Magnús Orri Schram
, fyrrverandi alþingismaður Samfylkingarinnar, hefur um árabil glímt við samviskubit eftir að hafa greitt atkvæði með þeirri skoðun sinni að draga ætti ráðherrana
Ingibörgu Sólrúnu Gísladóttur
,
Árna Mathiesssen
og
Geir Hilmar Haarde
fyrir Landsdóm til að fá úr því skorið hvort þau hefðu brugðist þjóðinni í aðdraganda hrunsins.Mórall Magnúsar hefur að hans sögn staðið lengi. Í gær, rúmum áraug eftir að málið kom upp, skrifaði hann feita færslu á Facebook þar sem hann baðst afsökunar á öllu málinu. „Mín afstaða var þá að rétt væri að vísa málum Geirs H. Haarde, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Árna M. Mathiesen til Landsdóms. Þeirri ákvörðun sé ég eftir. Í dag vildi ég óska þess að ég hefði haft hugrekki til að tala fyrir því að umfjöllun um ábyrgð ráðherra hefði lokið á vettvangi nefndarinnar,“ skrifar hann og segist hafa persónulega beðið þau afsökunar á ábyrgð sinn.Landsdómur úrskurðaði sem frægt er orðið að Geir Haarde hefði sýnt af sér ákveðið kæruleysi í aðdraganda hruns og hann væri sekur fundinn. Aftur á móti var honum ekki gerð refsing vegna málsins. Geir reyndi að áfrýja málum til æðri dómstiga en hafði ekki erindi sem erfiði …































Athugasemdir