Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sigurjón ofurhlaupari: ,,Erum hætt að hugsa um náungann á Íslandi”

Sigurjón ofurhlaupari: ,,Erum hætt að hugsa um náungann á Íslandi”
Sigurjón Ernir

Sigurjón Ernir Sturlu­son ofur­hlaup­ari og afrek­s­í­þrótta­maður er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar. Sigurjón seg­ist oft enda í nátt­úr­unni þegar hann reynir að útskýra hvað það er sem hefur farið úrskeiðis í heilsu okkar á vest­ur­löndum:

,,Við þurfum að skoða hvernig villt dýr gera þetta og þá sjáum við hvað við þurfum að gera öðru­vísi. Við erum komin svo langt frá upp­runa okkar og í mikla afteng­ingu og þar byrja lífs­stíls­sjúk­dóm­arnir. Ef þú sérð hóp af villtum dýrum úti í nátt­úr­unni eru yfir­leitt nákvæm­lega eins í lag­inu. Þegar þú sérð hjörð af fiskum í sjónum er ekki helm­ing­ur­inn akfeitur. Af hverju? Af því að umhverfið mótar ein­stak­ling­inn. Við erum með mat­ar­um­hverfi þar sem 70-80% af vör­unum í stór­mörk­uðum er unnin vara af ein­hverju tagi og yfir­leitt mik­ill sykur. Þegar við horfum á ætt­bálka í Afríku og víðar sem búa við allt ann­ars konar mat­ar­um­hverfi eru lífs­stíls­sjúk­dómar nán­ast óþekkt fyr­ir­bæri.”

Sigurjón segir í þætt­inum frá því hvernig ástríða hans fyrir hreyf­ingu byrj­aði strax þegar hann var barn:

,,Ég átti skrýtið upp­eldi og ólst upp við aðstæður sem voru á köflum erf­iðar. Ég fann mjög fljótt að hreyf­ing var mitt meðal. Þegar eitt­hvað bját­aði á vissi ég að mér myndi líða betur ef ég myndi hreyfa mig. Ég gerði þessa teng­ingu strax í barn­æsku og not­aði hreyf­ingu bein­línis sem meðal til að slá á van­líðan. Hvort sem það var körfu­bolt­inn sem ég æfði lengi eða önnur hreyf­ing. Ég ólst upp án föður sem ég hitti mjög lítið og svo dó hann úr krabba­meini. Svo flytjum ég og tví­bura­bróður minn frá móður minni og við bjuggum hjá systur móður minnar. Við fengum gott upp­eldi, en auð­vitað var það öðru­vísi en hjá öðrum að vera hvorki með föður né móður á staðnum. Ég ákvað strax að taka mikla ábyrgð og vildi bera ábyrgð á bæði mér og bróður mínum. Ég pass­aði í raun upp á okkur báða á ákveð­inn hátt og ein­hverra hluta vegna ákvað ég strax ungur að ég myndi taka ákvarð­anir og taka eins mikla ábyrgð og ég gæti.”

Eftir að Sigurjón hætti í körfu­bolta fór hann að halla sér meira að ein­stak­lings­í­þróttum og smátt og smátt fann hann löngun til að reyna eins mikið á sig og hann gæti. Hann hefur ítrekað hlaupið ofur­hlaup allt að 160 kíló­metrum og stundum með upp­hækkun allt að 9 þús­und metrum:

,,Orðið ofþjálfun er í raun kol­rangt orð. Það er bara til eitt­hvað sem heitir of mikil þjálfun fyrir þig. En þegar maður byggir sig upp í áraraðir til að þola hluti, er ýmis­legt mögu­legt. Maður byggir hægt og rólega bæði upp lík­amann og haus­inn til að þola meira og meira. En það er ekki hægt að fara alla leið á hausnum ef lík­am­inn fylgir ekki og öfugt. Lengsta hlaupið mitt er 160 kíló­metrar, en mesta áskor­unin var hlaup í Frakk­landi sem var rúm­lega 150 kíló­metrar með meira en 9 þús­und metra hækkun. Eina leiðin til að vita hvað maður þolir er að kanna hvar mörkin liggja og ég hef lengi viljað skoða hvað ég get þolað mikið. Það sem ger­ist í ofur­hlaupum eins og þessum er að maður fer í gegnum allan skal­ann af til­finn­ingum og stundum meira en maður vissi að væri hægt. Fólk lærir jafn­vel meira á sjálft sig í einu svona hlaupi en á mörgum árum í líf­inu sjálfu. Áskorun af þessu tagi er eins og hraðspólun af líf­inu sjálfu. Þú ferð í gegnum spennu, kvíða, vellíðan, van­líðan, þú lærir að koma þér út úr aðstæðum, þarf að spyrja þig hvernig þú komst þér í aðstæð­urnar og þar fram eftir götum. Svo kannski í miðju hlaupi ferð þú að hágráta af því að eitt­hvað gam­alt fær að koma upp á yfir­borðið.”

Sigurjón segir að drif­kraft­ur­inn komi ekki síst frá löngun til að geta hjálpað öðru fólki. Með því að æfa sig í að leggja mikið á eigin herðar geti maður aðstoðað aðra:

,,Við erum hætt að hugsa um náung­ann og ekki síst fólkið sem byggði þetta land upp. Það sem ger­ist er að á end­anum leitar fólk til þín ef það finnur að þú ert sterkur. Ég hef aldrei lent í ,,burnout-i” eða öðru slíku allan þennan tíma og með því að vera stað­fastur og halda alltaf áfram verður maður smám saman klettur sem annað fólk leitar til. Í dag erum við hætt að leggja hluti á börn og ung­linga sem hjálpa þeim að verða sterkir ein­stak­lingar. Auðvitað á ekki að þrælka barni, en börn sem ólust upp í sveit á Íslandi þurftu að ganga í alls kyns verk sem hjálp­uðu þeim að taka ábyrgð og læra á lífið. Að mínu mati erum við að ala upp ein­stak­linga í dag sem kunna lítið á lífið þegar þau eru orðin full­orðin. Af hverju er harka orðin mjög nei­kvætt orð í dag? Er ekki jákvætt að geta verið harður af sér þegar það á við. Börnum og ung­lingum líður ekki illa í öguðu umhverfi. Þvert á móti verða til alls konar vanda­mál ef það verður of mikið aga­leysi. Okkur þarf að líða reglu­lega illa til að finna raun­veru­leg þæg­indi. Það er engum hollt að lífið sé alltaf þægi­legt og auð­velt.”

https://www.youtube.com/watch?v=Cr0pVstvZMw&t=95s

Þáttinn með Sig­ur­jóni Erni og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ