Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þórhildi fannst spennandi þegar hann var fyrst með annarri konu

Þórhildi fannst spennandi þegar hann var fyrst með annarri konu

Þór­hildur Magn­ús­dóttir, verk­fræð­ingur, er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Þór­hildur, sem hefur vakið athygli fyrir að tala opin­skátt um opið sam­band sitt og eig­in­manns síns, segir í þætt­inum frá upp­haf­inu að þeirri ákvörðun að opna hjóna­bandið:

„Fyrst fannst mér þetta bara áhuga­vert, en ég var ekki komin á þann stað að biðja hann um það eða vera viss um að ég vildi þetta. En þetta vakti mik­inn áhuga hjá mér og þaðan byrj­aði ég að ræða þetta við mann­inn minn. Svo leið tals­verður tími þar til að við tókum skrefið. Ein af ástæð­unum fyrir því að ég fann að ég vildi gera þetta var að ég veit að ég er tví­kyn­hneigð, en hafði aldrei prófað það af neinu viti. Ég vissi að ég vildi prófa að vera með konum, en mig lang­aði samt ekk­ert að hætta með mann­inum mínum. En það tók svo auð­vitað tíma að ákveða end­an­lega að opna sam­bandið og taka skrefið alla leið.”

Þór­hildur man vel eftir fyrsta skipt­inu sem mað­ur­inn hennar var með annarri konu eftir að þau opn­uðu sam­bandið:

„Ég var mjög spennt og man ekki eftir að hafa fundið fyrir mik­illi afbrýð­is­semi beint. Þetta var eins og að horfa á spennu­mynd, bara vit­andi að hann væri að fara að hitta hana og svo að heyra í honum á eftir. Ég hef alltaf verið mjög örugg með teng­ing­una mína við mann­inn minn, af því að við höfum alltaf verið heið­ar­leg og hann er bara gull af manni. Það áhuga­verða við afbrýð­is­semi þegar maður fer að kafa ofan í hana er að oft eru það bara hlutir eins og að maður sé ekki að fá næga athygli sem kveikja hana mest. Þó að birt­ing­ar­myndin á afbrýð­is­semi snú­ist oft um annað fólk, er oft stærsta ástæðan eitt­hvað innra með manni sjálfum. Það endar oft þannig þegar ég er að fræða fólk um sam­bönd að athyglin endar hjá manni sjálfum. Heil­brigður og heið­ar­legur ein­stak­lingur er miklu lík­legri til að eiga í góðu sam­bandi, alveg sama hvernig sam­band það er.“

Þór­hildur seg­ist fyrst hafa verið hik­andi um að opna á þessa umræðu opin­ber­lega:

„Þegar ég byrj­aði með Instagram-síð­una ætl­aði ég fyrst bara að tala um sam­bönd og veigraði mér við því að fara alla leið. Er ég að fara að vera mann­eskjan sem opnar þessa umræðu fyrir alla þjóð­ina?,” segir Þór­hildur og heldur áfram

„Við vorum búin að vera í opnu sam­bandi í nokkur ár áður en það fór í opin­bera umræðu. Ég og mað­ur­inn minn sam­mæl­umst yfir­leitt um alla umfjöllun og við­töl sem ég fer í, en pand­óru­boxið er opið núna og ég sný ekki til baka úr þessu. Ég er örugg­lega að trig­gera mjög marga og biðst bara afsök­unar á því. En við hljótum að eiga að geta rætt þessa hluti. Margir eru með mjög sterkar skoð­anir á þessu og sumir eig­in­lega bara brjál­aðir. En ég hef verið mjög góð alveg frá byrjun í að láta það ekki hafa áhrif á mig þó að ein­hverjir séu brjál­aðir út í mig á sam­fé­lags­miðlum eða í kommenta­kerfum. Ég næ að taka meira mark á öllum jákvæðu skila­boð­unum sem ég fæ. Minn ótti er meira hvort ég megi vera að bjóða upp á ráð­gjöf í sam­böndum, menntuð í hag­fræði og verk­fræði. Þannig að nei­kvæð skila­boð um það hafa haft meiri áhrif á mig heldur en fólk sem er með sterkar skoð­anir á því að ég sé í opnu sam­bandi.”

Þór­hildur vill eiga þátt í því að við ræðum heið­ar­lega um hluti opið og opin­ber­lega sem mjög margir eru að hugsa:

„Ég held að við séum árið 2022 komin á stað þar sem allir vilja vera heið­ar­legir og hafa hlut­ina uppi á borðum. Við erum í grunn­inn dýr og megum ekki gleyma því. Ég vil ekki láta festa mig í ein­hverjum hlekkjum þegar kemur að kyn­lífi og þegar allt er uppi á borðum og heið­ar­legt getur þetta gengið mjög vel. Lyk­il­at­riði í öllum sam­böndum, sama hvort þau eru opin eða ekki, er að fólk sé heið­ar­legt og þori að ber­skjalda sig. Mjög margir kaupa sig inn í hef­bundið sam­fé­lags­munstur, án þess að vilja það og það endar bara á að springa. Fólk er að halda fram­hjá og skilja úti um allan bæ og það er ekki eins og hefð­bundna munstrið sé að virka full­kom­lega hjá öllum. Það er frá­bært þar sem það virkar, en hver og einn verður að fá að finna hvað hentar og hvað við­kom­andi vill í sínu lífi. En aðal­at­riðið er að þora að sýna það hver maður raun­veru­lega er.”

Þáttinn með Þórhildi og alla aðra þætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast á heima­síð­unni: sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ