Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Krefjast þess að hvalveiðum „ljúki tafarlaust“ eftir skýrslu MAST:„Tók dauðastríðið tvo klukkutíma“

Krefjast þess að hvalveiðum „ljúki tafarlaust“ eftir skýrslu MAST:„Tók dauðastríðið tvo klukkutíma“
Kristján Loftsson eig­and Hvals hf er ávallt spenntur fyrir hval­veiðum og hefur sótt um leyfi Mynd: © Bloomberg via Getty Images

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands krefst þess að hval­veiðum ljúki taf­ar­laust á Íslandi eftir svarta skýrslu Mat­væla­stofn­unar um veið­arnar.

Í ljósi svartrar skýrslu Mat­væla­stofn­unar um hval­veiðar, þar sem nið­ur­staðan er sú að veiðar á stór­hvelum sam­ræm­ist ekki mark­miðum laga um vel­ferð dýra, hefur
Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands birt harð­orða ályktun.

Álykt­un­ina má lesa hér í heild sinni:

Ályktun stjórnar Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands

Mat­væla­stofnun stað­festir að hval­veiðar eru dýra­níð

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands (DÍS) vekur athygli á þeirri skýru nið­ur­stöðu Mat­væla­stofn­unar (MAST), á grund­velli gagna sem söfn­uð­ust við eft­ir­lit með hval­veiðum á síð­asta ári, að óásætt­an­lega hátt hlut­fall þeirra veiddu hvala, sem eft­ir­litið náði til, þjáð­ust.

Í ágúst á síð­asta ári und­ir­rit­aði mat­væla­ráð­herra reglu­gerð um aukið eft­ir­lit með veiðum á lang­reyðum við Ísland sem fól meðal ann­ars í sér að veið­arnar skyldu kvik­mynd­aðar. Til­gangur þess var að stuðla að bættri vel­ferð dýra en DÍS hefur árum saman haldið því fram að hval­veiðar séu ómann­úð­legar og eigi ekki rétt á sér.

Nú er komin út svört skýrsla MAST um hval­veiðar Hvals hf á síð­asta ári og kemur þá í ljós að 41% dýr­anna dó ekki sam­stundis. Miðgildi þess tíma sem dauða­stríð þeirra dýra tók var heilar ell­efu og hálf mín­úta. Í eitt skiptið tók dauða­stríðið tvo klukku­tíma og í öðru til­viki  stóð elt­ing­ar­leikur hval­báts yfir í fimm klukku­stundir eftir að sprengiskutli var skotið í bak dýrs­ins. Ekki tókst að ná dýr­inu og slapp það því að lokum hel­sært. 73% þeirra alls 148 hvala sem veiddir voru í fyrra voru kven­kyns þar af 11 kálfa­fullar kýr og ein mjólk­andi.

Mat­væla­stofnun segir veið­arnar ekki upp­fylla mark­mið laga um dýra­vel­ferð og vísar því til fagráðs um vel­ferð dýra að meta hvort veið­arnar geti mögu­lega upp­fyllt þau mark­mið. Nið­ur­staða eft­ir­lits­ins á síð­asta ári leiðir í raun í ljós að svo er ekki en mik­il­vægt engu að síður að und­ir­byggja vel laga­lega ákvörðun um að binda í eitt skipti fyrir öll enda á það dýra­níð sem hval­veið­arnar sann­an­lega eru. Ábyrgðin á þess­ari stundu liggur fyrst og fremst hjá Hval hf og eig­anda þess fyr­ir­tækis að bregð­ast við áfell­is­dómi MAST og hætta við veiðar í sumar þó svo að eitt ár sé eftir af veiði­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins.

DÍS fer hér með fram á að veið­unum ljúki taf­ar­laust en að stjórn­völd beiti Hval hf að öðrum kosti ströngum við­ur­lögum ef svo illa fer að veiðar haldi áfram í sumar og að annar hvalur deyi ekki sam­stundis, sem næsta víst er að muni þá ger­ast í einni af fyrstu veiði­ferð­unum.
Stjórn DÍS leggur áherslu á þá meg­in­kröfu að lok hval­veiða verði var­an­leg en ekki tíma­bundin þannig að aldrei framar verði kvóti útgef­inn eða leyfi veitt á Íslandi fyrir hval­veiðum.

Stjórn Dýraverndarsambands Íslands

Ekki náð­ist í Kristján Loftsson, eig­anda Hvals ehf við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ