Edda Falak hæðist að Frosta Logasyni í athugasemd við færslu Ólafar Töru feminista. Í færslunni tjáir Ólöf Tara sig um reynslu og upplifun sína þegar hún var táningur og starfaði í bakaríi. Hún og aðrar ungar afgreiðslustúlkur höfðu brugðið á það ráð að breyta nafnspjöldum sínum til að sporna við að viðskiptavinir, þá jafnan fullorðnir menn, myndu nálgast þær í gegnum samfélagsmiðla.
Edda ritar við færsluna:
„Ég hringdi í öll bakarí á landinu og það vildi enginn kannast við þig. Hringdi meira að segja í matvælaeftirlitið og þau sögðu að þú ert ekki einu sinni með leyfi til þess að baka brauð“.
Með orðum sínum vísar Edda í eigin reynslu eftir að Frosti Logason afhjúpaði að Edda hafði sagt ósatt um starfsreynslu sína í Danmörku. Afhjúpunin varð til þess að Edda Falak missti starf sitt sem blaðamaður hjá Heimildinni.
Fjölmargir hafa líkað við athugasemdina og svarar Ólöf Tara ummælum Eddu:
„Jæja þá er bara búið að afhjúpa þennan lygavef minn“.
Þessu svarar Edda Falak:
„Þegar þú segist hafa unnið í bakarí þegar raunin er sú að þú varst að vinna á kaffihúsi, er það ekki basically verra en að lemja konuna sína?“
Færslu Ólafar og athugasemd Eddu má sjá hér að neðan:































Athugasemdir