Björn Birgisson segir að láglaunafólkið í Eflingu hafi fengið minnst út úr kjaradeilingu Eflingar og Samtaka Atvinnulífsins.
Í nýrri færslu talar samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson um kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins og veltir fyrir sér hverju efling hafi náð fram að endingu. Segir hann karlmenn í félaginu hafa fengið mest út úr miðlunartillögunni en konurnar í Eflingu minnst. Þá segir hann að sökina sé meðal annars að finna í „trúnaðarbroti“ Stefáns Ólafssonar.
„Hverju náði Efling fram?
Olíuflutningabílstjórarnir fá nú 175 krónur fyrir hvern unninn tíma í svokallaðan ADR bónus, en það hefur aldrei verið metið áður að menn séu að aka með hættulegan farm.Fyrir 40 tíma vinnuviku væru það 28 þúsund krónur á mánuði, en svo bætist mismunandi fjöldi yfirvinnutíma við.Þannig að Efling náði þessum 28 þúsund krónum aukalega fyrir bílstjórana – ofan á SGS hækkunina.Þessa hækkun fær fámenn karlastétt, eitthvað um 70 vaskir menn.**********Láglaunakonurnar, aðaluppleggið í baráttu Eflingar, hvað fengu þær?Ofan á SGS hækkunina margnefndu fengu hótelþernurnar 0,58% hækkun á taxta.Það gætu verið rúmlega 2000 krónur á mánuði.Af þeirri tölu skýrist líklega trúnaðarbrot Stefáns Ólafssonar, ráðgjafa Eflingar, þegar hann ritaði á Facebook:„Við dagslok varð það mér umhugsunarefni, hversu lengi fólk sem hefur milljónir í laun á mánuði getur rætt um eitt þúsund króna launahækkun til verkafólks – og það án árangurs!Aurasálin er vissulega verðugt rannsóknarefni fyrir sálfræðinga!“**********Hvað kostaði barátta Eflingar fyrir þessum launahækkunum?Lausleg ágiskun væri um 200 til 300 milljónir.Greiðslur úr verkfallssjóði, gjallarhorn, húsaleiga í Hörpu, húsaleiga í Iðnó, auglýsingar og lögfræðikostnaður svo eitthvað sé nefnt.**********Niðurstaðan er því þessi.Láglaunafólkið í Eflingu fékk minnstu hækkunina.Konurnar í félaginu fengu minnst.Millitekjuhópur fékk miklu meiri hækkun, í honum eru nánast eingöngu karlmenn.Tekjubilið jókst.Þetta er forusta Eflingar tilbúin að skrifa undir.“































Athugasemdir