Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Séra Arnaldur hvetur Jón Baldvin til að „misbjóða ekki fleirum“ og hætta að „þrjósk­ast við“

Séra Arnaldur hvetur Jón Baldvin til að „misbjóða ekki fleirum“ og hætta að „þrjósk­ast við“
Séra Arnaldur Máni Finnsson.

Séra Arnaldur Máni Finnsson birtir grein í Morg­un­blað­inu þar sem hann hvetur Jón Baldvin Hanni­bals­son fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra til að setj­ast í helgan stein.

Arnaldur er sonur Elísa­betar Þor­geirs­dóttur; hún steig fram í pistli í Morg­un­blað­inu og gagn­rýndi fram­göngu Jóns Baldvin gagn­vart þeim ásök­unum sem á hann hafa verið bornar; er Elísabet ein þeirra kvenna sem lýst hafa kynnum sínum af Jóni Baldvin inn á MeToo-síðu sem sett var á lagg­irnar fyrir þremur árum síðan:

Jón Baldvin Hanni­bals­son

„Ég er son­ur konu sem var beitt kyn­ferð­isof­beldi og hef­ur reynt að vinna sig út úr þeirri reynslu, meðal ann­ars með harð­snú­inni göfg­un til­finn­inga eins og reiði og sárs­auka, um langa hríð og viljað styðja önn­ur sem búa að erf­iðri reynslu.

Það er henn­ar hlut­skipti, eins og margra sem þráðu að njóta sann­mæl­is á lið­inni öld, þar sem kyn, kyn­hneigð, stétt eða önn­ur staða gat or­sakað jaðar­setn­ingu. Hún var hluti þjóðfé­lags­breyt­inga þar sem hin valda­lausu köll­uðu eft­ir hinum heil­aga rétti til að vera upp­reist­ar mann­eskj­ur. Ég spyr þig: Get­ur þú ímyndað þér hvert hún sótti kraft­inn til að stíga fram, þrátt fyr­ir niður­brot og níð­ings­skap manns sem mis­beitti valdi í krafti stétt­ar og stöðu? Það var jú fyrst fyr­ir hálfri öld síðan en hann þrjósk­ast við það enn í dag.“

Bætir við:

„Þau sem standa nærri verða þolendur þess líka. Þekkjum það öll. Þolandi eða aðstand­andi; gildir það ekki einu? Ég er á móti ofbeldi og stend með þolendum ofbeldis því reynslan mótar mann. Og því stíg ég fram hér.

Því fer fjarri að sá sem frið­helgi krefst leiti náðar. Hann smyr í and­lit við­hlæj­enda og játn­inga­bræðra spurn­ing­unni um það hvað sé að „að njóta sann­mælis“. Þannig krefst hann sam­sektar þeirra sem útvega vett­vang glæpa hans. Því býð ég örlít­inn fróð­leik þó holl­ráð verði engin þegin. Ofbeld­inu er við­haldið. Við þá sem velja sér opin­beran vett­vang með sjálfs­rétt­læt­ing­ar­svip til að útmála mein­tan fjöl­skyldu­harm­leik, sak­lausum les­endum þessa fjöl­mið­ils til miska, segi ég: Mis­bjóðið ekki fleirum. Gangið til náða.

Vittu nú til Jón minn, sumt er ekki svara vert. Það ætti reynsl­an af því að klæm­ast við ung­meyj­ar að hafa kennt þér. Ég votta samúð mína öllu sam­ferða­fólki í „ævin­týr­inu“ sem líf hins mikla skóla­manns og stjórn­vitr­ings hefur verið. Sem betur fer ráðum við því sjálf hvenær við stígum inn á það svið, hvaða hlut­verk við tökum – ef við höfðum ein­hvern tíma tæki­færi til þess – og hverju við höfnum. Við erum sjálf­ráða um það hvort, hvernig og hvenær ævin­týri „hins mikla satýri­kons“ lýkur í okkar eigin lífi. Lífið er ekki stríðs­völlur kappa. Völd og áhrif ekki náðin sjálf. Höfðingj­um forn­ald­ar reynd­ist erfitt að sjá á eft­ir áhrifa­valdi sínu og ját­ast und­ir það lög­mál að dóm­ur sög­unn­ar og æðri mátt­ar­valda er ekki í þeirra hönd­um. Þeir höfðu val um að setj­ast í helg­an stein. Ég hvet þig, hr. Jón Bald­vin Hanni­bals­son, til þess að láta á það reyna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ