Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðrún var misnotuð sem barn og fékk magasár 10 ára: „Læknarnir greindu mig ímyndunarveika“

Guðrún var misnotuð sem barn og fékk magasár 10 ára: „Læknarnir greindu mig ímyndunarveika“
Guðrún Bergmann Mynd: Aðsend

Guðrún Bergmann er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Guðrún, sem hefur lengi starfað við heilsu, glímdi sjálf við mikið heilsu­leysi:

„Ég var alltaf sjálf að leita og lækn­arnir voru búnir að greina mig með ímynd­un­ar­veiki út af öllum ein­kenn­unum. Ég var búin að horfa á fólk í kringum mig taka mikið af lyfjum og vissi að það væri ekki mín leið. En ein­kennin voru mjög þrá­lát og ég var til dæmis alltaf með sýk­ingar í kinn-og enn­is­holum og melt­ingin í ólagi. Það var ekki fyrr en síðar að ég gerði þá teng­ingu að mis­notkun sem ég varð fyrir sem barn hafi spilað inn í. Ég sé núna að það bjó til mik­inn kvíða og setti lík­amann úr jafn­vægi. Ég fékk maga­sár þegar ég var bara 10 ára gömul, sem þótti með ein­dæmum og eftir það átti ég í miklu basli með melt­ing­una í mörg ár. Ég var að basla við alls konar vanda­mál í tauga­kerf­inu og lík­am­anum í fleiri fleiri ár.“

Guðrún rifjar í þætt­inum upp áhuga­verða tíma á ferli sínum:

Guðrún hefur um ára­bil haldið alls kyns nám­skeið og lauk nýlega nám­skeiði númer 80 í hreinu fæði og hreinsun á lík­am­anum

„Það er alltaf jafn­gaman að sjá hvað fólk finnur miklar breyt­ingar á þeim 3 vikum sem það hreinsar fæðið. Eftir þessar vikur hefur fólk svo tæki­færi á að velja upp á nýtt, þar sem kerfið er búið að hreinsa sig. Við lifum á tímum þar sem hefur aldrei verið meira af auka­efnum í mat og flestir eru í streitu, þannig að það er nauð­syn­legt að gefa lík­am­anum tæki­færi á að laga sig reglu­lega.“

Guðrún hefur verið óhrædd við að viðra skoð­anir sem ganga gegn meg­in­straumnum á köflum og hún segir að það hafi aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að fólk hlusti á inn­sæi sitt.

„Það eru mjög óró­legir tímar í heim­inum og stjórn­völd eru að grípa inn í líf fólks á mjög mörgum sviðum, meðal ann­ars varð­andi heilsu í Covid-tíma­bil­inu og hver og einn verður að reyna að finna innra með sér hvað er rétt og hvað ekki. Í mínum huga er það orðið mjög sér­stakt að ein stofnun (Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin) sé komin með hálf­gert alræð­is­vald yfir alls kyns hlutum,“ segir Guðrún

„Fyrir tveimur árum voru allir sem töl­uðu um það sem er að ger­ast í Davos og hjá World Economic Forum kall­aðir sam­sær­is­fólk, en nú er mjög margt af þessu orðið opin­bert og liggur bein­línis fyrir. Það er verið að ljóstra upp hlutum sem hafa verið í felum lengi og nú er ekki lengur hægt að loka bara aug­unum. Við höfum svo­lítið verið stödd í Truman-Show og svo einn góðan veð­ur­dag opnum við augun og sjáum hvað er að ger­ast.“

Guðrún seg­ist sjálf hafa orðið fyrir því að við­töl við hana hafi ekki verið birt af því að hún sé að tjá hluti sem ekki eigi upp á pall­borðið:

„Ég fór til dæmis í við­tal hjá Ásdísi Ólsen, sem var tekið í mars á síð­asta ári og átti að fara í loftið 11. apríl. Hún sendi mér klippur úr þætt­inum og allt í góðu með hljóð og mynd. En svo allt í einu segir hún mér að hljóðið hafi verið ónýtt í öllum hlutum við­tals­ins. Og mér var ekki boðið að end­ur­taka við­talið. Svo hafa fréttir úr þáttum þar sem ég hef tjáð mig verið teknar úr loft­inu nokkrum klukku­tímum eftir að þær voru settar inn.“

Guðrún seg­ist löngu komin á stað þar sem hún verður að vera sam­kvæm sinni eigin sann­fær­ingu og er sann­færð um það margt í til­ver­unni sé öðru­vísi en virð­ist við fyrstu sýn:

„Við erum and­leg vera í efn­is­legum lík­ama. Það er and­inn sem fer þegar fólk deyr, ekki lík­am­inn. Hann verður eftir. Þetta sá ég þegar mað­ur­inn minn dó. Hann dó heima og hálf­tíma eftir að hann var dáinn sá ég að and­inn var far­inn. Hann leit út eins og Gulli, en var ekki Gulli. Andinn var far­inn úr skrokknum. Andinn var það sem bjó til allt í þessum lík­ama, enda tal­aði hann sjálfur um að hann væri ekki þetta far­ar­tæki sem hann var í, heldur andi. Ég fæ gæsa­húð þegar ég tala um þetta.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Guðrúnu og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ