Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skúli fór á hausinn með látum: „Þetta er ákaflega sársaukafullur lærdómur“

Skúli fór á hausinn með látum: „Þetta er ákaflega sársaukafullur lærdómur“

Flug­fé­lag athafna- og ævin­týra­manns­ins Skúla Mogensen, WOW Air, fór á haus­inn með látum í mars mán­uði árið 2019. Þá hafði félagið háð lang­vinnt dauða­stríð fyrir opnum tjöldum og reynt ýmsar leiðir til bjargar.

Eftir mik­inn upp­gang árum saman lenti íslenska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið hans Skúla í veru­legum vand­ræð­um. Innan við hálfu ári fyrir end­an­legt fall WOW Air réð­ist félagið í skulda­bréfa­út­boð þar sem 50 millj­ónir dala söfn­uð­ust. Þær dugðu þó skammt.

Þá voru gerðar til­raunir til að renna félag­inu undir Icelandir en þær við­ræður sigldu í strand. Íslenska ríkið taldi sig heldur ekki hafa neinar for­sendur til að ganga inn í rekstur WOW air. Og að morgni 28. mars 2019 fór félagið í þrot.

Skúli ætl­aði sér stóra hluti með WOW Air en end­aði í risa­stóru gjald­þroti.

Svakalegt tap

WOW air óx mjög hratt á skömmum tíma og átti ekki sjóðs­stöðu til að takast á við þær sveiflur sem félagið lenti í. Flug­fé­lagið hans Skúla tap­aði 2,4 millj­örðum króna á árinu 2017 og um mitt ár 2018 átti fyr­ir­tækið of lítið eigið fé til að takast á við þá stöðu sem var uppi.

Fjöl­miðlar birtu gögn um veru­lega dapra fjár­hags­stöðu WOW air haustið 2018 og virt­ist félagið þá í líf­róðri. Þrátt fyrir margra mán­aða leit og ótelj­andi fundi með fjár­festum fékkst eng­inn til að leggja WOW air til það fé sem vant­aði upp á. Á end­anum voru það leigusalar WOW air sem kyrr­settu vélar félags­ins sem leiddu til þess að það fór í þrot.

Blikur voru á lofti á þónokkurn tíma áður en WOW féll og varð margra millj­arða tapa á rekstri flug­fé­lagsin undir það síð­asta.

Hópuppsagnir

„Þetta er ákaf­lega sárs­auka­fullur lær­dómur,“ sagði Skúlí í bréfi til starfs­fólks á aðvent­unni árið 2018. Þann 13. des­em­ber var hund­rað og ell­efu fast­ráðnum starfs­mönnum félags­ins sagt upp. Upp­sagn­irnar voru þvert á deildir og svið félags­ins. Á sama tíma lá fyrir að miklar breyt­ingar yrðu gerðar á leiða­kerfi félags­ins og var til dæmis nýtil­kynntu flugi til Nýju-Delí blásið af. Einnig var hætt við flug til ýmissa áfanga­staða vest­an­hafs, þar á meðal Los Angeles og Chicago. Fjöldi hluta­starfs­manna og verk­taka var einnig tek­inn af launa­skrá á sama tíma og var heild­ar­fjöldi upp­sagna 237. Í bréfi til starfs­manna sagð­ist Skúli vera algjör­lega miður sín.

Daginn eftir hóp­upp­sagn­irnar sendir WOW frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kom að banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners myndi fjár­festa í flug­fé­lag­inu. Fjár­fest­ingin átti að geta numið allt að 75 millj­ónum Banda­ríkja­dala, sem sam­svar­aði nærri 9,3 millj­örðum íslenskra króna.

Þetta gekk ekki eftir og síðla mars 2019 til­kynnti WOW að við­ræðum þess við banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið hafi verið slitið Á sama tíma sam­þykkti stjórn Icelandair að hefja við­ræður um aðkomu að rekstri WOW. Þær við­ræður runnu einnig út í sand­inn þar sem slæm fjár­hags­staða WOW kom í veg fyrir að for­svars­menn Icelandair treysti sér til að halda áfram.

Vildi ríkisábyrgð

Um miðjan febr­úar 2019 bað Skúli um frest fram í miðjan mars 2019 til að gera upp ógreidd lend­inga- og far­þega­gjöld á erlendum flug­völlum. Skömmu síðar óskaði hann eftir því að íslensk stjórn­völd veittu félag­inu rík­is­á­byrgð á lána­fyr­ir­greiðslu frá Arion banka til þess að tryggja rekstur félags­ins til skemmri tíma. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, sagði það af og frá og að það væri ekki hlut­verk rík­is­ins að koma fyr­ir­tækjum til hjálpar vegna rekstr­ar­vanda.

Aðeins tveimur dögum fyrir fall WOW, þann 26. mars 2019, sam­þykktu kröfu­hafar félags­ins að breyta skulda­bréfum sínum í hlutafé og hófust á sama tíma við­ræður við fjár­festa um mögu­lega aðkomu að rekstri félags­ins. Aðeins tveimur dögum síðar var allt flug WOW til og frá land­inu stöðvað. Farþegar WOW sem áttu bókað flug með félag­inu voru því strand­aðir og var ekki ljóst hvenær næstu flug WOW færu í loftið, ef þau myndu gera það yfir höfuð. Tveimur klukku­tímum eftir að þetta var til­kynnt lá fyrir að WOW Air var farið á haus­inn.

Icelandair flaug um 7.500 stranda­glópum WOW til síns heima í kjöl­far gjald­þrots WOW. Áhafn­ar­með­limir sem strand­aðir voru víða voru um hund­rað tals­ins og var þeim flogið heim þeim að kostn­að­ar­lausu. Í kjöl­far falls WOW misstu ell­efu hund­ruð ein­stak­lingar vinn­una.

Play verður til

Þúsundir gerðu kröfu í þrotabú flug­fé­lags Skúla Mogensen. Þegar kröfu­lýs­inga­skrá var lokað námu kröfur í þrota­búið 128 millj­örðum króna og voru 5.964 ein­stak­lingar og lög­að­ilar sem lýstu kröfu í búið.

Hópur fjár­festa og tveir fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá WOW hófu vinnu við stofnun nýs íslensks lággjalda­flug­fé­lags á grunni WOW Air. Síðla árs 2019 var svo flug­fé­lagið Play Air kynnt til leiks.

Þá keypti banda­ríska fyr­ir­tækið Oasis Aviation Group allar rekstr­ar­tengdar eignir úr þrota­búi WOW Air. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins, Michelle Ballarin, er banda­rísk athafna­kona og á sér skraut­lega sögu.

Í dag eru því tæp fjögur ár liðin frá falli WOW Air og hafði fall félags­ins mikil áhrif á atvinnu- og efna­hags­líf á Íslandi. Skúli Mog­ens­sen hefur hins vegar ekki setið aðgerð­ar­laus og hefur hann meðal ann­ars opnað sælu­stað í Hvamms­vík í Hval­firði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ