Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lögreglan í Kópavogi skaut hund Þorsteins: „Þetta var mér mikið áfall, en Penni var dauður“

Lögreglan í Kópavogi skaut hund Þorsteins: „Þetta var mér mikið áfall, en Penni var dauður“
Félag­arnir Penni og Þor­steinn Svanur Stein­gríms­son. Myndin er sam­sett

„Penni var mjög hvass og gætti óhemju­lega vel heim­il­is­ins. Enginn ókunn­ugur mátti koma við neitt sem ég átti. Við fengum í langan tíma ekki neina opin­bera reikn­inga,“ svo lýsir Þor­steinn Svanur Stein­gríms­son, lög­reglu­maður, hund­inum sínum Penna í við­tali við Morg­un­blaðið, sunnu­dag­inn 11. sept­em­ber 1988.

Þor­steinn Svanur var lög­reglu­maður og starf­aði hjá rann­sókn­ar­lög­regl­unni þegar við­talið var tekið. Hann hefur átt og þjálfað fjölda hunda. Í við­tal­inu var farið yfir nokkrar þá tryggu félaga sem Þor­steinn hefur átt og er þar einn sem stendur ögn framar öðrum en það er hund­ur­inn Penni. Örlög hund­ins voru voveif­leg en þrátt fyrir að hafa aðstoðað í lög­regl­una í vinnu hennar, skaut hún og ban­aði hund­inum.

Hund­ur­inn Penni varð sex ára. Mynd/skjá­skot tíma­rit.is

Penni bjargaði lífi fjölskyldunnar

Þor­steinn segir frá því hvernig hund­ur­inn hans Penni hafi eitt sinn bjargað lífi allrar fjöl­skyld­unnar. Þau voru stödd í sum­ar­bú­stað og Þor­steinn var nýkom­inn út veiði­túr. Hund­ur­inn var öllu jafna lát­inn sofa á næt­urnar í verk­stæð­inu en til­viljun réði því að hund­inum hafi verið leyft að sofa inni í stofu húss­ins þá nótt­ina: „Í sum­ar­bú­staðnum var mið­stöð sem átti það til að gas­sprengja. Um kvöldið fórum við að sofa eins og vant var, en um nótt­ina vakna ég úti á stétt.“

Sum­ar­bú­staður fjöl­skyld­unnar var lítið timb­ur­hús með risi og sváfum þau í svefn­lofti hans. „Mjög þröngur stigi lá neðan af loft­inu og niður þann stiga hafði hund­ur­inn dröslað mér og út á hlað,“ útskýrir Þor­steinn og lýsir áverkum og hversu illa særður og nag­aður á hand­leggnum hann hafi orðið. Hund­ur­inn hafi bitið Þor­steinn í hand­legg­inn til að koma honum út undir bert loft eftir árang­urs­lausar til­raunir Penna til að vekja Þorstein.

„Ég átt­aði mig fljót­lega á því að spreng­ing hafði orðið í hús­inu og mér tókst að bjarga konu minni og þremur börnum út úr reyk­hafínu. […] Ég sá hvemig hann skreið með gólf­inu þar sem ekki var reykur,“ segir Þor­steinn Svanur og lýsir því hvernig það var Penna að þakka að fjöl­skyldan hafi öll sloppið heil á húfi – þó tveir höfðu fengið væga reyk­eitrun.

Annað atvik átti sér stað á heim­ili Þor­steins er hann sat til kvöld­verð­ar­borðið með fjöl­skyldu sinni. Þá rudd­ust inn á heim­ili hans þrír menn, sóp­uðu öllu af borð­inu og veitt­ust að Þor­steini. „Tveir kró­uðu mig af við glugg­ann og ég barð­ist þar við þá en sá þriðji réðst á Helgu. Henni tókst þó að opna dymar og kalla á Penna.“

Þor­steinn lýsir því hvernig Penni var bund­inn með tommusverri kveðju við grunn­inn úti. Við hjálp­ar­kall kon­unnar tók hund­ur­inn svo kraft­mikið til­hlaup að hann sleit keðj­una og þeytt­ist inn fjöl­skyld­unni til bjargar. „Hann var svo fljótur að hreinsa til að ég varð að taka skart við­bragð til þess að bjarga lífi eins af mönn­unum sem hann hafði skellt á jörð­ina,“ útskýrir Þor­steinn Svanur.

Upprætti mál lögreglunar – sem svo drap hann

„Við Penni réttum stundum lög­regl­unni í Kópavogi hjálp­ar­hönd því Penni var frá­bær spor­hundur,“ útskýrir Þor­steinn og segir frá þegar eitt sinn hafði maður ráð­ist á kindur í Kópavogi og leikið þær illa. Þá hafði lög­reglan leitað eftir aðstoð Penna. Afbrota­mað­ur­inn hafði flúið úr fjár­hús­inu en skilið eftir smá snifsi af úlp­unni sinni á ódæð­is­staðnum.

„Penni þef­aði af úlpusnifs­inu og þef­aði sig síðan að húsi og var kom­inn þar með kjaft­inn á háls manni sem lá þar inni áður en við varð litið,“ segir Þor­steinn og útskýrir að Penni hafi kunnað að opna allar hurðir. Afbrota­mað­ur­inn ku hafa verið svo hræddur við hund­inn að hann ját­aði sam­stundis verkn­að­inn.

Þrátt fyrir óeig­in­gjarnt fram­lag Penna og frá­bæra frammi­stöðu hans í þessu máli sem og mörgum öðrum þá urðu það örlög hans hin sorg­leg­ustu. Lög­reglan í Kópavogi skaut Penna til bana þegar hann var ein­ungis á sjötta ald­ursári.

„Þetta var gert fyrir mis­skiln­ing og varð úr mikil reki­stefna. Þetta var mér mikið áfall, en Penni var dauður og því varð ekki breytt. Þessi hundur var gæddur svo frá­bærum hæfi­leikum að eftir að ég átti hann ber ég alla hunda saman við hann og þeir eru fáir sem stand­ast þann sam­an­burð,“ segir Þor­steinn Svanur í við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ