Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Illugi velti fyrir sér skyldleika við fólk í iðnaðarmannabúð: „Eflaust var hann frændi minn“

Illugi velti fyrir sér skyldleika við fólk í iðnaðarmannabúð: „Eflaust var hann frændi minn“
Illugi Jök­uls­son.

Illugi Jök­uls­son reikn­aði út að lík­lega hefðu um fimm manns í verslun sem hann fór í, verið skyld­menni hans, í gegnum for­móður um sjötta hluta þjóð­ar­innar.

Hinn orð­hagi rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður, Illugi Jök­uls­son skrifar oft skemmti­legar færslur á Facebook. Sú nýjasta er engin und­an­tekn­ing. Þar segir hann frá því að hann hafi farið í iðn­að­ar­manna­búð þar sem inni voru 35 manns. Sagðist hann hafa hlegið innra með sér því miðað við töl­fræð­ina, væru líkur á því að fimm manns þar inni væru skyld­menni hans í gegnum Sigríði Hjálms­dóttur, hús­freyju á Þverá í Skaga­firði sem fædd­ist árið 1702 en hún á 60.167 afkom­endur á lífi í dag, hvorki meira né minna. Færsluna skemmti­legu má lesa hér fyrir neðan:

„Áðan þurfti ég að fara út í búð að kaupa þétt­ull til að þétta ákveð­inn stað hér í hús­inu í kuld­anum. Í til­tek­inni iðn­að­ar­manna­búð voru 35 menn inni; afgreiðslu­fólk, við­skipta­vinir og ég. Þá hló mér hugur í brjósti þegar ég átt­aði mig á því að eflaust væru fimm menn þarna inni eins og ég afkom­endur Sigríðar Hjálms­dóttur (1702-1783) hús­freyju á Þverá í Skaga­firði en and­að­ist í Þykkvabæ. Samkvæmt Íslend­inga­bók á hún nefni­lega 60.167 afkom­endur á lífi en það fer nærri því að vera sjötti hluti þjóð­ar­innar. Og ég hugs­aði með mér hvort ég ætti að efna til fundar þarna í búð­inni og við sex­menn­ing­arnir gætum fengið okkur kaffi til að þakka Sigríði fyrir að hafa gengið að eiga Stein­grím nokkurn Jónsson og síðan sofið hjá honum einmitt þegar hún gerði það, því ann­ars værum við ekki þarna þrem öldum síðar, heldur ein­hverjir allt aðrir sex menn. En þá var kom­inn maður með þétt­ull­ina mína, svo ég fór bara. Eflaust var hann frændi minn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar