Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Bakslag hinsegin baráttunnar: „Yndislegi bróðir minn er samkynhneigður, leðurhommi, fjölkær og …“

Bakslag hinsegin baráttunnar: „Yndislegi bróðir minn er samkynhneigður, leðurhommi, fjölkær og …“
Mynd/sam­sett Systk­inin Eyrún og Guð­mundur Helgi Arn­ar­börn

Eyrún Arn­ar­dóttir lýsir bróður sínum, Guðmundi Helga, sem sam­kyn­hneigðum, leð­ur­homma, fjöl­kærum og frá­bærri fyr­ir­mynd í fébók­ar­færslu sinni. Þar fer hún yfir hræðsl­una sem hún upp­lifði í kjöl­far skotárás­ar­innar í Osló og bakslagið sem hefur orðið í bar­áttu hinsegin sam­fé­lags­ins og mik­il­vægi þess að opna frekar á sam­talið hvað felist í

fjöl­breyti­leik­anum

.Þá skrifar Eyrún: „Það skiptir máli að eiga sam­tölin, ekki bara kasta fram „fögnum fjöl­breyti­leik­anum” en loka svo augum og eyrum þegar við fáum að heyra hvað felst í fjöl­breyti­leik­anum,“ og bendir á að ef það vekji hjá fólki óþægi­leg við­brögð að ræða mál­efnið þá sé það skýrt merki þess að mál­efnið þurfi frek­ari umræðu. Þá gætu ein­hverjir spurt sig af hverju þeir ættu að hafa áhuga að setja sig inn í mis­mun­andi kyn­hneigðir og hvað felist í því að skil­greina sig sem fjöl­kæran eða leð­ur­homma. Þeirri full­yrð­ingu svarar hún: „Vegna þess að skömm þrífst í ótta og felu­leik.“Hér að neðan er ein­lægur pist­ill Eyrúnar í heild:

Hinsegin dagar

Und­an­farið hef ég hugsað mikið um bakslagið í hinsegin bar­átt­unni. Í sumar varð ég í fyrsta skipti hrædd um bróður minn vegna þess að hann er hommi. Það var ein­stak­lingur sem gerði skotárás á hinsegin sam­fé­lagið í Osló og ég varð log­andi hrædd um hann. Ég hugs­aði, hann er proud and loud, hann er í for­svari fyrir marga hópa innan hinsegin sam­fé­lags­ins. Ég hugs­aði: „Hvað ef þetta er bara fyrsta árásin og núna verður hvert örugga rýmið á fætur öðru verður skotið niður?“ Svo fatt­aði ég hvað ég var barna­leg í hugsun. Hinsegin sam­fé­lagið hefur aldrei verið laust við ofsóknir. Einn af kærustum hans Guð­mundar Helga fær morð­hót­anir bara vegna þess að hann er trans­maður. Öruggu rýmin eru bara örugg ef við styðjum við þau og erum öll proud and loud.Ynd­is­legi bróðir minn er sam­kyn­hneigður, leð­ur­hommi, fjöl­kær og frá­bær fyr­ir­mynd. Ég hef orðið vör við það að þegar ég tala um eða deili því að bróðir minn er leð­ur­hommi þá kemur oft fát á fólk og því finnst óþægi­legt að ég tali um hneigð bróður míns svo frjáls­lega. En það er nákvæm­lega ástæðan fyrir því að við eigum að tala um það. Það skiptir máli að eiga sam­tölin, ekki bara kasta fram „fögnum fjöl­breyti­leik­anum” en loka svo augum og eyrum þegar við fáum að heyra hvað felst í fjöl­breyti­leik­anum.Það er ekki nóg að fara með börnin okkar í gleði­göngu á nokk­urra ára fresti og gera ráð fyrir því að þau viti að við styðjum hinsegin sam­fé­lagið og raun­veru­lega fögnum fjöl­breyti­leik­anum. Við verðum líka að tala um það. Á hverju ald­ur­skeiði þurfum við að ræða málin. Ef okkur finnst óþægi­legt að tala um kyn­hneigð, kyn­vit­und og kyn­líf þá er það senni­lega merki um að við þurfum að tala meira um það.Fólk hefur mis­jafna þörf til að skil­greina kyn­vit­und og kyn­hneigð sína. Fyrir suma er stór hluti af þeirra sjálfi eða identity að vera Liverpool stuðn­ings­kvár. Fyrir suma er stór hluti af identity að vera Vopn­firð­ingur. Fyrir suma skiptir öllu máli að vita hver upp­runi þeirra er, á meðan aðrir sem jafn­vel vita ekk­ert um sinn upp­runa finna sinn upp­runa í sjálfu sér eða nán­asta umhverf­inu og það nægir þeim. Þegar að fólk opnar sig um kyn­vit­und sína og kyn­hneigð þá eigum við að hlusta, bera virð­ingu fyrir því og spyrja spurn­ing ef það er í lagi til þess að geta skilið það betur.Ég sýni bróður mínum mesta stuðn­ing­inn, að mínu mati, með því að sýna hans lífi áhuga. Tala við hann og fá inn­sýn inn í líf leð­ur­hommans á fet­ish-klúbbnum sem er svo stór partur af hans lífi. Ræða við hann um sam­böndin hans og spyrja spurn­inga um hvernig það er að vera í fjöl­kæru sam­bandi og hvort hann geti raun­veru­lega sofið þegar þeir sofa fjórir eða fleiri saman í rúmi. Það væri svo mik­ill missir að geta ekki átt þessi sam­töl og fræðst mikið um hluta af heim­inum sem ég er ekki hluti af og ég og minn maki höfum átt mik­il­væg sam­töl okkar á milli sem spinn­ast upp úr nákvæm­lega þessu. Við sem lifum í cis-gagn­kyn­hneigðu sam­bandi getum líka rætt um það hvort að sam­bandið sé alveg gang­kyn­hneigt. Erum við á hinsegin róf­inu? Erum við fjöl­kær? Hvernig virkar sam­þykki í okkar sam­bandi? Hvar liggja mörkin okkar? Hvað er öruggt kyn­líf fyrir okkur? Hvað þurfum við á að halda til þess að þríf­ast í sam­band­inu?Eflaust hugsar ein­hver: „Af hverju í and­skot­anum á ég að vita hvað það er að vera leð­ur­hommi eða hvort fólk sé fjöl­kært eða ekki?“Vegna þess að skömm þrífst í ótta og felu­leik.Það er frelsi í öryggi og öryggi í frelsi. Þegar við tölum og deilum fjöl­breyti­leik­anum stuðlum við að öryggi. Mér fannst svo fal­legt að heyra að eftir eitt við­tal þar sem Guð­mundur Helgi deildi sinni reynslu af fet­ish heim­inum, þá fékk hann skila­boð frá ungum skápa­leð­ur­homma, ung mann­eskja sem fann þessa hneigð hjá sér og leit­aði til Guð­mundar Helga til þess að fá ráð­legg­ingar um hvernig hann gæti nálg­ast þennan heim á öruggan hátt. Þegar við ræðum opin­skátt um fjöl­breyti­leik­ann þá gefum við hvert öðru tæki­færi til þess að dýpka okkar sanna sjálf, okkar identity. Þá getum við stutt hvert annað og fundið öryggi.Með vin­semd og virð­ingu,stolt systir, vin­kona og cis kona á hinsegin róf­inu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ