Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vítalía og Arnar versluðu saman í matinn – Dýrasta ást Íslandssögunnar

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Arnar Grant og Vitalía Lazereva hafa sést saman undan­farið. Heimildir Mannlífs herma að þau hafi verið saman í Krónunni á Hval­eyrarholti í Hafnar­firði síðdegis á sunnudag að versla í matinn. Samkvæmt heimildum Mannlífs er vinskapur Arnars og Vítalíu sterkur. Óljóst er þó hvers eðlis samband þeirra er en mikið uppnám hefur fylgt þeim frá því hún upplýsti um meint kynferðislegt áreiti í sinn garð. Máli þeirra hefur verið lýst sem dýrasta ástar­sambandi Íslands­sögunnar.

Í lok júní bárust fregnir bárust af því að Arnar og Vítalía höfðu verið kærð til héraðs­saksóknara fyrir tilraun til fjár­kúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs. Kærendur voru Ari Edwald, Hregg­viður Jóns­son og Þórður Már Jóhannes­son.

Upphafið var í byrjun árs þegar Vítalía greindi frá því í hlaðvarps­þættinum Eigin konur að hún ætlaði sér að leita réttar síns, eftir að hafa orðið fyrir meintu kynferðis­ofbeldi af hálfu þremenningana. Í sama þætti greindi hún frá ástar­sambandi sínu við kvæntan mann, Arnar Grant, sem bauð henni í sumar­bústað þar sem hún sagði meint brot hafa átt sér stað í heitum potti við sumar­bústað Þórðar Más þar sem fjór­menningarnir voru naktir ásamt henni.

Vítalía lýsti því einnig í viðtalinu hvernig Arnar hefði veitt fjölmiðla­manninum Loga Bergmann kynferðis­legan aðgang að henni í golfferð haustið 2021. Uppnám var vegna uppljóstrananna. Logi missti vinnuna eins og Ari Edwald. Þórður Már sagði af sér sem stjórnar­formaður Festis, sem rekur Krónuna. Arnar skildi við konu sína. Þá var það rakið til málsins að Eggert Þór Krist­ófersson, forstjóri Festis, var rekinn úr starfi. Hann hafði sýnt málstað Vítalíu skilning og átt viðræður við hana.

Rúmu hálfu ári eftir uppljóstrunina, í byrjun júlí, steig Arnar loks fram og sagði Vítalíu ekki hafa farið rétt með frásögn af Loga. Aðspurður hvers vegna hann hafi þagað yfir þessu í hálft ár, svaraði Arnar: „Hvar átti ég að byrja til að vinda ofan af þessu? Skaðinn var skeður og ég vildi bara hlífa fjöl­skyldunni og öðrum. Ég var hræddur við enn meira skítkast, ásakanirnar voru svo þungar að ég átti ekki von á að mér yrði trúað. Andrúms­loftið í samfélaginu var ekki vinveitt og ég vildi bara ekki fara í einhvern leðjuslag.“

Ekki liggur fyrir hvað breyttist hjá Vítalíu og Arnari. Hann kvaðst í samtali við Mannlíf í júní ekki heyrt í Vítalíu lengi. Hvorki náðist í Arnar né Vítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt