Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Valur Gunnarsson – Þegar friðurinn er orðinn óeðlilegt ástand

Valur Gunnarsson – Þegar friðurinn er orðinn óeðlilegt ástand
Valur Gunn­ars­son. Mynd: Börkur Gunnarsson.

„Mér rann eig­in­lega blóðið til skyld­unnar. Ég hafði verið áður í Úkraínu og skrifað um það bók­ina Bjarma­lönd sem hálf þjóðin virt­ist vera farin að lesa eftir að stríðið braust út. Mér fannst ég þurfa að fara aftur og fjalla um það sem er að ger­ast núna. Ég gerði útvarps­pistla fyrir Rás 2 og skrif­aði greinar á vef þeirra sem og í Stundina. Og svo verður þetta lík­lega bók á end­anum. Blaða­menn eru mjög vel séðir í Úkraínu þessa dag­ana, enda vita menn þar að þeir eiga mikið undir að fólk gleymi ekki því sem er að ger­ast,“ segir Valur Gunn­ars­son, blaða­maður og rit­höf­undur, sem er til­tölu­lega nýkom­inn frá Úkraínu.

Í Odesa heyrði ég í fyrsta sinn í spreng­ingum.

„Stríðið stig­magn­að­ist eftir því sem ég hélt lengra. Fyrsta stopp var í Lviv, vest­ast í land­inu, þar sem er fremur rólegt en útgöngu­bann. Loft­varn­ar­síren­urnar vönd­ust, enda tók fólk þeim almennt ekki mjög alvar­lega. Í Kyiv var einnig fremur rólegt en þar sá ég fyrst sund­ur­skotin hús, ekki síst í úthverf­unum Bútsja og Irpin. Það er hrika­legt að hugsa til þess sem þar átti sér stað en fólk þar virð­ist stað­ráðið í að halda líf­inu áfram. Suður í Mykolaiv hefur borgin verið vatns­laus mán­uðum saman og það var magnað að sjá fólk frá nágranna­bæjum koma viku­lega með vatns­birgðir sem það safnar saman kaup­laust en með mik­illi fyr­ir­höfn. Í Odesa heyrði ég í fyrsta sinn í spreng­ingum þegar Pútín réð­ist á höfn­ina rétt áður en sam­komu­lagið um hveiti­flutn­ing­ana gekk í garð.“

Valur fór undir lok sum­ars til aust­ur­hér­að­anna rétt eftir að gagnárásin hófst. Með honum í för var eis­n­eskur maður sem hann segir að hafi verið að flytja vistir á víg­stöðv­arnar. „Í Kharkiv var mikið stríðs­á­stand, mið­bær­inn í rúst og engin ljós á götum og var mest­allt lokað. Um ell­efu­leytið byrj­uðu Rúss­arnir að skjóta og næt­ur­him­inn­inn varð blár. Á ferð um Donbas tókum við upp í bíl­inn tvo skrið­drekaliða sem höfðu fengið fimm daga leyfi í fyrsta sinn síðan stríðið hófst fyrir að hafa grandað tveimur rúss­neskum skrið­drekum og lá á að kom­ast heim og hitta fjöl­skyldur sínar þótt eld­flaug­arnar flugu yfir. Í Dnipro var ég svo fyrir raun­veru­legri árás þegar bíll­inn titr­aði undan loft­skeytum sem lentu í grennd­inni. Við reyndum að finna upp­tökin til að veita aðstoð en tókst ekki. Fimm lét­ust þá nótt­ina og þetta var það sem tók mest á. Þetta fólk átti alveg jafn­mik­inn rétt á því að lifa nótt­ina af og ég en fékk ekki.“

Starði örvinglað út í loftið

Valur fór til fleiri landa í Austur-Evrópu á þessum tíma.

„Ég fór fyrst til Póllands enda er ekk­ert far­þega­flug til Úkraínu. Í Wroclaw hitti ég konu sem hafði áður unnið á Íslandi og hafði tekið þátt í að taka á móti flótta­mönnum eftir að stríðið braust út. Hún sagði að börnin vissu varla hvað væri að ger­ast en að full­orðnar konur myndu finna sér ein­hverja leið til að takast á við þetta allt. Verst var þetta fyrir gamla fólkið sem starði örvinglað út í loftið, búið að missa allt og þyrfti nú að hefja nýtt líf. Það eru víða flótta­manna­mið­stöðvar bæði í Póllandi og Slóvakíu en í sumar lá straum­ur­inn í hina átt­ina, sum sé heim til Úkraínu. Ef til vill er annað uppi á ten­ingnum núna þegar verið er að sprengja inn­viði og það vantar hita og raf­magn og vetur fær­ist yfir.“

Loft­varn­ar­sírenur, sund­ur­skotin hús og eld­flauga­árásir verða brátt dag­legt brauð.

Hvaða áhrif hafði þetta allt á Val?

„Kannski er það und­ar­leg­ast hvað maður venst fljótt við. Loft­varn­ar­sírenur, sund­ur­skotin hús og eld­flauga­árásir verða brátt dag­legt brauð eins og það auð­vitað er orðið fyrir Úkra­ínu­menn sjálfa. Það var fyrst þegar ég var kom­inn yfir til Slóvakíu og mér brá að sjá flug­vél fljúga yfir og enn meira þegar ég fékk blátt ljós í augun af reið­hjóla­lukt sem átti leið hjá og minnti mig á eld­flauga­árás að ég fann að frið­ur­inn var orð­inn óeðli­legt ástand. En þetta stóð aðeins yfir í nokkra daga og svo vand­ist ég við á ný.“

Það eru litlar líkur á að Úkra­ínu­menn gef­ist upp.

Hann lærði ýmis­legt af þessu. „Kannski hvað aðlög­un­ar­hæfni okkar dýra­teg­undar er mikil og fólk er stað­ráðið í að halda áfram og reyna, eftir atvikum, að lifa eðli­legu lífi. Það sem áður var óhugs­andi verður á end­anum eðli­legt og fólk lærir að takast á við það. Og það eru litlar líkur á að Úkra­ínu­menn gef­ist upp; en það vissi ég jú fyrir.“

Valur segir að það sé erfitt að segja hvort hann horfi á heim­inn öðrum augum en áður út af þessu?

„Sem sagn­fræð­ingur hef ég löngum gert mér grein fyrir skugga­hliðum mann­kyns og að stríð brjót­ast reglu­lega út, jafn­vel þótt fæstir vilji það. En það er auð­vitað dálítið annað að sjá það með eigin augum frekar en í sögu­bókum. Best væri ef stríð væru aðeins til í sögu­bókum, en þess verður lík­lega langt að bíða.“

Hvað ef?

Nýjasta bók Vals, Hvað ef?, er nýkomin út.

„Ég hef verið að fást við „Hvað ef“ spurn­ingar sög­unnar í langan tíma, meðal ann­ars í óklár­uðu dokt­ors­námi í Bret­landi. Ekki er enn tíma­bært að fjalla um þetta stríð í heild, enda veit eng­inn hvernig fer. En bókin er samt ein­hvers konar til­raun til að takast á við sam­tím­ann og ein leið til þess er að skoða það sem gerst hefur hingað til. Hefði verið hægt að koma í veg fyrir fyrri heims­styrj­öld og þar með þá seinni? Hvað ef rúss­neska bylt­ingin hefði þró­ast á annan hátt eða Sov­ét­ríkin hefðu enn staðið? Allir þessir atburðir hafa leitt okkur á þann stað sem við erum stödd á nú en hefðu hæg­lega getað farið öðru­vísi. Og þetta er hollt að hafa í huga varð­andi fram­tíð­ina sem er jú alltaf í mótun.“

Handahófskenndar ákvarðanir

Það var lífs­reynsla að verða vitni að hörm­ung­unum í Úkraínu. Hvaða önnur lífs­reynsla hefur haft áhrif á Val?

„Stundum veit maður að mikil lífs­reynsla stendur fyrir dyrum; eins og þegar maður heldur í stríð. En oft eru það hálf­handa­hófs­kenndar ákvarð­anir sem enda með að móta lífið mest. Ég ákvað að fara í skipti­nám vet­ur­inn 1999 og varð Finnland fyrir val­inu því allir umsókn­ar­frestir voru löngu liðnir og aðeins Finnar eða Danir vildu taka við mér. Dvölin í Finn­landi leiddi til þess að ég kynnt­ist Rúss­lands­fræð­ingum og Rúss­lands­fræðum sem og fyrstu ást­inni sem einnig var rúss­nesk. Þetta leiddi svo aftur til þess að ég ferð­að­ist til Rúss­lands og bjó síðar í Eist­landi og loks Úkraínu sem aftur leiddi til þess að ég skrif­aði um það bók. Og ekk­ert af þessu hefði gerst ef ég hefði kosið að fara til Árósa frekar en Helsinki í jan­úar 1999.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ