Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ellisif var orðin 150 kíló: „Hann barði mig í stöppu þar sem voru blóðslett­ur í loft­inu“

Ellisif var orðin 150 kíló: „Hann barði mig í stöppu þar sem voru blóðslett­ur í loft­inu“
Mynd / Skjáskot af mbl.is.

nýj­asti við­mæl­andi hlað­varps­ins Sterk sam­an er hin fer­tuga og fimm barna móð­ir­inn Ell­isif sem á í dag mun betra og inni­halds­rík­ara líf en hana hefði nokk­urn tíma geta látið sig dreyma um.

Ellisif ólst upp við góðar aðstæður þar sem ekk­ert skorti; hvorki á til­finn­inga­svið­inu né því ver­ald­lega.

Hins vegar pass­aði Ell­isif illa inn í hinn dæmi­gerða kass­a sem skóla­kerfið virð­ist vilja setja alla í.

Ellisif var fremur ung er hún var greind með ADHD; seinna kom á dag­inn að hún væri á ein­hverfu­rófi; sem út­skýr­ir að ein­hverju leyti vanda henn­ar varð­andi fé­lags­leg:

„Mér fannst ég hvergi passa inn, al­veg sama hvar ég var, en ég þráði að til­heyra.“

Hún fann sig í hópi ung­menna sem farn­ir voru að neyta vímu­efna:

„Það var í raun bara gjöf fyr­ir mig að byrja að drekka, all­ar höml­ur fóru og ég drakk mjög illa. Ég var samt alin upp við það að passa mig á áfengi því það væri mik­ill alkó­hólismi í minni fjöl­skyldu.“

Ellisif var ung er hún eign­að­ist tví­bura – tíu vik­um fyr­ir tím­ann; þeir voru mjög veik­ir:

„Ég er týpa sem ýti frá mér van­líðan og klára verk­efni sem þarf að klára. Ég og við vor­um auð­vitað mjög hrædd þegar þeir voru litl­ir og ég varð fljótt aft­ur ólétt. Þegar dótt­ir mín var níu mán­aða fór ég í hjá­v­eit­u­að­gerð, orðin 150 kíló, ekk­ert búið að vinna í fíkn­inni og ég gat ekki borðað.“

Á ekki nema einu og hálfu ári var allt komið í vaskinn hjá Ellisif; hún drakk á hverju kvöldi og skildi svo í kjöl­farið; var inn og út úr með­ferðum.

Í einni slíkri kynnt­ist hún manni og ekki löngu síðar varð hún ólétt:

„Ég fatta að ég er ólétt þegar ég var kom­in 12 vik­ur og kona á kvenna­deild­inni kom mér inn á Vog. Það voru all­ir voða góðir við mig á þess­ari með­göngu. Barns­faðir minn aft­ur á móti fór að beita mig lík­am­legu of­beldi eft­ir að son­ur okk­ar fædd­ist. Hann barði mig í stöppu þar sem voru blóð­slett­ur í loft­inu.“

Svo eign­að­ist hún annað barn með ofbeld­is­mann­in­um; féll stuttu eft­ir það:

„Ég féll, sat ein fyr­ir fram­an sjón­varpið og drakk. Morg­un­inn eft­ir hringdi ég í for­eldra mína og lét sækja börn­in mín og fór á fylle­rí. Maður­inn minn var í mótor­hjóla­sam­tök­um þar sem var mikið um drykkju, dóp, vopn, of­beldi og allt mögu­legt. Ég ætl­aði bara á túr, fara svo í með­ferð og verða aft­ur mamma en það gekk ekk­ert.“

Því miður varð of­beldið aðeins verra og verra:

„Eitt skiptið kom lögg­an heim og ég lá með­vit­und­ar­laus á gólf­inu og var með far eft­ir mótor­hjóla­hæl á kinn­inni. Það voru nán­ast all­ar tenn­urn­ar í mér brotn­ar og ég man ekki eft­ir að hafa pælt í þessu. Það var ekki fyrr en hann henti mér fram af ann­arri hæð og ég hljóp á nær­bux­un­um til ná­grann­ans þar sem búið var að berja mig í klessu, rífa upp hár­svörð­inn og með brot­in rif­bein.“

Þessi hrylli­lega árás, til­raun til mann­dráps, var kærð til lög­reglu, en felld niður.

Ell­isif kláraði með­ferð í Krýsu­vík; var edrú í eitt og hálft ár; féll og ákvað að láta barna­vernd vita – því hún vildi ekki að börn­in henn­ar myndu horfa upp á hana í því hörmu­lega ástandi er hún var komin í.

Ellisif þurfti vegna ölv­unar­akst­urs að sitja inni:

„Ég sat í rúm­inu í fang­els­inu og prjón­aði 13 peys­ur.“

Um leið og fang­els­is­vist­inni var lokið hélt Ellisif áfram að nota vímu­efni; flutti til vin­konu sinn­ar og byrj­aði síðan að sprauta sig:

„Vin­kona mín bauð mér að sprauta mig og mér fannst þetta rök­rétt næsta skref í raun.“

Afar mörg­um með­ferðum, edrú­tím­um og áföll­um síðar kemur tíma­bil þar sem Ell­isif horf­ir á sem sitt erf­ið­asta; hún gat ekki leng­ur notað vímu­efni; gat ekki heldur verið edrú:

Of­beldið sem hún bjó við var hrotta­legt og fór vax­andi; Ell­isif fór í eina með­ferð­ina enn; á áfanga­heim­ilinu Betra líf, en hún ber því heim­ili ekki góða sögu:

„Ég er edrú þrátt fyr­ir Betra líf. Það var mjög mik­il neysla þar og ofboðs­lega erfitt að vita að ég gæti bara bankað á næstu hurð og fengið mér. Það urðu líka nokk­ur dauðs­föll þar á meðan ég var þar. Ég end­aði á að hringja í pabba og hann sótti mig.Ég vil meina að ég hafi bara fæðst beygluð, ég get ekki kennt nein­um um fíkn­ina mína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ