Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hreyfing í máli Gylfa: „Ég mun örugglega ræða þetta innan nefndar“

Hreyfing í máli Gylfa: „Ég mun örugglega ræða þetta innan nefndar“
Njáll Trausti Frið­bergs­son.

Fyrsti vara­for­maður utan­rík­is­nefndar, Njáll Trausti Frið­berts­son, ætlar að óska eftir betri upp­lýs­ingum um mál Gylfa Þór Sig­urðs­sonar knatt­spyrnu­manns hjá nefnd­inni.

Í gær kom fram að óskað hefði verið eftir því að utan­rík­is­ráð­herra, sem og hennar ráðu­neyti, myndu hjálpa við að Gylfi fengi flutt lög­heim­ili sitt til Íslands.

Eins og alþjóð veit var Gylfi hand­tek­inn í júlí í fyrra á Englandi, og er grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi.

Gylfi Sig

Málið hefur verið í rann­sókn allan þennan tíma, en Gylfi hefur verið í far­banni frá Englandi síðan þá:

„Þetta er leið­inda­mál með Gylfa í Bret­landi. Auðvitað er Bretland rétt­ar­ríki með sína dóm­stóla og fer með sín mál, íslensk stjórn­völd fara varla beint í að skipta sér með beinum hætti að því. Utan­rík­is­ráðu­neytið er hins vegar með sína borg­ara­þjón­ustu og kemur að með almennum hætti fyrir alla Íslend­inga, hvort sem þeir eru þekktir eða óþekktir. Það sem er nátt­úru­lega leið­in­legt í þessu máli er þessi tíma­lengd sem er ótrú­leg,“ sagði áður­nefndur Njáll í útvarps­þætt­inum Í Bítinu á Bylgj­unni núna í morgun.

Gylfi hefur beðið eftir nið­ur­stöðu lög­reglu í fimmtán mán­uði og hefur lengd rann­sókn­ar­innar vakið mikla athygli:

„Þetta eru orðnir fimmtán mán­uðir. Auðvitað getur maður líka velt því fyrir sér að atvinnu­manna­fer­ill í knatt­spyrnu stendur nú kannski yfir í 10-15 fimmtán ár í mesta lagi. Þarna er verið að stytta þann feril mjög mikið nú þegar þetta eru orðnir fimmtán mán­uðir og fyrir hvaða mann­eskju sem er, er það erfitt að standa í þessum aðstæðum í svona gríð­ar­lega langan tíma. Auðvitað á við­kom­andi aðili rétt á því, sama hvernig málið fer, að tala fyrir sínum rétt­indum, fá bætur eða eitt­hvað í þá átt­ina, ef illa hefur verið farið með við­kom­andi.“

Þátta­stjórn­and­inn Heimir Karlsson bætti við:

„Maður hefur séð aðrar rík­is­stjórnir beita sér fyrir eða hjálpa þegnum sínum sem hafa lent í fang­elsum hér og þar um allan heim.“

Njáll segir að málið snú­ist fyrst og síð­ast um mann­rétt­indi Gylfa:

„Ég er ekki lög­lærður maður, en auð­vitað snýst þetta um mann­rétt­indi og við þurfum að fylgja mál­inu. Ég mun örugg­lega ræða þetta innan nefndar og sjá hver staðan er í þessu máli, hvað sé hægt að gera. Mig grunar, miðað við það sem maður hefur kynnt sér í sam­bæri­legum málum í gegnum tíð­ina, að þarna erum við að vinna með okkar nán­ustu banda­mönnum eða vina­þjóðum. Þær eru með sitt kerfi. Ég skal svo sann­ar­lega reyna fá betri upp­lýs­ingar um þetta í nefnd­inni og það hvernig farið er með svona mál. Það sem er hins vegar mik­il­vægt í þessu er að þetta gildir fyrir alla, það er punkt­ur­inn sem við verðum alltaf að hafa í huga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum