Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Þetta fólk getur tekið þessar skýrslur sínar og troðið þeim beint í tætarann“

„Þetta fólk getur tekið þessar skýrslur sínar og troðið þeim beint í tætarann“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hafnar með öllu nið­ur­stöðu Þjóð­hags­ráðs um að lítið svig­rúm sé til launa­hækk­ana. Hún segir þetta vera nokkuð sem valda­stéttin geti ekki ákveðið á lok­uðum fundum. Sólveig skrifar á Facebook:

„Munið þið eftir frétt­inni sem birt­ist fyrir skemmstu þar sem að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði frá því að Þjóð­hags­ráð hefði haldið fjöl­marga auka­fundi vegna kom­andi kjara­samn­ings­við­ræðna? Meðal ann­ars sagði for­sæt­is­ráð­herra þetta: „Við erum búin að und­ir­búa kjara­við­ræð­urnar. Við erum búin að halda fjöl­marga auka­fundi á vett­vangi þjóð­hags­ráðs þar sem saman koma aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, sveit­ar­fé­lög, seðla­banki og stjórn­valda og ég held það skipti miklu máli að við höldum því þétta sam­tali áfram.“

Nú er nið­ur­staða alls hins þétta sam­tals komin í ljós í formi texta tveggja hag­fræð­inga, þar sem sýn valda­stétt­ar­innar er gerð lýðnum ljós: Lítið sem ekk­ert svig­rúm til launa­hækk­ana fyrir vinnu­aflið, ekki skal gefa Salek upp á bát­inn.“

Sólveig minnir á að við búum ekki við léns­veldi. „Laun eru ekki ölmusa yfir­stétt­ar­innar til þeirra sem vinna vinn­una, svo að þau geti skrimt. Verka­fólk, þau sem skapa arð­inn og halda umönn­un­ar­kerfum okkar uppi með vinnu sinni EIGA ein­fald­lega inni sinn skerf af hag­vext­inum og það eru þeirra lýð­ræð­is­legu rétt­indi að ákveða hvað þau vilja og þurfa. Það er ekki valda­stétt­ar­innar að ákveða á lok­uðum fundum. Við búum ekki í léns­veldi og erum ekki í ánauð, við erum frjálst full­orðið fólk og við látum ekki koma fram við okkur eins og ves­al­inga,“ segir Sólveig.

Hún segir yfir­stétt Íslands mark­visst vinna að því að auka mis­skipt­ingu. „Vinna verka­fólks er grund­völlur verð­mæta­fram­leiðslu þjóð­fé­lags­ins, skapar auð­inn sem yfir­stétt lands­ins hefur í miklum móð á síð­ustu árum graðkað til sín í formi skatta­af­sláttar vegna hluta­bréfa­brasks, yfir­töku á hús­næð­is­mark­aðnum, skattaund­an­skota og yfir­gengi­legra ofur­launa (t.d. er for­sæt­is­ráð­herra með 2.470.000 krónur í mán­að­ar­laun, hefur hækkað um 1.079.000 kr. á síð­ustu 6 árum, og for­seti lýð­veld­is­ins er með vel yfir 3 millj­ónir á mán­uði á sama tíma og hann er leigu­sali á algróða­væddum reyk­vískum leigu­mark­aði.) Hér væri hægt að nefna fjöl­mörg önnur dæmi um yfir­gengi­lega þörf íslenskrar yfir­stéttar til að vinna mark­visst að aukn­ingu mis­skipt­ingar, á sama tíma og hún dælir frá sér orða­sa­lötum um gæsku sína og frá­bær­leg­heit,“ segir Sólveig.

„Að fólk sem veit ekk­ert um líf vinn­andi fólks og lífs­skil­yrði, sem hefur svo lít­inn áhuga að það nennir ekki einu sinni að spyrja skuli telja sig þess umkomið að reyna að kæfa bar­áttu okkur fyrir efna­hags­legu rétt­læti er satt best að segja ógeðs­legt, ólýð­ræð­is­legt og að öllu leiti óþol­andi.“

Hún segir hafa óskað eftir fund­ar­gerðum Þjóð­hags­ráðs. „Þegar ég sá frétt­ina um alla fjöl­mörgu kjara­samn­ings-und­ir­bún­ings-fundi Þjóð­hags­ráðs bað ég for­seta ASÍ um fund­ar­gerðir. Sem for­maður í öðru stærsta verka­lýðs­fé­lagi lands­ins taldi ég að umræður á fund­unum kæmu mér mögu­lega eitt­hvað við. Mér var sagt að engar fund­ar­gerðir væru rit­aðar. Mér hefur ekki verið boðið að sitja þessa fundi og eftir því sem ég best veit er eng­inn full­trúi verka og lág­launa­fólks við­staddur. Það kemur reyndar ekki á óvart og er í takt við algjöran og sam­stilltan vilja þeirra sem telja sig þess umkomin að stjórna öllu til að jað­ar­setja vinnu­aflið hvar og hvenær sem er. Enda er eng­inn sann­leikur sann­ari á Íslandi í dag en sá að sér­fræð­inga­veldi meritókrasí­unnar skal hafa vit fyrir vinnu­afl­inu,“ segir Sólveig.

„Hverju hafa fund­irnir skilað? Engu. Eða nei, ég tek það til baka. Þeir hafa auð­vitað skilað mjög miklu. Þeir eru stórt verk­efni um stétta­sam­vinnu þess fólks sem telur sig svo yfir okkur verka­fólk hafið að þau þurfa ekk­ert umboð, ekk­ert sam­tal, engin sam­skipti við okkur. Þeirra „þétta sam­tal“ er aðeins innan þeirra þétta hóps og nið­ur­staðan er afger­andi: Stöð­ug­leik­inn í lífi okkar skal alfarið vera á kostnað ykkar. Við hækkun í launum um millj­ónir, en þegar kemur að ykkur er svig­rúmið á þrotum. Og ef þið eruð ósatt er það ein­ungis til marks um hvað þið eruð heimsk og sönnun á því að inn­leið­ing Salek getur ekki komið nógu fljótt.

Ég hafna nið­ur­stöðu hinna fjöl­mörgu funda Þjóð­hags­ráðs. Þetta fólk getur tekið þessar skýrslur sínar og troðið þeim beint í tæt­ar­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ