Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Uppreisnin á Austurvelli: Þegar Haukur Hilmarsson hengdi upp Bónusfánann

Uppreisnin á Austurvelli: Þegar Haukur Hilmarsson hengdi upp Bónusfánann
Blessuð sé minn­ing Hauks.

Þann 8 nóv­em­ber árið 2008 stóð Bús­á­halda­bylt­ingin hvað hæst. En þessi mót­mæli þró­uð­ust í aðra átt þennan dag en venju­lega.

Fleiri þús­und manns þustu á Aust­ur­völl á hverjum laug­ar­degi og hlust­uðu á hverja ræð­una á eftir annarri með steyptan hnef­ann á lofti. Og fór svo heim. En þessi laug­ar­dagur var öðru­vísi en aðrir.

Gekk skrefi lengra

Ungur ofur­hugi, Haukur Hilm­ars­son, ákvað að ganga lengra en nokkur hafði þorað í þess­ari svoköll­uðu bylt­ingu. Morg­un­blaðið lýsti þessu með þessum orðum; „Einn mót­mæl­andi sá sig knú­inn til að sýna hug sinn í verki. Hann lagði stiga að Alþing­is­hús­inu í garð­inum við inn­gang­inn að pöll­unum, hljóp upp á þak og dró þar fána Bónus-versl­un­ar­keðj­unnar að húni.“ Þetta hafði ekki verið gert áður, að nokkur færi upp á hið virðu­lega hús Alþingis til að mót­mæla en þetta var ekki það eina sem vakti athygli. „Er lög­reglan hugð­ist fjar­lægja fán­ann og mann­inn safn­að­ist mik­ill fjöldi manna saman í port­inu og var þar aðsúgur gerður að lög­reglu. Engin átök brut­ust út en einn var færður í fanga­geymslur.“ Hinn almenni íslenski borg­ari sem sagt mót­mælti hand­töku og kom í veg fyrir hana sem verður að telj­ast afar sjald­gæft. Skipu­leggj­andi mót­mæl­anna, Hörður Torfason vildi þurrka hendur sínar af athæfi Hauks og sagði það grafa undan frið­sælu mót­mæl­unum sem hann boð­aði.

Færa má rök fyrir því að í kjöl­far þess að Haukur setti upp Bón­us­fán­ann hafi mót­mælin breyst og fólk farið að þora að mót­mæla á frum­legri hátt en að steyta hnef­anum upp í loftið yfir ræðum og skrifa svo reiða Facebookfærslu þegar heim var komið.

Handtöku mótmælt

Tveimur vikum síðar var Haukur Hilm­ars­son hand­tek­inn og færður á lög­reglu­stöð­ina við Hlemm. Múgur og marg­menni mætti þá með móður Hauks, Evu Hauks­dóttur, í far­ar­broddi. Var hand­tök­unni mót­mælt af hörku og reyndu sumir mót­mæl­endur að brjóta sér leið inn á lög­reglu­stöð­ina. „Hauki Hilm­ars­syni, sem hand­tek­inn var í gær vegna mót­mæla við Alþing­is­húsið fyr­ir hálf­um mán­uði, var sleppt nú laust fyr­ir klukk­an 18 en hóp­ur fólks hafði staðið fyr­ir mót­mæl­um utan við lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu og kraf­ist lausn­ar manns­ins. Óþekkt­ur aðili mun hafa borgað sekt fyr­ir Hauk,“ stóð í frétt Mbl.is af þessu til­efni.

Fetað í fótspor Hauks

Ekki var þetta þó í fyrsta skipti sem Haukur stóð fyrir ólög­legri fána­upp­setn­ingu. Sumarið 2008 hengdi hann upp fána Jörunds Hunda­daga­kon­ungs ofan á Stjórna­ráðs­bygg­ing­una. Næstum sléttum 10 árum síðar fet­aði bróðir Hauks, Darri Hilm­ars­son í fótsport bróður síns er hann hengdi upp fána Tyrk­lands í mót­mæla­skyni við léleg við­brögð íslenskra yfir­valda við að fá svör um afdrif Hauks í Sýrlandi. Aðgerðin var fram­kvæmd af aðgerð­ar­hópnum „Hvar er Haukur?“ en aðspurður um til­gang mót­mæl­anna sagði Darri í við­tali við Frétta­blaðið, „við von­uð­umst til þess að sparka aðeins í rass­gatið á stjórn­völdum.“ Fannst Darra stjórn­völd geta gert meira í að fá svör frá Tyrk­landi. „Þau gætu til dæmis spurt beint hvort Tyrkir séu með Hauk lífs eða lið­inn og eins hvað Tyrkir hafi gert með lík á svæð­inu.“

Bréfið

Samkvæmt nafn­lausu bréfi sem barst móð­ur­bróður Hauks fyrr á árinu og Mannlíf hefur undir höndum, kemur fram að starfs­maður sem vann náið með Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, hafi reynt hvað hann gat til að koma í veg fyrir að leitað yrði að líki Hauks en hann er tal­inn hafa fallið í árás Tyrkja­hers á sveitir Kúrda í Afrin hér­aði í Sýrlandi í febr­úar 2018. Er starfs­mað­ur­inn sagður hafa haft óbeit á Hauki og hans fjöl­skyldu og ávallt kallað hann „Bón­us­fán­ann,“ með til­vísun í atvikið sem hér er rifjað upp að ofan. Ekki var unnt að stað­festa um lög­mæti bréfs­ins.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður hjá Mannlífi þann 24. sept­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ