Gylfi Þór Sigurðsson er sagður á leið til Tyrklands að spila fyrir Galatasaray.
Gylfi Þór, lék ekkert með Everton síðasta tímabil vegna rannsóknar bresku lögreglunnar á meintu kynferðisbroti hans gegn ólögráða einstaklingi en hann er í stofufangelsi á meðan málið er rannsakað. Everton ákvað nýverið að endurnýja ekki samning sinn við Gylfa Þór.
Í tyrkneskum fjölmiðlum er Gylfi sagður hafa gert tveggja ára samning við hið tyrkneska knattspyrnulið en mun hann fá í kringum tvær milljónir evra hvort árið eða um 280 milljónir íslenskra króna, reynast fréttirnar sannar.
Hér fyrir neðan má sjá Twitter-færslu frá As Marca sem er fréttamiðill í Tyrklandi, um málið.































Athugasemdir