Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ágúst greindist 27 ára með ristilkrabbamein: „Hafði enga trú á að nokkuð gæti gengið upp héðan af“

Ágúst greindist 27 ára með ristilkrabbamein: „Hafði enga trú á að nokkuð gæti gengið upp héðan af“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er hann Ágúst Kristján Stein­ars­son stjórn­un­ar­ráð­gjafi, tón­list­ar­maður, fyr­ir­les­ari og rit­höf­undur. Ágúst er með langa sögu af geð­kvillum sem og bar­áttu við krabba­mein sem þeir tóku púls­inn á í þætt­inum. Hér er brot úr við­tal­inu.

Maga­bólgur sem breytt­ust í krabba­mein

Ágúst greind­ist með ristil­bólgur eftir tíðar heim­sóknir á kló­settið en aðeins 27 ára fékk hann krabba­mein í ristil­inn sem varð til þess að hann var fjar­lægður og gengur hann með stóma í dag.

„Mér var sagt það mjög snemma að sárar bólgur gætu leitt til krabba­meins.“ sagði Ágúst við þá Wiium bræður en aðspurður út úr maga­bólg­urnar, hvort þær hafi komið vegna áfalla eða tengd­ust til­finn­inga­líf­inu á ein­hvern hátt svar­aði hann: „Ég hef alveg spurt mig að þessu, hef snúið þessu við, ef ég hefði fengið hjálp­ina sem ég fékk í Danmörku [Innskot blaða­manns: vegna maníu sem hann var greindur með] þegar ég var 19 ára, hvernig hefði lífið orðið þá? Þannig að já, til­finn­ingar, taugar, heil­inn, þetta teng­ist allt saman. Við vitum það núna, það var ekki vitað þá.“

Ágúst sagði að það hefði verið mikið sjokk fyrir 27 ára gamlan mann að grein­ast með krabba­mein. „Ég átti þarna eins árs gamla dóttur og hugs­aði bara „hvað er nú að ger­ast? Mun hún missa mig?“ en svo viku seinna er ég mættur undir hníf­inn og er skor­inn upp. Og nú er ég með stóma“

Bræðr­unum vakti mikil for­vitni á að vita hver verk­fræðin í kringum þetta væri og spurðu hann spjör­unum úr og mest fannst þeim til þess koma að það væri ein­fald­lega búið að sauma fyrir rass­inn enda ekki lengur í notkun þökk sé þess­ari snilldar verk­fræði lækna­vís­ind­anna.

„Í mínu til­felli er búið að fjar­lægja ristil­inn og smá­girnið kemur út úr mag­ann, það kemur bara svona stautur út og svo plata og poki yfir. Svo fyllist pok­inn og ég losa úr honum að neðan.“

Ágústi fannst erfitt fyrst um stund að fara í sund en svo vand­ist þetta og miðað við það vesen sem hann hafði verið í varð­andi melt­ing­una, er þetta allt annað líf og lífs­gæði.

Ágúst á aug­lýs­ingu

Hafði enga trú á að eitthvað gengi upp

Ágúst Kristján seg­ist hlakka til að fagna 10 árum af „frelsi frá sjúkra­hús­inu“ en hann seg­ist hafa verið meira og minna á sjúkra­húsi í 14 ár [Innskot blaða­manns: vegna maníu og melt­inga­vand­ræða]. „Það að ég sé hér í dag og á þessum stað er krafta­verk. Ég kom út úr þessum veik­indum alveg hreinn en brot­inn. Ég var ný skil­inn, mér var sagt upp starfi út af öllu havarí­inu og vit-laus. Ég hafði enga trú á mér til fram­tíðar. Ég hafði enga trú á að nokkuð gæti gengið upp héðan af. Þetta gekk í tvö ár, þar sem ekk­ert gekk upp. En svo gerð­ist ég jökla­leið­sögu­maður og var að leika mér í raun, með ferða­mönnum, með leið­sögu­mönnum, með jöklum og fjöllum. Og ég í raun hlóð bara batt­er­íin í tvö ár.“

Ágúst fór svo að starfa sem stjórn­un­ar­ráð­gjafi og smá saman tók hann lífið fast­ari tökum og kom sér á þann stað sem hann er á í dag.

Forðast að leggja línurnar

Að lokum spurði Gunnar Ágúst ráða, varð­andi hvað við þurfum að gera til að við­halda góðu and­legu jafn­vægi.

„Ég forð­ast það að leggja lín­urnar. En frá mínum bæj­ar­dyrum skal ég láta vaða. Það sem ég er að leit­ast við að gera er að vera í eigin flæði, eigin takti. Ég ætla ekki að láta aðra stjórna því hvernig ég lifi. Þannig er ég sjálf­stætt starf­andi og get bara hagað mér eins og ég vil. Eins og til dæmis ef ég finn fyrir lít­illi orku þá get ég bara hvílt mig og ekki mætt í dag. Það er bara minn taktur þann dag­inn. Svo reyni ég að hafa allt í hófi, hversu mikið álagið er og ég skal alveg við­ur­kenna að ég er ekki alltaf sá dug­leg­astur í því. Svo er það svefn, hreyf­ing, nær­ing, nær­andi sam­skipti og það að hafa eitt­hvað outlet, eins og mitt er, sem ég get alltaf treyst á, er að fara í gufu og svo kalda pott­inn, þá er ég góður. Ég get bara núll­stillt mig þar. Og líka að fara upp í fjöll og á skíði og fleira. Stundum gleymi ég mér og það er alveg aug­ljóst að ég er kom­inn á erf­iðan stað, þá þarf ég bara að henda mér upp á fjall.“

Þennan ein­lægja og afslapp­aða þátt má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streym­isveitum, spotify meðal ann­ars. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ