Leikarinn Paul Sorvino er látinn, 83 ára að aldri. Lést hann við hlið konu sinnar í gærmorgun.
Paul Sorvino, sem þekktastur er fyrir leik sinn í hinni stórgóðu krimmamynd, Goodfellas, lést á gærmorgun. Í fréttatilkynningu sem barst frá kynningarfulltrúa hans, Roger Neal, kom fram að leikarinn hafi andast við hlið konu sinnar, Dee Dee Sorvino. Sagt er frá þessu á ETonline.com.
„Hjörtu okkar eru brotin, það verður enginn annar Paul Sorvino, hann var ástin í lífi mínu og einn sá allra besti listamaður sem stígið hefur á svið og birst á hvíta tjaldinu,“ sagði Dee Dee í tilkynningu, en þau giftust árið 2014.
Leikarinn góðkunni lést af náttúrulegum orsökum en hann hafði glímt við heilsufarsvandamál síðustu árin, samkvæmd fréttatilkynningunni.
Sorvino var ekki aðeins þekktur Hollywood-leikari heldur var hann einnig óperusöngvari, handritshöfundur, sjónvarpsstjarna og virtur myndhöggvari.
Joe Pesci, sem lék með Paul í Goodfellas sendi frá sér tilkynningu vegna andláts hans: „Frábær leikari, mjög næmur maður. Ég er alveg viss að ég verði ekki sá eini sem mun sakna hans!“
Paul lætur eftir sig konu sína Dee Dee og þrjú fullorðin börn, þau Mira, sem einnig er þekkt leikkona, Amanda og Michael og fimm barnabörn.
Fyrir aðeins tveimur mánuðum lést annar leikari úr Goodfellas, Ray Liotta en hann lést í svefni í Dóminíska lýðveldinu, aðeins 67 ára að aldri.































Athugasemdir