Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Íslendingar með æði fyrir ofskynjunardópi: „Hljóta allir að sjá hvað þetta er galin pæling“

Íslendingar með æði fyrir ofskynjunardópi: „Hljóta allir að sjá hvað þetta er galin pæling“

Hafrún Krist­jáns­dóttir, sál­fræð­ingur og deild­ar­for­seti íþrótta­fræði­deildar HR, segir að svo virð­ist sem nýjasta æði Íslend­inga sé ofskynj­un­ar­lyf. Það sé sam­bæri­legt og fyrri æði fyrir fóta­nudd­tækjum, Ketó og Air fryer. Ekki bætir úr skák að helstu æðis­menn séu á Alþingi. Hér fyrir neðan má lesa lang­loku hennar, að eigin sögn, um hug­víkk­andi efni sem hún birtir á Facebook.

Rant fyrsta árs­fjórð­ungs – Langloka um hug­víkk­andi efni.

Íslend­ingar virð­ast taka allt með miklu trompi, fóta­nudd­tæki, ketó, air fryer og nú hug­víkk­andi efni.

Umræðan um hug­víkk­andi efni er alveg ótrú­lega und­ar­leg. Af umræðu í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum að dæma mætti halda að hér væri búið að finna lausn á geð­rösk­unum og hér sé bara lyk­il­inn af ham­ingju heims­byggð­ar­innar. Ég ein­hvern­vegin leyfi mér að efast stór­lega um að svo sé, því miður.

Nú eru fjöl­mörg lyfja­fyr­ir­tæki komin eitt­hvað áleiðis í rann­sóknum sínum á hug­víkk­andi efnum en eins og staðan er núna, svo ég vitni í Kára Stef­áns­son “er ekki enn búið að sýna fram á að þetta hafi nein meiri­háttar áhrif, til bata, á geð­sjúk­dómum”.  Það er vissu­lega mögu­leiki að 3ja fasa rann­sóknir (sem nú eru í gangi) leiði í ljós að þessi efni hafi áhrif til bata, umfram lyf­leysu, á ákveðnar geð­rask­anir.  Ég held að það sé ólík­legt að þessi efni muni hafa veru­lega góð áhrif á allar geð­rask­anir.  Ef í ljós kemur að þessi efni hafi áhrif á bata á ákveðnum geð­rösk­unum er þó fulln­að­ar­sigur ekki í höfn því þá þarf að skoða hvort áhrifin séu meiri en með þeim aðferðum sem eru, sam­kvæmt rann­sóknum, áhrifa­rík­astar núna. Þá vísa ég sér­stak­lega til SSRI lyfja og vel strúkt­úrerðra hug­rænar atferl­is­með­ferðar. Svo eru alls­konar aðrir þættir sem þyrfti að skoða betur.

Semsagt, það eru vís­bend­ingar um að þessi efni geti mögu­lega hjálpað, það þarf frek­ari rann­sóknir til þess að geta full­yrt um gagn­semi (og öryggi) efn­anna. Þetta þarf bara að hafa sinn gang, það er tíma­frekt en algjör­lega nauð­syn­legt að gera rann­sóknir á nýjum lyfjum. Svo við skulum ekki prjóna yfir okkur, bíðum bara hæfi­lega von­góð eftir nið­ur­stöðum rann­sókna. Þetta er í mínum huga bara alveg basic,  þess­vegna kemur svo á óvart hversu hástemd umræðan er. Þetta er líka alveg basic í huga banda­ríska geð­lækna­fé­lags­ins en þeir segja: “There is currently inadequate scientific evidence for end­ors­ing the use of psychedelics to treat any psychiatric dis­order” og “Clinical treat­ments should be det­ermined by scientific evidence in accordance with applicable reg­ul­atory stand­ards and not by ballot ini­ti­ati­ves or popular opinion”

Svo eru alls­konar skrítnir vinklar á þessu. Maður sér sama fólk dásma þessi efni og tala fjálg­lega um gagn­semi þeirra og taldi gjör­sam­lega galið að láta bólu­setja sig því það var ekki búið að rann­saka Covid bólu­efnin nægi­lega mikið.  Þess ber að geta að bólu­efnin fóru í gegnum alla þrjá fasa lyfja­rann­sókna en ekki er búið að klára þriðja fasa rann­sókna hvað hug­víkk­andi efnin varðar. Mót­sögnin er því algjör.

Svo er það þings­á­lykt­un­ar­til­lagan sem er eitt­hvað það skrítn­asta sem hefur komið frá alþingi bara frá upp­hafi held ég. Það er eins og það ágæta fólk sem kemur að þess­ari þings­á­lykt­un­ar­til­lögu hafi bara alveg gleymt að hugsa. Þessi þings­á­lykt­un­ar­til­laga ber því miður keim af pop­u­l­isma og van­þekk­ingu á hvernig vís­indi og rann­sóknir virka.  Ég þekki suma af þeim sem eru skráðir fyrir þess­ari til­lögu og ég veit að þar fer klárt og gott fólk. Það hefur bara rugl­ast aðeins þegar það setti nafn sitt á þessa til­lögu. En alla­veg­ana þá gengur þessi til­laga m.a. út á . “að und­ir­búa og leggja til nauð­syn­legar breyt­ingar, hvort sem er á lögum, reglu­gerðum eða með öðrum hætti, sem heim­ila rann­sóknir og til­raunir með hug­víkk­andi efnið sílósíbín í geð­lækn­inga­skyni”  og  „að Ísland verði leið­andi í rann­sóknum á gagn­semi hug­víkk­andi efna í geð­lækn­inga­skyni“  Byrjum á þessu með lög og reglu­gerðir sem heim­ila til­raunir og rann­sóknir með hug­víkk­andi efni. Lag­ara­mm­inn hér­lendis er þannig að það eru engar sér­stakar hindr­anir í að rann­saka hug­víkk­andi efni og bara nákvæm­lega engin þörf á að breyta neinum lögum né reglu­gerðum. Þetta eru held ég allir sem þekkja til sam­mála um. Svo er það þetta um að Ísland eigi að vera leið­andi í rann­sóknum á gagn­semi hug­víkk­andi efna í geð­lækn­inga­skyni.

Ég veit eig­in­lega ekki hvar ég á að byrja.  Í fyrsta lagi er það ekki hlut­verk alþingis og alþing­is­manna að hafa bein áhrif á hvaða rann­sóknir vís­inda­menn hér­lendis gera. Það er ein­hver stæk for­ræð­is­hyggja í því og það mætti draga hug­tök eins og akademískt frelsi inn í þessa umræðu. Alþingi á að passa upp á að umhverfi til rann­sókna sé almennt til sóma hér­lendis en ekki koma með til­lögu að til­tekið fólk á Land­spít­alnum eða við háskól­anna fari að stunda rann­sóknir á ein­hverju til­teknu efni alveg óháð áhuga þeirra eða getu til að gera þessar rann­sóknir. Það fólk sem getur gert þessar rann­sóknir hér­lendis var ekki einu sinni spurt, eftir því sem ég best veit, hvort það hefði áhuga, tíma og resourca. Það hljóta allir að sjá hvað þetta er galin pæl­ing. Þessi til­laga lýsir líka ein­hverju full­komnu þekk­inga­leysi á innviðum rann­sókna hér­lendis.  Þeir eru stór­lega ofmetnir í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni svo ekki sé meira sagt. Fyrir mér er þetta þetta álíka kjána­legt og að segja að Ísland eigi að vera leið­andi á heims­vísu í keppn­is­hjól­reiðum á næsta ári.  Ekkert til­lit tekið til aðstæðna hér á landi, fámennis eða skorti á fjár­magni. Fyrir þá sem hafa áhuga á þess­ari til­lögu þá getið þið lesið umsagnir sem hafa borist um hana, það er áhuga­verð lesn­ing.

Ég gæti haldið lengi áfram en eflaust er ég búin að drepa alla úr leið­indum nú þegar. Þetta þarf bara að hafa sinn gang, simple as that. Alþingi þarf svo pínu að hysja upp um sig. Þetta er vand­ræða­leg til­laga. Ég vil taka fram að ég mun vera him­in­lif­andi, eins og held ég allir sem starfað hafa innan geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins ef í ljós kemur að hug­víkk­andi efni reyn­ist, sam­kvæmt rann­sóknum, veru­lega árang­urs­rík með­ferð. Ég held að það sé ágætt að vitna í orð séra Friðriks að lokum, látum ekki kappið bera feg­urð­ina ofur­liði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ