Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ekki orði minnst á baráttu Eflingar í vefriti ASÍ: „Hér er um grófa sögufölsun að ræða“

Ekki orði minnst á baráttu Eflingar í vefriti ASÍ: „Hér er um grófa sögufölsun að ræða“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

„Í dag las ég glæ­nýtt vefrit Alþýðu­sam­bands­ins „Vinnan 2023”. Þar má m.a. finna grein­ina “Fremstar meðal jafn­ingja” en í henni er talað við fimm kven-for­menn félaga innan vébanda ASÍ. Í inn­gangi grein­ar­innar segir orð­rétt:

“Í kringum kjara­við­ræður í lok síð­asta árs bar á gagn­rýn­is­röddum um eins­leitni samn­inga­nefnda þar sem karlar þóttu áber­andi og konur lítið sýni­legar. Ásýndin þótti líkj­ast myndum frá því á 7. ára­tug síð­ustu aldar en ekki nú eftir ára­tuga jafn­rétt­is­bar­áttu.”

Ég geri að sjálf­sögðu enga athuga­semd við að engin ástæða hafi verið séð til þess að ræða við mig vegna grein­ar­innar af rit­stjórum vefrits ASÍ. Það er öllum löngu orðið ljóst að ég verð seint talin fremst meðal jafn­ingja á vett­vangi sam­bands­ins. En ég get ekki annað en gert mjög alvar­lega athuga­semd við þá stórfurðu­legu og röngu mynd sem að dregin er upp í inn­gangs­orðum grein­ar­innar.“ Svona byrjar færsla Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur verka­lýðs­for­ingja Eflingar. Í henni furðar Sólveig sig á þeirri stað­reynd að ekki einu orði er minnst á bar­áttu Efl­ing­ar­kvenna á liðnum vetri, í nýju vefriti Alþýðu­sam­bands­ins.

„Ég spyr í fyllstu alvöru: Getur verið að Alþýðu­sam­bandið hafi misst af öllum frétta­flutn­ingi af samn­inga­nefnd Eflingar síð­asta vetur? Eða er samn­inga­nefnd Eflingar svo ómerki­leg í hugum þeirra sem að þar stýra efn­is­tökum og áherslum að það tekur því ein­fald­lega ekki að minn­ast á hana? Er virð­ing þeirra fyrir okkar mikla starfi og bar­áttu svo lítil að þau sjá ekk­ert athuga­vert við að ein­fald­lega láta, í vefriti sjálfs Alþýðu­sam­bands Íslands, eins og við séum ekki til? Er það vegna þess að við erum einmitt með­limir í samn­inga­nefnd sem leidd er af konu, og með konur alls­staðar að úr heim­inum í fram­varða­sveit nefnd­ar­innar? Er það ástæðan fyrir því að jað­ar­setn­ingin á okkur lifir góðu lífi á vett­vangi ASÍ? Getur verið að þau sjái ekki tví­skinn­ung­inn í því að fjalla í vefrit­inu sínu sér­stak­lega um konur og kvenna­sam­stöðu, en minnst þó ekki einu orði á bar­áttu Eflingar, þar sem að konur eru eins sýni­legar og öfl­ugar og hægt er að hugsa sér? Og er virki­lega eitt­hvað sem að minnir þau á 7. ára­tug síð­ustu aldar þegar að þau skoða sam­setn­ingu samn­inga­nefndar Eflingar?“

Segir Sólveig Anna að um sögu­fölskun sé að ræða.

„Stað­reyndin er þessi: Hér er um grófa sögu­fölsun á atburðum vetr­ar­ins að ræða, í boði Alþýðu­sam­bands Íslands. Ég og kven-félagar mínir í Eflingu hefðum mögu­lega getað trúað því að fyrir þær ríf­lega 105 millj­ónir sem að við sendum ASÍ á síð­asta ári gætum við fengið þó að ekki væri nema smá­vegis virð­ing­ar­vott. Þess í stað fáum við sögu­fölsun og algjöra útþurrkun (era­sure: hug­tak sem er notað í femínískum fræðum og á við þá til­hneig­ingu að hunsa, fjar­lægja og falsa vitnsi­burði um konur og kvenna-gjörðir).

Ég og bar­áttu-systur mínar í Eflingu tökum ekki útþurrkun á okkur og okkar bar­áttu þegj­andi og hljóða­laust. Þess­vegna skrifa ég um þetta ósæmi­lega rugl hér fyrir ykkur til að lesa. Við höfum tek­ist á við Samtök atvinnu­lífs­ins, póli­tíska valda­stétt sem að líkt og ASÍ reynir að láta eins og við séum ekki til, rík­is­sátta­semj­ara í vas­anum á auð­vald­inu, og svo mætti áfram telja. Við höfum farið í verk­föll, farið á verk­fallsvaktir, tek­ist á við verk­falls­brjóta. Við höfum staðið vörð hvor um aðra í þeim átökum sem að við höfum átt í vegna bar­áttu okkar fyrir því að Eflingar-konur njóti virð­ingar í sam­fé­lag­inu. Og það munum við halda áfram að gera. Það er ein­hvers­konar yfir­lýs­ing hjá ASÍ um veru­leikafirr­ingu að láta eins og við séum ekki til.“

Að lokum segir Sólveig Anna að Efl­ing­ar­konur þurfi ekki á ASÍ að halda, þær hafi hvor aðra.

„En við þurfum ekki á þeim að halda sem að sjá okkur ekki. Við höfum hvor aðra og það dugar okkur betur en nokkuð annað, hér eftir sem hingað til. Við höfum aldrei fengið neitt frá ASÍ hvort sem er.

Ég læt fylgja nokkrar myndir af með­limum samn­inga­nefndar Eflingar. Rétt upp hönd sem telur ásýnd­ina eins­leita og minna á 7. ára­tug síð­ustu aldar á Íslandi.(Það er rétt að taka fram að ekki er minnst einu orði á Eflingu í vefrit­inu, ekki heldur í grein­inni Áfram stelpur!)“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ