Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sólveig tekur fyrirtækjaeigendur til bæna – Krefst þess að öll mánaðarlaun hækki um 167.000 krónur

Sólveig tekur fyrirtækjaeigendur til bæna – Krefst þess að öll mánaðarlaun hækki um 167.000 krónur
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, greinir frá því á Facebook að í morgun hafi hún sent kröfu­gerð til Samtaka atvinnu­lífs­ins fyrir hönd félags­ins. Þar ber helst að nefna kröfu um að öll mán­að­ar­laun hækki um sam­tals 167.000 krónur yfir þriggja ára samn­ings­tíma. Hún segir þann tíma lið­inn að fyr­ir­tækja­eig­endur geti kom­ist upp með að borga fólki annað en mann­sæm­andi laun.

Færsla hennar í heild sinni má lesa hér fyrir neðan en hér má lesa kröfu­bréfið.

Í morgun sendi ég fyrir hönd samn­inga­nefndar Eflingar kröfu­gerð félags­ins til Samtaka atvinnu­lífs­ins. Kröfu­gerð­ina má skoða í fyrstu athuga­semd við þessa færslu.

Algjör ein­hugur var hjá samn­inga­nefnd Eflingar um kröfu­gerð­ina og var hún sam­þykkt ein­róma á fundi okkar í gær, eftir mikla vinnu.

Í körfu­gerð­inni förum við fram á hækkun allra mán­að­ar­launa um sam­tals 167.000 krónur yfir þriggja ára samn­ings­tíma. Við setjum fram kröfu um sér­stakra fram­færslu­upp­bót. Við krefj­umst krónu­tölu­hækk­unnar að fyr­ir­mynd Lífs­kjara­samn­ings­ins.

Afkoma fyr­ir­tækja og hag­vöxtur eru í hæstu hæðum. Með hækk­unum kröfu­gerðar samn­inga­nefndar Eflingar er hlut­deild félags­fólks í hag­vext­inum tryggð. Ef að við fórnum kaup­mætti okkar þá rennur hag­vöxt­ur­inn til eig­enda fyr­ir­tækj­anna, en ekki þeirra sem með vinnu sinni skapa hann. Vinnandi fólk og full­trúar þeirra geta aldrei sam­þykkt slíka nálgun í kjara­samn­ingum. Fyr­ir­tækja­eig­endur njóta arðs af sínum eigun en launa­tekjur eru í hættu. Eflingar-félagar munu ekki að umbera aðför auð­magns­eig­enda að lífs­skil­yrðum sínum og fjöl­skyldna sinna í vetur.

Hluti þeirra hækk­ana sem við förum fram á snýr að því að leið­rétta það frá­leita ástand að laun verka og lág­launa­fólks dugi ekki til fram­færslu sam­kvæmt opin­berum við­miðum. Stað­reyndin er sú að við­var­andi halla­rekstur er á heim­ilum lág­tekju­fólks. Full­vinn­andi fólk sem að jafn­vel bætir við sig auka­vinnu kemur samt út í mínus á hverjum mán­uði. Það er til hábor­innar skammar í einu rík­asta þjóð­fé­lagi í heimi.

Við í samn­inga­nefnd Eflingar höfum lagt mikla vinnu í und­ir­bún­ing kröfu­gerð­ar­innar. Þess ber einnig að geta að yfir 4500 Efl­ing­ar­fé­lagar eiga þátt í mótun hennar með þátt­töku sinni í kjara- og við­horfskönnun félags­ins sem fram­kvæmd var á 10 tungu­málum.

Verkefni okkar í samn­inga­nefnd Eflingar er skýrt. Við ætlum að standa vörð um hags­muni Eflingar-félaga og halda áfram á þeirri braut að ná fram kjara­bótum fyrir félags­fólk. Þau sem skapa verð­mætin og halda uppi grunn­kerf­unum eiga heimt­ingu á hlut­deild í hag­vexti og auð sam­fé­lags­ins.

Greiðsla mann­sæm­andi launa er ekki hættu­leg sam­fé­lagi okkar. Þvert á móti er það ein­fald­lega skylda eig­enda fyr­ir­tækj­anna að greiða vinnu­afl­inu mann­sæm­andi laun fyrir unna vinnu.

Félags­fólk Eflingar vill búa í sam­fé­lagi jöfn­uðar og rétt­lætis. Það vill berj­ast gegn mis­skipt­ingu og stétt­skipt­ingu. Það krefst sann­girni og virð­ingar. Það er til­búið til að standa saman til að knýja á um betri kjör. Og af þessum ástæðum veit ég að Eflingar-fólk mun ná raun­veru­legum árangri í vetur.

Sjáumst í bar­átt­unni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ