart-hvitt sjón­varp þótt ekki bæt­ist hin ósköpin á,“ svar­aði kona ein, spurn­ingu Vís­is­manna um, hvort tíma­bært væri orðið að setja upp lit­sjón­varp. „Að vísu orðið tima­bært, en hins vegar svo dýrt, að þeim fjár­munum væri betur varið til ein­hvers þarfara,“ sagði önnur kona. Þá sagði karl einn: „Það mætti nú reyna eitt­hvað fyrst að bæta þetta, sem við höfum, áður en ráðizt verður i lita­sjón­varp.“

Eins og með­fylgj­andi tafla hér sýnir glögg­lega, þá svar­aði áber­andi meiri­hluti þeirra tvö hund­ruð og tutt­ugu manna og kvenna, sem blaða­menn Vísis hringdu í, spurn­ing­unni neit­andi.

Þeir töldu það ekki tlma­bært. Það varð ann­ars bert af und­ir­tekt­unum, að þorr­inn lét þetta mál mjög til sin taka. Nánast allir höfðu á þvl ákveðna skoðun, og svör­uðu ýmist ját­andi eða neit­andi. Aðeins níu af hundraði voru óákveðnir. Og ekki aðeins það. Heldur færði einnig fólk ýmis rök fyrir því og þær ástæður helztar, sem það taldi mæla gegn því að ráð­ast í að setja upp lita­sjón­varp. Þar kenndi margra grasa að sjálf­sögðu. Og ekki voru kannski öll nein bein­linis vegna þess, að svara­fólkiöð teldi ekki orðið TÍMABÆRT að setja upp lita­sjón­varp. Það taldi kannski ekki tlmann núna heppi­legan til þess, og það i flestum til­vikum af efna­hags­legum ástæðum.

— Nokkur dæmi:

„Vegna dýr­tíðar er ég and­víg lita­sjón­varpi.“ — „Nei, þetta, gamla má nú eitt­hvað skána fyrst.“ — „Ég vil nú fyrst geta séð það tví­lita almenni­lega,“ svaraöi maður einn á Flateyri.

„Það má nota pen­ing­ana til skyn­sam­legri hluta. Tja, eins og t.d. til að koma útvarpi og „lit­lausa“ sjón­varp­inu í almenni­legt ástand.

Það eru koló­mögu­legar útsend­ingar, sem ná til okkar hér í Borg­ar­nesi,“ sagði einn sem sé í Borg­ar­nesi.

Á Suð­ur­eyri sagði einn maður: „Þeir mega nú bæta fyrst útvarps­skil­yrðin.“ — Og fleiri mundu eftir útvarp­inu…. afsakið, hljóð­varp­inu… þegar þetta bar á góma. Eða eins og einn sagði: „Fyrst má koma ster­eoút­varp.“ „Tímabært eða ekki tlma­bært…. er það ekki fyrst og fremst kostn­að­ur­inn, sem verður að hugsa um,“ sagði ein­hver. „Það væri svo sem nógu skemmti­legt, en er það ekki of dýrt,“ sagði ein­hver konan.

Þannig létu margir kostn­að­inn sér vaxa í augum. Kostnað fyrir nokkuð, sem menn köll­uðu „lúxus,“ „óþarfa“, o.s.frv. Svo komu hinar og þessar ástæður….:

„Nei, ekki eins og er. Helzt ættum við að gera þetta smátt og smátt.“ — Ég treysti mér ekki til að greiða hærra afnota­gjald.“ — „Þegar það heyr­ist ekki einu sinni almenni­lega í útvarp­inu hér fyrir norðan, þá sé ég ekki ástæðu til að hlaupa af stað með lit­sjón­varp. Að minnsta kosti ekki fyrr en tækni­menn­irnir okkar hafa sýnt sig ráða við það, sem ein­fald­ara á að heita.“ — „Nei, nær væri heldur að sjá til þess að fá að hafa Kana­sjón­varpið í friði. Það er þó okkur að kostn­að­ar­lausu.“ — „Ég vildi frekar halda Kana­sjón­varp­inu og fresta lit­sjón­varpi.“

Einn vildi bíða og velja heppi­legra augna­blik: „Rétt að taka upp lita­sjón­varp, þegar þarf að end­ur­nýja hvort eð er tækja­kost­inn.“ — annar var með svipað í huga: „Bíðum þar til sjón­varpið hefur starfað þann tima, sem búast má við að sjón­varps­not­endur þurfi að end­ur­nýja tækin heima hjá sér.“

Þeir voru margir Fram­sókn­ar­menn­irnir árið 1974

Svo taka hinir sem töldu það fylli­lega tlma­bært að taka upp lita sjón­varp, eða eins og mað­ur­inn sagði: og auk þess heldur, sem það var aldrei neitt vit í þvl að byrja með svart-hvítt. Það var aldrei neitt annað en óða­got stefnt til höf­uðs Kana­sjón­varp­inu, sem ákveðnir aðilar töldu sig geta lokað, þegar Íslenzka rlkið hefði sjálft byrjaö einka­rekstur á sjón­varpi.“

— „Lita­sjón­varp átti að koma strax. Það er svo dýrt að skipta.“ „Þótt fyrr hefði verið. Það er aum­ingja­skapur að hafa ekki verið kom­inn með lita­sjón­varp fyrir 20 árum.“ — „Nú er það ekki þró­unin?“ — „Já, alveg sjálf­sagt. Það verður lika bráðum hætt að fram­leiða tæki fyrir svart-hvítt.“ Og svo loks ein mjög veiga­mikil ástæða: „Nú! Er lita­sjón­varp ekki það sem koma skal? Rétt er að und­ir­búa það fyrr en síðar. Þeir mega ekki verða á undan okkur með lit­inn í Færeyjum.“

Það var ann­ars áber­andi í þess­ari skoð­ana­könnun, þegar nið­ur­stöður voru bornar saman, að konur voru flestar mjög ákveðnar á móti lita­sjón­varpi. Þær horfðu flestar i kostn­að­inn.

Í þétt­býli voru t.d. rúm­lega 30 konur á móti lita­sjón­varpi meðan rúmar 23 voru meö því. En ríf­lega 30 karlar í þétt­býli voru með lita­sjón­varpi og 23 á móti. — Í dreif­býl­inu voru hins vegar hlut­föllin jöfn á milli kynja og svip­aður meiri­hluti á móti lita­sjón­varp­inu. — Og þetta er ein af fáum skoð­ana­könn­unum, sem Vísir hefur gert, þar sem ekki eru fleiri konur óákveðnar í afstöðu sinni, heldur en karlar. — Svo miklu lét fólk þetta mál sig skipta.

Vel á minnzt — fyrst vikið er að þeim, sem óákveðnir voru í því, hvort þeir teldu lita­sjón­varp tíma­bært. Tveir gerðu grein fyrir hlut­leysi sínu í mál­inu: Annar sagði:

„Mér finnst nú það svart-hvíta hafa nógu spill­andi áhrif á ung­linga út af fyrir sig, þótt ekki þurfi hitt til líka. En af því ég hef nú þetta álit á sjón­varp­inu, þá tek ég ekki afstööu til þessa máls.“ En hinn sagði: „Ég er nú að vísu blindur og læt mér á sama standa um það — Í hversu mörgum litum útsend­ingar sjón­varps­ins eru. Ég var bara að hugsa um hitt, hvort það yrði ekki óksöp dýrt að fleygja öllum gömlu sjón­varps­tækj­unum, þegar lit­ur­inn kemur.“

Það var sem sé ekki bein­linis vegna þess, að þeir væru alveg skoð­ana­lausir í mál­inu, að þeir tóku þennan pól í hæð­ina. Það er þvl ekki ofsagt, sem í upp­hafi var getið, að þorr­inn hafi látið þetta til sín taka.

Skemmst er frá því að segja að lita­sjón­varpið kom á end­anum, hvort sem fólki lík­aði það vel eða illa.

Greinin birt­ist áður á mann­lif.is þann 1. júlí síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ