Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Svarar Gísla Marteini fullum hálsi: „Skoðanir um þungunarrof hafa ekkert með fasisma að gera“

Svarar Gísla Marteini fullum hálsi: „Skoðanir um þungunarrof hafa ekkert með fasisma að gera“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson, aðstoða­maður dóms­mála­ráð­herra skýtur föstum skotum á Gísla Martein í nýrri Facebook-færslu.

Brynjar hefur staðið í ströngu á sam­fé­lags­miðlum þessa dag­ana þar sem skotin hafa flogið hingað og þangað og virð­ist eng­inn óhultur. Færsla sem Gísli Marteinn Bald­urs­son, fjöl­miðla­maður skrif­aði fór fyrir brjóstið á Brynjari sem svar­aði í löngu máli á Facebook. Færsla Gísla er eft­ir­far­andi:

„Aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra sem greiddi atkvæði gegn þung­un­ar­rofi kvenna, vildi vísa 300 manns úr landi í sumar, vill nýja inn­flytj­enda­lög­gjöf og vald­efla lög­regl­una sakar @AndriMagnason um fas­isma þegar Andri spyr hvort blaða­fólk á Mbl sé sátt við afneitun í lofts­lags­málum.“

Brynjar upp­nefnir Gísla Martein ítrekað í færslu inni en þar kallar hann Gísla ýmist sjón­varps­mann­inn síkáta, létt­lynda eða glað­lynda.

„Sjón­varps­mað­ur­inn síkáti sendi mér pillu á miðli frjáls­lynda og víð­sýna fólks­ins, sem einkum berst fyrir þöggun og úti­lokun þeirra sem eru ósam­mála þeim. Svona getur til­veran verið mót­sagna­kennd.

Glað­lynda sjón­varps­mann­inum finnst skrítið að ég hafi ýjað að fasískri hegðun rit­höf­undar úti í bæ, sem vildi að starfs­menn Moggans beittu þögg­unar – og úti­lok­un­ar­að­gerðum vegna við­horfs rit­stór­ans í lofts­lags­málum, þar sem ég hafi greitt atkvæði gegn síð­asta þung­un­ar­rofs­frum­varpi, vildi vísa 300 manns af land­inu og nýja inn­flytj­enda lög­gjöf og vildi þar að auki vald­efla lög­regl­una,“ byrjar Brynjar á að skrifa í færsl­unni og heldur svo áfram.

„Létt­lyndi sjón­varps­mað­ur­inn áttar sig ekki á því frekar en rit­höf­und­ur­inn úti í bæ að fas­ismi er fyrst og fremst hegðun en ekki það að ein­hver er ósam­mála manni. Skoðanir um þung­un­ar­rof hafa ekk­ert með fas­isma að gera. Það er ekki fasísk skoðun að þegar fóstur er orðið að barni í móð­ur­kviði hafi það ein­hvern rétt. Að vísa fólki úr landi sem hefur lögum sam­kvæmt ekki heim­ild til að vera er ekki fas­ismi eða breyt­ingar á lögum um útlend­inga í sam­ræmi við lög í evr­ópu­löndum. Að veita lög­reglu svip­aðar heim­ildir og í öðrum löndum til að fram­fylgja lögum og koma í veg fyrir skipu­lagða glæp­a­starf­semi er ekki fas­ismi.“

Næst lýsir Brynjar áhyggjum sínum yfir fasískri hegðun í sam­fé­lag­inu.

„Vissu­lega er fas­ismi ekki bara hegðun og hug­ar­far. Til er fasísk hug­mynda­fræði sem tekur úr sam­bandi rétt­indi borg­ar­anna gagn­vart yfir­völdum. Við erum hins vegar með stjórn­ar­skrá sem verndar þau rétt­indi. Við þurfum því ekki að hafa áhyggjur að því og áhyggjur mínar bein­ast að fasískri hegðun margra í frjálsa sam­fé­lag­inu, einkum þeirra sem reyna að selja sig sem frjáls­lynda og víð­sýna. Þar eru mest áber­andi elítu­liðið úr fjöl­miðlum og lista-og menn­ing­ar­geir­anum sem finnst það sjálf­sögð rétt­indi þeirra að skatt­greið­endur tryggi afkomu þeirra. Gott ef það eru ekki mann­rétt­indi.“

Því næst líkir Brynjar saman þeim Gísla og Sveini Andra sem hann hefur einnig átt í deilum við á Facebook nýverið.

„Ofur­hressi sjón­varps­mað­ur­inn er ekki ólíkur stjörnu­lög­mann­inum eina sanna. Voru báðir virkir í Sjálf­stæð­is­flokknum en þegar þeim var hafnað í próf­kjöri brast út ein­hver heift sem bara magn­ast með árunum. Þeir urðu allt í einu svo gáf­aðir og rétt­sýnir. Um það er hins vegar tals­verður ágrein­ingur. Það er ljóst að við sjón­varps­mað­ur­inn hressi eigum bara eitt sam­eig­in­legt en það er við erum alltaf jafn ung­legir í útliti. Það sama verður ekki sagt um stjörnu­lög­mann­inn.“

Lokaorð Brynjars eru full af kald­hæðni eins og reyndar færslan öll.

„Það er mikið frelsi að geta fjasað ábyrgð­ar­laust í góða veðr­inu í Mið­jarð­ar­hafi á launum frá skatt­greið­endum meðan vinnulúnir rit­höf­undar og sjón­varps­menn híma heima í kuld­anum með kvíða yfir því að þeir muni stikna úr hita innan fárra ára.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ